Morgunblaðið - 30.01.2010, Síða 46

Morgunblaðið - 30.01.2010, Síða 46
46 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 5 3 6 7 1 3 5 4 8 5 3 6 7 6 3 5 9 8 4 8 9 1 7 5 4 2 1 7 9 5 1 4 3 8 9 5 2 3 9 7 5 4 7 2 9 5 5 3 4 8 1 2 7 9 6 3 5 8 3 2 5 1 1 6 3 6 5 2 7 8 5 1 6 2 8 9 1 5 6 8 3 9 7 4 2 1 2 7 4 5 1 6 8 3 9 3 1 9 4 8 2 6 5 7 4 8 2 7 5 3 9 1 6 6 5 1 8 4 9 3 7 2 7 9 3 2 6 1 5 8 4 9 3 7 6 2 5 1 4 8 8 2 6 1 3 4 7 9 5 1 4 5 9 7 8 2 6 3 7 9 3 4 5 6 8 2 1 5 8 1 3 2 7 4 6 9 2 4 6 8 1 9 5 3 7 8 5 9 2 6 3 7 1 4 3 7 4 1 9 5 6 8 2 1 6 2 7 8 4 3 9 5 9 3 7 6 4 1 2 5 8 6 2 5 9 7 8 1 4 3 4 1 8 5 3 2 9 7 6 2 4 8 9 5 7 3 1 6 7 9 5 6 3 1 2 4 8 3 1 6 2 4 8 9 5 7 4 8 9 1 2 6 5 7 3 5 6 7 3 8 4 1 9 2 1 2 3 5 7 9 6 8 4 6 7 1 8 9 2 4 3 5 9 3 4 7 6 5 8 2 1 8 5 2 4 1 3 7 6 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 30. janúar, 30. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jh. 20.) Víkverji er farinn að ókyrrast íbiðinni eftir skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Það er mjög slæmt að nefndin skuli hafa þurft að fresta útgáfu skýrslunnar tvisvar. Það elur á tortryggni. Nú eru farnar að heyrast efasemdaraddir allt í kringum Víkverja. Skýrslan verði húmbúkk og dramatískar yfirlýs- ingar nefndarmanna um innihald hennar reynist innistæðulausar. Þetta verði allt eitt yfirvarp þegar á hólminn verði komið og þessir nefndarmenn séu bara kjaftaskar. x x x Víkverji tekur ekki undir meðþessum röddum, heldur hefur fulla trú á rannsóknarnefndinni. Þar til skýrslan birtist er ekki annað hægt en að taka þau orð nefnd- armanna trúanleg, að hún verði kol- svört og lestur hennar geri mann hryggan, reiðan og stundum verði maður gráti næst. Útskýringarnar á töfunum hafa verið skiljanlegar. Það var meiri skítur í haughúsinu en bú- ist var við í upphafi. Það er ekki flóknara en svo. Nefndin þarf þess vegna ráðrúm til að ganga almenni- lega frá sinni rannsókn. Annars er allt unnið fyrir gýg. x x x Það er líka hjálplegt að rifja upphversu langt við erum komin í uppgjörinu við hrunið. Fyrst stefndi nefnilega í þess háttar sýndarrann- sókn, sem fólk óttast að skýrsla rannsóknarnefndarinnar verði. Morgunblaðið kveikti fyrst fjölmiðla á því að heiðursmaður í sæti dóms- málaráðherra hefði skipað tvo ann- álaða heiðursmenn til að hefja rann- sókn á aðdraganda hrunsins, en þeir væru báðir bullandi vanhæfir. Nú virðist sem sonur annars þeirra sé grunaður um lögbrot. Á þeim tíma var hann ekki grunaður um neitt slíkt. Hefði ekki verið bent á van- hæfið væri hann ef til vill ekki held- ur grunaður um neitt í dag. Höfum trú á rannsóknarnefnd- inni, þar til annað kemur í ljós, og sjáum til þess í sameiningu að ekk- ert atriði í skýrslunni fái að liggja í þagnargildi eftir að hún kemur út. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 brimill, 8 ekki gamlar, 9 duglegum, 10 greinir, 11 gerast oft, 13 híma, 15 byggingarnar, 18 ekki rétt, 21 erfðafé, 22 fisks, 23 reyfið, 24 óvarkárt. Lóðrétt | 2 skynfærið, 3 nemur, 4 vafinn, 5 elsk- aðir, 6 ljósker, 7 formóð- ir, 12 flýtir, 14 klafa, 15 fák, 16 mjó ísræma, 17 bátaskýli, 18 ódrukkin, 19 styrk, 20 nálægð. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kamar, 4 fersk, 7 tekin, 8 ólyst, 9 dár, 11 núll, 13 átta, 14 ágætt, 15 þjór, 17 taða, 20 ris, 22 keyra, 23 orgel, 24 ræddi, 25 gærur. Lóðrétt: 1 kotin, 2 mikil, 3 rönd, 4 flór, 5 reynt, 6 kytra, 10 áræði, 12 lár, 13 átt, 15 þokar, 16 ómynd, 18 angur, 19 allar, 20 rati, 21 sorg. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Rc3 0-0 8. Be2 b6 9. Rc2 Bb7 10. 0-0 Re8 11. Dd2 Rd6 12. f3 f5 13. c5 bxc5 14. Bxc5 Rf7 15. exf5 gxf5 16. f4 d6 17. Be3 e6 18. Had1 a5 19. Bh5 d5 20. Bxf7+ Hxf7 21. Rd4 Df6 22. Df2 Hc8 23. Hfe1 Ba6 24. Rxc6 Hxc6 25. Bd4 Dg6 26. He3 Bxd4 27. Hxd4 Df6 28. He5 Hb7 29. h3 Hc4 30. Hxc4 Bxc4 31. b3 Bd3 32. Dd4 Ba6 Staðan kom upp á Kornax-mótinu, Skákþingi Reykjavíkur 2010, sem fór fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur og lauk í gær, föstudag- inn 29. janúar. Ingvar Þór Jóhann- esson (2.330) hafði hvítt gegn Eiríki K. Björnssyni (2.025). 33. Rxd5! exd5 34. He8+ Kg7 35. Hg8+! og svartur gafst upp enda drottningin að falla í valinn. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Óþægileg tvíræðni. Norður ♠D962 ♥KG109 ♦K92 ♣93 Vestur Austur ♠8 ♠4 ♥7653 ♥842 ♦G105 ♦ÁD764 ♣KG1085 ♣ÁD62 Suður ♠ÁKG10753 ♥ÁD ♦83 ♣74 Suður spilar 4♠. „Ofan af röð og hærra með tvíspil.“ Út um allan hinn siðmenntaða brids- heim eru þetta reglur sem spilarar hafa í heiðri. Enda hafa þær dugað vel. Nema reyndar í einni stöðu – þegar það orkar tvímælis hvort út- spilið sé „ofan af röð“ eða „hærra frá tvíspili“. Bridshátíð hófst á Hótel Loftleiðum á miðvikudaginn með upphitunarmóti, svokölluðu Stjörnustríði. Þar spilaði allur salurinn 4♠, yfirleitt með ♦G út. Það reyndist víða erfitt að hirða strax varnarslagina fjóra. Ef sagnhafi setur upp ♦K, drepur austur og tekur ♦D. En hvar er tían? Það veit austur ekki. Hann gæti reynt að afla sér upplýs- inga með ♣Á, en vestur er varla í að- stöðu til að leysa málið. Vestur á vissulega ♣K, en líka ♦10. Hann veit ekki hvað hann vill. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Eyddu ekki tíma þínum eða orku í að sannfæra aðra um að þú sért að gera rétt, þú ert viss, annað skiptir ekki máli. (20. apríl - 20. maí)  Naut Láttu það ekki draga úr þér kjark þótt einhver þér eldri og reyndari reyni að fá þig ofan af því sem þú ætlar þér. Farðu varlega í umferðinni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er fleira um að hugsa en veraldleg verðmæti. Vinur er í þeirri stöðu að geta tekið skref fram á við í sambandi sem skiptir hann máli. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það sem var einskis nýtt í gær er verðmætt í dag. Minnimáttar fá upp- reisn æru. Útivistin hefur setið á hak- anum of lengi. Skelltu þér í gönguskóna, úlpu og húfu og leggðu af stað. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Vinur gæti rétt þér hjálparhönd við flutninga. Sýndu kjark og prófaðu þig áfram, öðruvísi kemstu ekki að niður- stöðu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Oft var þörf en nú er nauðsyn að þú gerir ráðstafanir varðandi framtíðina. Væntanlegar breytingar í einkalífinu taka á en þú jafnar þig fljótt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur haft svo mikið á þinni könnu að undanförnu að þú hefur verið við það að kikna, haltu þér á jákvæðu nótunum, þá kemstu í gegnum þetta. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú býrð yfir óvenjumiklum styrk þessa dagana. Vertu sátt/ur við sjálfa/n þig – þú ert farin/n að sjá fyrir endann á verkefni sem þú glímir við. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þótt það sé freistandi að halda friðinn og verða við kröfum ann- arra er það ekki rétta lausnin til fram- búðar. Líttu á björtu hliðarnar og vertu jákvæð/ur. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það skiptir öllu í samstarfi að menn virði skoðanir hver annars og nái samkomulagi um það sem máli skiptir. Oft skilur fólk ekki fyrr en það hefur misst heilsuna að hún skiptir öllu máli. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Minniháttar árekstur getur leitt til margskonar erfiðleika ef þú tek- ur ekki strax af skarið og leysir málið. Að vera sparsamur er dyggð. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þegar einhver nálgast þig í mikilli neyð reynirðu af öllu afli að bregðast við á réttan hátt. Fylgdu sannfæringu þinni fyrst og fremst í viðkvæmu máli. Stjörnuspá 30. janúar 1971 Frost mældist 19,7 stig í Reykjavík, hið mesta síðan 1918. Þennan sama dag var frostið 25,7 stig á Hólmi, skammt fyrir utan bæinn. 30. janúar 1988 Listasafn Íslands var opnað í nýjum húsakynnum við Frí- kirkjuveg í Reykjavík. Safnið var stofnað árið 1884 og hafði verið í húsi Þjóðminjasafnsins frá 1951. 30. janúar 2003 Jón Kristjánsson, settur um- hverfisráðherra, birti úrskurð sinn um miðlunarlón á Norð- lingaöldu sem fól í sér að frið- lýst svæði við Þjórsárver var óskert. „Umtalsverður sigur fyrir málstað náttúruverndar- sinna,“ sagði Morgunblaðið. 30. janúar 2007 Tilkynnt var að hagnaður Glitnis, Kaupþings, Lands- bankans og Straums-Burðar- áss árið áður hefði numið 209 milljörðum króna, sem var met. Þetta samsvaraði 686 þús- und krónum á hvern Íslending. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Teitur Jónas- son, forstjóri Teits hóp- ferðabíla ehf., verður áttræður á morgun, 31. janúar. Hann og eiginkona hans, Ástbjörg Hall- dórsdóttir, verða að heiman á afmælisdaginn. 80 ára AFMÆLISBARN dagsins, Guðmunda Kristín Elí- asdóttir, ætlar að hafa það náðugt heima hjá sér í faðmi fjölskyldunnar, en hún fyllir fjórða tuginn í dag. „Við ætlum að taka því rólega heima, en svo ætlum við út að borða um kvöldið með börnunum,“ segir hún. Guðmunda segir fjölskylduna ekki mjög fast- heldna á hefðir og siði á afmælisdögum, það sé spilað eftir eyranu hverju sinni eftir aðstæðum og staðsetningu fjölskyldufólksins. Sjálf hafi hún ekki haldið ærlega upp á afmælið síðan hún varð tuttugu og fimm ára. Guðmunda er sem stendur í barneignarleyfi, en hún og eiginmaður hennar, Friðrik Óttar Friðriksson arkitekt, eiga þrjú börn. Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn er drengur sem verður eins árs gamall á þessu ári en fyrir eiga þau hjónin tvær dætur, þá eldri tólf ára og þá yngri sjö ára gamla. Með vorinu stefnir Guðmunda á að ljúka námi í rekstrar- og við- skiptafræði frá Endurmenntun HÍ, en fyrir er hún með BA-gráðu í fé- lagsfræði frá Háskóla Íslands. Eftir útskriftina tekur svo atvinnuleit- in við. onundur@mbl.is Guðmunda Elíasdóttir er fertug í dag Rólegur fjölskyldudagur Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Ísafjörður Sonur Jóhönnu Fylkisdóttur og Samúels Orra Stefánssonar fædd- ist 4. janúar kl. 7.14. Hann vó 3.640 g og var 51 cm langur. Halldór Krist- jánsson, bóndi Stíflisdal í Þing- vallasveit, er sex- tugur á morgun, 31. janúar. Hann bjó og starfaði á Reynivöllum í Kjós til 1977 er hann fluttist í Stíflisdal ásamt konu sinni Guðrúnu Kristinsdóttur. Halldór er mikill áhugamaður um sauðfjárrækt. 60 ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.