Morgunblaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 26
26 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010
Morgunblaðið/Heiddi
Glatt á hjalla Jóhanna sýnir Þórunni hvernig skal handleika pípurnar. Mynd af Einari manni hennar er á borðinu.
Jóhanna Pétursdóttir er 85 ára og hefur ekki lengur tök áað sjá um sín daglegu mál sjálf. Hún þiggur þjónustu fráSinnum heimaþjónustunni daglega.
„Sami starfsmaður fer til hennar á hverjum morgni en þar
að auki eru fjórir einstaklingar sem sjá um að fara til hennar
á kvöldin og um helgar. Þeir fá allir upplýsingar sín á milli. Á
morgnana aðstoðar starfsmaður frá okkur hana Jóhönnu við
að fara á fætur og hjálpar henni við að taka lyfin á réttum
tíma. Hún getur ekki farið ein út af heimilinu svo við förum
með henni út í búð, verslum fyrir hana og sjáum til þess að
það sé alltaf eitthvað til í ísskápnum sem henni finnst gott. Við
eldum fyrir hana kvöldmat og berum hann á borð, spjöllum
við hana og höldum utan um hversu mikinn vökva hún fær.
Eins sjáum við um þrif á heimili hennar, þvottinn, að skipta
um á rúmum og hverskonar viðvik sem falla til. Við förum til
dæmis með hana í lagningu einu sinni í viku og fótsnyrtingu á
nokkurra vikna fresti. Hún tekur þátt í félgsstarfi kirkjunnar
og við aðstoðum hana við að fara þangað,“ segir Þórunn sem
er ein af þeim sem sinna Jóhönnu.
Gott að púa pípurnar
„Ég lofa Guð á hverjum degi fyrir það að fá að vera heima
hjá mér,“ segir Jóhanna sem er nokkuð hress miðað við aldur
og púar pípu sér til gamans, en þær á hún nokkrar.
„Ég reyki svo skarpt að pípan hitnar og þá skipti ég og fæ
mér aðra. Þegar hún er orðin heit fæ ég mér enn aðra, þess
vegna verð ég að eiga fleiri en eina og fleiri en tvær. Ég fór
ekki að reykja fyrr en upp úr fimmtugu en Einar maðurinn
minn heitinn reykti pípu.“
Jóhanna segist vera afskaplega ánægð með þjónustuna sem
hún fær hjá Sinnum heimaþjónustu.
„Ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Ef ég er ekki ánægð, nú
þá kvarta ég bara beint við hana Þórunni,“ segir Jóhanna og
hlær en hún hefur glimrandi skopskyn og segist njóta þess
þegar Þórunn lítur til hennar á kvöldin „af því hún er svo
gamansöm“.
Hún kann líka að gera grín að sjálfri sér ekki síður en öðr-
um. „Hún er svolítið að grínast enn kerlingin. Það er mikill
kostur að hafa svolítið í kollinum,“ segir hún um sjálfa sig og
er þakklát fyrir að hafa enn sjón til að sinna prjónaskap og
gerir heilmikið af því að prjóna. „Ég er dugleg í öllu, alveg
sama hvað það er,“ segir hún og skellihlær. Hún kveður okk-
ur með hvatningu um að fara nú varlega í myrkrinu.
Gott að fá
að vera heima
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Fyrir fólk sem getur af einhverjumástæðum ekki hugsað um sig sjálfter mjög dýrmætt að búa heima.Sumum hentar vissulega best að
búa á hjúkrunarheimili eða í öryggisíbúðum
en markmið okkar er að bæta valfrelsi eldri
borgara og sjúkra og auka þannig lífsgæði
þess fólks. Þess vegna leggjum við mikið upp
úr persónulegri og samþættri þjónustu. Við
leggjum ríka áherslu á það við starfsfólk okk-
ar að hafa það ævinlega í huga að þegar við
förum inn á heimili erum við þar í boði þeirra
sem búa þar. Heimili er ekki stofnun,“ segja
þær Ásta Þórarinsdóttir og Þórunn Garðars-
dóttir en þær eru burðarásarnir í fyrirtæki
sem heitir Sinnum heimaþjónusta.
Börn, ungt fólk og eldra fólk
Fyrirtækið býður upp á margþætta þjón-
ustu fyrir fólk sem af einhverjum ástæðum
þarf á hjálp að halda heima hjá sér við hvers-
dagslegar athafnir.
„Þetta eru ýmist eldri borgarar, fatlaðir,
langveikir eða þeir sem eru sjúkir af ein-
hverjum ástæðum. Þessir einstaklingar geta
verið á öllum aldri, börn, ungt fólk og aldr-
aðir. Skjólstæðingar okkar þurfa líka að fá
hjálp við að gera margt utan heimilis, til
dæmis að fara í allskonar læknismeðferðir, í
sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, talþjálfun og sinna
ýmsum persónulegum erindum. Okkur finnst
að heimaþjónusta eigi að vera þannig að þeg-
ar starfsmaður kemur inn á heimili geti hann
annast sem flest sem þarf að gera. Stundum
dugar vissulega ekki einn starfsmaður en þá
er mikilvægt að þeir sem sinna sömu mann-
eskjunni séu í góðu sambandi sín á milli og
þekki einstaklinginn og þarfir hans vel.
Sú þjónusta sem við bjóðum upp á er val-
kostur sem okkur finnst mikilvægt að sé fyrir
hendi. Fólk vill hafa sjálft eitthvað um það að
segja hver kemur heim til þess, hversu oft og
hvernig það er gert. Þjónustan sem við veit-
um er sem sagt á forsendum þjónustuþegans.
Við teljum það hafa jákvæð áhrif á lífsgæði
einstaklingsins. Markmiðið er ævinlega að
þjónustuþeginn sé ánægður,“ segja þær Ásta
og Þórunn og bæta við að þær sjái meðal
annars um að samþætta alla þá þjónustu sem
viðkomandi einstaklingur þiggur. „Það er
mikill kostur fyrir þjónustuþegann að hafa
allt undir einum hatti. Og það er ekki síður
gott fyrir aðstandendur að hafa aðeins þetta
eina símanúmer okkar sem hægt er að
hringja í ef eitthvað er að, hvort sem það
tengist innliti, lyfjagjöf, aðhlynningu, þrifum
eða einhverju öðru. Fatlaðir, sem oft þurfa
mjög fjölbreytta aðstoð, kvarta mest yfir því
að of margir aðilar komi inn á heimilið. Við
vitum um dæmi þar sem fjörutíu ólíkir ein-
staklingar komu inn á heimili fatlaðs manns á
einni viku til að sinna þjónustu við hann. Úr
þessu viljum við bæta.“
Sumir vilja láta baða sig oftar
Þær segjast vinna mikið fyrir sveitar-
félögin sem kaupi í mörgum tilvikum þjón-
ustu frá Sinnum heimaþjónustu fyrir sína
skjólstæðinga en þar að auki vilji sumir ein-
staklingar meiri þjónustu en þeir eiga rétt á
frá sveitarfélaginu, og þá geta þeir keypt sér
viðbótarþjónustu.
„Til dæmis finnst sumum ekki nóg að fá
böðun einu sinni í viku. Aðrir vilja kannski
meiri og annarskonar þrif en þau sem í boði
eru hjá hinu opinbera. Þá hefur fólk val um
að kaupa viðbótarþjónustu beint af okkur.
Við hlaupum líka í skarðið tímabundið, til
dæmis þegar börn aldraðra fara í sumarfrí
eða þegar foreldrar ungra barna slasast og
vantar hjálp á heimilið á meðan viðkomandi
er að jafna sig. Þessi áhersla okkar á að geta
brugðist við með litlum fyrirvara, hefur líka
nýst vel fyrir sveitarfélögin, þeim finnst gott
að hafa okkur til að grípa til þegar eitthvað
kemur upp á. Við fáum líka sum af erfiðustu
málunum sem kerfið hefur gefist upp á, en
margir skjólstæðinga okkar kljást við minnis-
glöp og geðraskanir.“
Sparnaður fyrir samfélagið
Hægt er að borga fyrir einstaka tíma en
einnig eru gerðir þjónustusamningar yfir
lengri tíma, allt eftir eðli hvers máls.
„Í mörgum tilvikum er það hagkvæm þjón-
usta að hlúa að fólki heima frekar en á stofn-
un. Þetta er klárlega sparnaður fyrir sam-
félagið. Í mörgum tilvikum dugar minniháttar
aðstoð til að fólk geti áfram búið heima og
stundum er kostnaður vegna þess ekki nema
30-40 þúsund á mánuði, en fyrir fólk sem þarf
mjög mikla heimaþjónustu og jafnvel nokkr-
um sinnum á dag þá greiðir sveitarfélagið oft-
ast á bilinu 100-200 þúsund á mánuði en þá er
oft um hjón að ræða. Til samanburðar má
nefna að í einhverjum tilvikum kostar hjúkr-
unarrýmið á vegum hins opinbera rúmlega 30
þúsund á dag fyrir eina manneskju.“
Við förum ekki fram úr okkur
Ásta og Þórunn segja að starf þeirra hjá
Sinnum heimaþjónustu sé mjög gefandi og
þakklátt en fyrirtækið veitir aðstoð á á annað
hundrað heimilum á höfuðborgarsvæðinu.
Þær segja eftirspurnina vera mikla en þær
passi sig að fara ekki fram úr sér. „Við erum
kannski dæmigert kvennafyrirtæki að því
leyti að við förum varlega. Við höfum bætt
við okkur u.þ.b. einum starfsmanni mán-
aðarlega síðastliðna átján mánuði. Við erum
enn að bæta við okkur fólki og nú erum við
með yfir 20 faglærða og almenna starfsmenn
á okkar vegum,“ segir Ásta sem stofnaði fyr-
irtækið fyrir tveimur árum ásamt Ásdísi
Höllu Bragadóttir en Þórunn bættist í hópinn
í fyrrasumar og gegnir nú stöðu forstöðu-
manns.
Í snertingu við fólkið
Ásta er hagfræðingur en Þórunn er hjúkr-
unarfræðingur. Þær skipta með sér verkum
þannig að Þórunn sér um faglega starfið en
Ásta helgar sig rekstrinum. Auk þess að vera
forstöðumaður sér Þórunn líka um að fara
heim til skjólstæðinga þeirra og sinna því
sem þar þarf að gera. „Þó að ég hafi auk
hjúkrunarinnar menntað mig í stjórnun, þá
finnst mér alltaf skemmtilegast að vera í
snertingu við fólkið. Ég vil vera viðræðuhæf
þegar eitthvað kemur upp á eða þarf að
bæta,“ segir Þórunn sem hefur mikilvæga
reynslu í umönnun einstaklinga með minnis-
glöp en hún starfaði í mörg ár í Sviss þar sem
hún sérhæfði sig á því sviði. „Ég byggði upp
deild fyrir fólk með minnisglöp og var deild-
arstjóri þar. Ég hef mikinn áhuga á þessu
sviði og býð upp á fyrirlestra og fræðslu fyrir
aðstandendur, en það er mjög mikilvægt að
benda á ýmsa þætti sem geta auðveldað sam-
skipti þeirra nánustu við þann sem er með
minnisglöp. Fólk þarf til dæmis að halda sín-
um hlutverkum og virðingu, börn eiga til
dæmis ekki að þurfa að vera í foreldra-
hlutverki fyrir foreldra sína.“
Viljum bæta lífsgæði þeirra
Flestir vilja búa heima hjá sér
sem lengst þó að aldur eða sjúk-
dómar komi í veg fyrir að það sé
hægt án hjálpar. Vinkonurnar í
Sinnum heimaþjónustu vilja að
fólk hafi val.
Morgunblaðið/Heiddi
Metnaðarfullar Þórunni og Ástu finnst starfið hjá Sinnum bæði gefandi og þakklátt.
www.sinnum.is
s: 770-2221
Á Facebook:
Sinnum heimaþjónusta