Morgunblaðið - 30.01.2010, Síða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
DEILDAR meiningar eru um op-
inbert nafn á nýjum vegi sem tengir
saman Reykhólasveit og Strandir og
tekinn var í notkun síðasta haust.
Vegurinn liggur úr Gautsdal í Reyk-
hólasveit og þar upp á svonefnda
Þröskulda sem eru hæsti punkt-
urinn á leiðinni. Þar hallar undan og
þá er ekið um Arnkötludal niður í
Steingrímsfjörð.
„Ég er ekki sáttur við nafnið,“
segir Matthías Lýðsson, svæðisleið-
sögumaður og bóndi í Húsavík á
Ströndum, í samtali við Morg-
unblaðið. Hann telur eðlilegast að
vegir séu kenndir við dali, jarðir eða
bæi eins og hefðin sé. Vegurinn nýi
liggi að stærstum hluta um lönd
jarðarinnar Arnkötludals á Strönd-
um og því hefði verið eðlilegast að
nafngiftin tæki mið af því.
Máta nokkur nöfn
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir
nafngiftir á vegum velþekkt ágrein-
ingsefni þar sem mismunandi sjón-
armið heimamanna mætist. Hann
segir að í sjálfu sér hafi ekki verið
tekin nein sérstök ákvörðun um nafn
á nýja veginum vestra. Ákveðið hafi
verið að máta nokkur nöfn og sé
Þröskuldar eitt þeirra. Reynslan
verði svo að leiða í ljós hvernig
heimamönnum og öðrum líki.
Þeir sem annist þjónustu við veg-
inn telji nafngiftina við hæfi, því það
sé einmitt á Þröskuldum sem færð
geti orðið torveldust. Þar sé einnig
veðurstöðin á leiðinni og því eðlilegt
þegar gefnar eru upplýsingar um
færð og veður þar. Nýi vegurinn í
heild sé hins vegar hluti af Djúpvegi
um Gautsdal, Þröskulda og Arn-
kötludal og ef út í það fari megi nota
viðeigandi örnefni eftir því hvaða
hluta vegarins átt er við hverju
sinni.
Merkingin er neikvæð
„Almenn merking kennileitisins
Þröskuldar er fremur neikvæð. Vís-
ar til þess að vegurinn nýi geti verið
torleiði sem alls ekki er raunin,
nema þá í verstu vetrarverðum. Mér
finnast það ákveðin rök gegn nafn-
giftinni. Ef á hins vegar að beita
þeirri reglu að kenna veg við hæsta
punkt eða staðsetningu veð-
urstöðvar þá myndi vegurinn um
Steingrímsfjarðarheiði fá nafnið
Sæluhúsahæð á Djúpvegi og svo
framvegis,“ segir Matthías Lýðsson
sem tekur fram að vegurinn nýi sé
mikil samgöngubót og renni styrk-
um stoðum undir byggð á Ströndum.
Ljósmynd/Vegagerðin-G.Pétur
Vígsla Nýi vegurinn um Þröskulda þykir góður en nafnið er umdeilt.
Þræta um Þröskulda
Í HNOTSKURN
» Vegurinn um Gautsdal ogArnkötludal milli Reyk-
hólasveitar og Stranda verður
kenndur við Þröskulda.
» Svæðisleiðsögumaður áStröndum er ósáttur. Tel-
ur nafngiftina hljóma nei-
kvætt og ekki eigi að miða við
hæsta hjalla á leiðinni.
Deilt um nafn á nýjum vegi Strandamenn vilja kenna
veginn við Arnkötludal Þröskuldar, segir Vegagerðin
Muniðeftir
launamiðunum!
!
"# $
!
#%
&
'(
( )
*
+ %,
-
( )
.
/
0
0
(
1
2
'
.
& 0
0
0
1
*.
*!
4
* *.
5
(
+
3
'
3
3
(
6
. 6
0
&
. (
7
.0 4
(.
9
!"
!
&
3
-.(
:
, /
;
3
1
49
<1
9&
5=
;>
4
<5
?@
@A
'
Jón
a J
ón
sdó
ttir
Rim
a 2
4
112
Re
ykj
aví
k
21
02
72
-22
29
1.9
67
.04
3
78
.68
4
860
39
.34
0
86
0
1.9
67
.04
3
27
4.6
70
Launamiðar og verktakamiðar
Bifreiðahlunnindamiðar
Hlutafjármiðar
Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi
Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit
Greiðslumiðar – leiga eða afnot
Viðskipti með hlutabréf
Ýmis lán til einstaklinga
Stofnsjóðsmiðar
Bankainnstæður
Launaframtal
Skilafrestur á eftirtöldum gögnum
á rafrænu formi vegna framtalsgerðar 2010
er til 10. febrúar 2010
Nánari upplýsingar eru á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is
Til leigu er hagabeit undir Úlfarsfelli. Landið skiptist í þrjú
beitarhólf, 14–20 hektara hvert. Á vef Reykjavíkurborgar eru
nánari upplýsingar aðgengilegar, m.a. samningsdrög
fyrir umrædda eign ásamt afmörkun á loftmynd.
Áhugasömum er bent á vefslóðina www.reykjavik.is/fer
og netfangið olafur.i.halldorsson@reykjavik.is
Til leigu
Hagabeit við Úlfarsfell
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı Þjónustuver 411 1111
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„BEITAN hefur reynst ágætlega,“
segir Pétur H. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík,
um kyrrahafssardínu sem reynd var
á tveimur skipum fyrirtækisins á
dögunum. Um 25 tonn voru flutt inn
til reynslu og von er á um 270 tonn-
um til viðbótar og eru þau líka seld.
Þórleifur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Tobis ehf., hefur flutt
in beitu í mörg ár. Hann segir að á
sjávarútvegssýningunni í Boston í
fyrra hafi hann hitt stærsta beitu-
framleiðandann í Bandaríkjunum og
hann hafi sagt sér að Japanir notuðu
stöðugt meira af kyrrahafssardínu í
beitu með góðum árangri. Hún sé
feitust og með mestu átuna í sept-
ember og hann hafi því pantað einn
gám, um 25 tonn, af sardínu sem var
veidd í september. Sendingin hafi
komið til landsins um áramót, fiskað
mjög vel og selst upp undir eins.
Pétur H. Pálsson segir að búið sé
að prófa litla skammta og beðið sé
eftir stærri skömmtum til þess að
reyna beituna enn betur, sér-
staklega í meira dýpi en áður.
Um 270 tonn á leiðinni
„Ég á 10 gáma á leiðinni, um 270
tonn, og öll beitan er seld,“ segir
Þórleifur og bætir við að næsta
sending komi síðan ekki fyrr en í
haust.
Smokkfiskur og kyrrahafssári
hafa verið vinsælir í beitu. Þorleifur
segir að verðið á sáranum hafi rokið
upp úr öllu valdi og telur að sard-
ínan komi í staðinn. Hún virki til
dæmis mjög vel á ýsuna eins og sár-
inn.
Kyrrahafssardínu
beitt á Íslandsmiðum
Beita Kyrrahafssardína er feitust
og með mestu átuna í september.