Morgunblaðið - 30.01.2010, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 30.01.2010, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is STYTTING hringvegarins á vest- anverðu Norðurlandi með gerð svonefndrar Svínavatnsleiðar gæti verið með arðsamari vegafram- kvæmdum á landsbyggðinni. Þetta er mat Sigbjörns Nökkva Björns- sonar, sem fjallar um arðsemi nokkurra mögulegra vegastyttinga í lokaverkefni sínu í bygginga- tæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Sigbjörn Nökkvi skoðaði mögu- lega vegstyttingu í Hrútafirði, á Vindheimaleið í Skagafirðinum og svo þrjár útgáfur af styttingu veg- arins um Svínavatnsleið. Mældist arðsemi framkvæmdanna 20,8% þar sem mest var, og er það Svína- vatnsleið 1 sem styttir hringveginn um 12,6 km með lagningu 16,7 km langs vegakafla. Við arðsemismatið var einkum horft til stofnkostnaðar og rekstr- arkostnaðar mannvirkis, aksturs- og tímasparnaðar í umferðinni, sem og aukins umferðaröryggis. „Aksturs- og tímakostnaðurinn vegur þarna þyngst á meðan erf- iðast er að meta arðinn af fækkun slysa, enda eru sumir hlutir þannig að þeir verða einfaldlega ekki metnir til fjár,“ segir Sigbjörn Nökkvi. Íbúar Blönduóss ekki sáttir Útreikningar á arðsemi mögu- legra Svínavatnsleiða byggja á ve- galínum sem þegar hafa verið hannaðar af Leið ehf. og Vegagerð- inni, en verið er að leggja lokahönd á fjögurra ára samgönguáætlun og aðalskipulag fyrir annars vegar Bönduósbæ og svo Húnavatns- hrepp, sem Svínavatnsleiðin myndi liggja um. Hefur Blönduósbær sett sig á móti hugmyndunum um flutn- ing hringvegarins, en Húnavatns- hreppur ekki útilokað að gera megi ráð fyrir þessari leið. Sigbjörn Nökkvi segir viðbrögð íbúa Blönduóss skiljanleg, enda verði bærinn þá ekki lengur við hring- veginn. „Mín hugmynd er hins veg- ar sú að arðurinn sem komi til af þessari framkvæmd verði notaður til að byggja upp samfélag og fjölga störfum á Blönduósi.“ Framkvæmdin sé ekki dýr og gott væri að koma henni í gang nú þegar svo mikil lægð er í öllum framkvæmdum. „Ég held líka að það sé óhætt að fullyrða að það séu ekki margar framkvæmdir á land- inu, að höfuðborgarsvæðinu und- anskildu, sem fara upp fyrir þessar arðsemiskröfur,“ segir Sigbjörn Nökkvi. Með arðsamari framkvæmdum Útreikningar benda til 20,8% arðsemi af Svínavatnsleið Svínavatnsleið Ný veglína 1 Ný veglína 2 Ný veglína 3 Vegir sem tengjast Svínavatnsleið Þjóðvegur 1 Blönduós Svínavatn 731. Svínvetningabraut 728.Auðkúluvegur 724.Reykjabraut Auðkúla H ún af jö rð ur Laxárvatn LANGIDALUR Blanda Ti lR ey kj av ík ur Til Akureyrar STAÐREYNDIR »Blönduósbær og Húna-vatnshreppur boða til al- mennra íbúafunda eftir helgina, þar sem fjalla á um tillögur að aðalskipulagi sveit- arfélaganna árin 2010-2022. »Fundur Húnavatnshreppsverður í Húnavallaskóla mánudagskvöldið 1. febrúar kl. 20. Fundur Blönduósbæjar verður á Hótel Blönduósi á þriðjudag kl. 17. BROT 394 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á miðvikudag og fimmtudag. Fylgst var með öku- tækjum sem ekið var eftir Hring- braut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á 28 klukkustundum fóru 19.307 ökutæki þessa aksturs- leið og því óku um 2% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Með- alhraði hinna brotlegu var 75 km/ klst. en þarna er 60 km hámarks- hraði. Þá óku 57 ökumenn á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113 km/klst. Morgunblaðið/Júlíus. Brot 394 ökumanna mynduð af lögreglu VERIÐ er að undirbúa auglýs- ingar á stöðum fimm héraðs- dómara og jafn- margra aðstoð- armanna. Ragna Árnadóttir, dóms- og mann- réttind- aráðherra, segir að gert sé ráð fyrir að stöðurnar verði auglýstar innan skamms. Í nóvember sl. lagði Ragna til að héraðsdómurum yrði fjölgað um fimm og aðstoðarmönnum þeirra einnig. Kostnaður vegna þessa er metinn 90 milljónir. Mikið álag er á héraðsdómum sem ráða á tíðum ekki við aukinn fjölda mála. Í haust felldi Hæstirétt- ur t.d. úr gildi gæsluvarðhalds- úrskurð yfir dæmdum nauðgara þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði ekki skilað gögnum í tæka tíð. hlynurorri@mbl.is Bráðum auglýst eft- ir héraðsdómurum Ragna Árnadóttir STOFNAÐ var í gær opinbert hlutafélag um sameinaðan rekstur opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkur- flugvallar. Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins og er Þórólfur Árnason nýr formaður hennar. Nafn hins nýja félags hefur ekki verið ákveð- ið ennþá en heiti þess í upphafi er Flug-Kef ohf. Aðrir í stjórninni eru Arngrímur Jóhannsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Arnbjörg Sveins- dóttir, Ásta Rut Jónasdóttir, Ragn- ar Óskarsson og Jón Norðfjörð. Tilgangur hins nýja félags er að reka alla flugvelli landsins og sjá um uppbyggingu þeirra. Þórólfur stjórnar- formaður Þórólfur Árnason Eftir Andra Karl andri@mbl.is SALA á tóbaki hjá Áfengis- og tók- baksverslun ríkisins tók mikinn kipp í desember sl. og ekki síst síð- ustu daga ársins. Auðséð er, að auknar álögur sem lagðar voru á tóbak 1. janúar sl. spiluðu stórt hlut- verk í sölukippnum og ljóst að smá- salar margir hverjir birgðu sig upp af tóbaki. Samkvæmt óvísindalegri könnun Morgunblaðsins hækkuðu þeir engu að síður verð á vindling- um þegar á fyrstu dögum nýs árs. Rúmlega sex prósenta samdrátt- ur var í sölu ÁTVR á vindlingum til smásala á síðasta ári. Frá janúar til loka nóvember mældist átta pró- senta samdráttur en salan í desem- ber var ekki í neinum takti við það tímabil. Um þrettán prósenta sölu- aukning var í mánuðinum miðað við sama mánuð ári áður, 157 þúsund karton af vindlingum seldust og merkjanleg aukning var í síðari hluta mánaðarins. Í desember 2008 seldust hins vegar 139 þúsund kart- on. Frjáls álagning Ótækt er að fullyrða að allir sölu- menn tóbaks hafi birgt sig upp og hækkað álagningu, en víst þykir að vindlingar hafi hækkað á flestum sölustöðum. „Það er frjáls álagning á Íslandi, þannig að það er ekkert sem bannar slíkt,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna. „En ég hélt reyndar að verslanir sem birgja sig upp á þenn- an hátt fyrir hækkanir væru að því til að standa sig betur í samkeppni.“ Jóhannes segir að ef smásalar geti leikið þennan leik, þ.e. að birgja sig upp og hækka verð um leið og álögur hækka hljóti það að vekja spurningar um samkeppni. „Er ekki virk samkeppni milli smásala með þessa tilteknu vöru?“ Jóhannes seg- ist hins vegar ekki vilja um það spá. Mikil verðhækkun Þegar verðþróun á einum pakka af Winston-vindlingum er skoðuð, á vef Hagstofunnar, kemur í ljós að í febrúar 2008 greiddi reykingarmað- ur um sex hundruð krónur. Pakkinn hækkaði um sjötíu krónur áður en 2009 leit dagsins ljós, og í febrúar 2009 hafði hann hækkað enn meira; kostaði þá 722 krónur. Á árinu 2009 hafa orðið miklar hækkanir á verði tóbaks. Í ágúst var verðið á Winston-pakka komið upp í 834 krónur og í nóvember 843 krón- ur. Almennt verð í óvísindalegri könnun Morgunblaðsins sem fram fór í gær var 895 krónur. Taka ber fram að hægt var að finna mun lægra verð, og það lægsta á sölustað í Hafnarfirði, 834 krónur. Birgðu sig upp af tób- aki og hækkuðu verð Sala ÁTVR á tóbaki jókst um 13% í desember síðastliðnum Morgunblaðið/Golli Reykingar Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs var 8% samdráttur í sölu ÁTVR á vindlingum. Í desember jókst salan hins vegar um 13% miðað við fyrra ár. • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Meiri verðlækkun 50-70% afsláttur www.rita.is Ný sending Svartar gallabuxur frá PAS str. 36-56 Eddufelli 2, sími 557 1730 Opið laugardag kl. 10-14 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Opið laugardag kl. 10-16 Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-16 ÚTSALA 20-50% afsláttur Úlpur - kápur - jakkar - peysur MÖGNUÐ ÚTSALA NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Skoðið sýnishornin á laxdal.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.