Morgunblaðið - 30.01.2010, Page 32

Morgunblaðið - 30.01.2010, Page 32
32 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 NÚ ÞEGAR er far- ið að tala um end- urbyggingu þeirra borga á Haítí sem jarðskjálftinn mikli lagði í rúst. Það er ljóst að Haítíbúar munu ekki ráða við það verkefni. Alþjóð- legar stofnanir og Vesturlönd verða að koma til hjálpar og láta í té bæði fjár- hagslega og ekki síður tæknilega aðstoð. Miklu skiptir að skyn- samlega verði að málum staðið í byrjun. Þess vegna hafa Kan- adamenn tekið nokkra forystu í málinu og boðað til ráðstefnu í Montreal nú í þessari viku um hvernig málum verði bezt hagað. Það er ljóst að hundruð verkfræð- inga og arkitekta þarf til að skipu- leggja og hanna nýjar byggingar fljótt og vel og svo verktaka til að byggja þær. Miklu skiptir að verkið verði unnið með hraði svo að hægt verði að bjóða Haítíbúum mann- sæmandi lífsskilyrði sem fyrst. Það er ekki hægt að leggja meiri þján- ingar á vesalings fólkið. Hér á Íslandi eru hundruð verk- fræðinga og arkitekta nánast at- vinnulaus og verktakafyrirtæki í byggingariðnað hafa lítið að gera. Hvernig væri nú að íslenzk stjórn- völd sýndu eitthvert frumkvæði? Reistu höfuðið upp úr Ice- save-sandkassanum. Við eigum mjög hæfa verkfræðinga og arki- tekta sem gætu auð- veldlega tekizt á við þetta verkefni. Við er- um vön að byggja sterkbyggð hús sem þola storma og jarð- skjálfta og eigum góða fagmenn og kunn- áttumenn á því sviði. Ég skora á stjórnvöld að setja sig í samband við Kanadamenn og bjóða fram aðstoð okkar. Það er ekkert auðhlaupið að því fyrir stóru þjóð- irnar að finna þann hóp fagmanna sem þarf til verksins. Hjá þeim eru allir tæknimenn önnum kafnir við sín störf, jafnvel þótt umsvif hafi eitthvað dregizt saman. Hér eru hins vegar til á einu bretti allir þeir tæknimenn sem þörf er á. Tækifæri fyrir íslenzkan byggingariðnað? Eftir Edvarð Júlíus Sólnes Edvarð Júlíus Sólnes »Hvernig væri nú að íslenzk stjórnvöld sýndu eitthvert frum- kvæði? Reistu höfuðið upp úr Icesave-sand- kassanum? Höfundur er prófessor emerítus. TVEIR jarðeðl- isfræðingar á Veð- urstofu Íslands, þeir Tómas Jóhannesson og Halldór Björnsson, rita grein í Mbl. 28.1. sl. undir yfirskriftinni: „Nokkrar staðreyndir um loftslag og lofts- lagsbreytingar.“ Auð- vitað er umræðuefnið hitnun jarðar og ástæð- ur. Er það ekki mest umrædda málið á heimsvísu varðandi veröldina? Og að ungir fræðimenn tjái sig um þetta umdeilda mál er hið ákjósanlegasta. Ritari þessa pistils leyfir sér að gera nokkrar athugasemdir við mun- inn á skoðunum og staðreyndum, en þeir félagar taka fyrir mörg atriði og þar ægir saman staðreyndum og skoðunum, en það hefði verið betra að halda þeim aðskildum svo fræðilegur heiður skaðist ekki. Undir lið 4. segja þeir m.a.: Auðvelt er að meta breyt- ingar í geislunarbúskap sem leiða af auknum styrk gróðurhúsaloftteg- unda.“ Talið er að tvöföldun á styrk CO2 leiði til aukningar á geislun til yf- irborðs upp á um 4 W/m2.“ Þetta er í meira lagi vafasamt enda segja höf- undar það sjálfir með að segja „talið er“. Þetta er hvorki meira né minna en höfuðágreiningurinn og mat á áhrifum koltvíoxíðs er í meira lagi flókið. Og ágreiningurinn byggist á skoðunum og á því ekki heima undir því efni, sem skilja má að séu stað- reyndir að þeirra mati. Þessi varmi eða varmi á fermetra 4 W/m2, sam- svarar u.þ.b. sveiflum í útgeislunarvarma sólar frá um 1800 og byggist það mat á rannsóknum Pulkovo Observatory- rannsóknastöðvarinnar rússnesk-úkraínsku, en stöðin hefur til afnota og upplýsingasöfnunar gervihnött með mjög vönduðum búnaði til ljósmælinga. Skv. grunntölum frá þeim er þessi niðurstaða miklu nær því að vera staðreynd en skoðun og því ábyggi- legri en það sem jarðvísindamenn- irnir tilgreina sem „staðreynd“. Og þetta skiptir höfuðmáli. Ef þetta er rétt er hitnun jarðar, sem nánast eng- inn eða lítill ágreiningur er um, ekki af mannavöldum heldur vegna sveiflna í útgeislun sólar. Og þá fellur allur afgangurinn af málflutningi ungu vísindamannanna og það, sem þeir segja um ráðstefnur og nauðsyn þeirra, eða alla vega þátttöku þeirra sjálfra í þeim. Eftir Jónas Bjarnason Jónas Bjarnason »Ef þetta er rétt, þá er höfuðástæða hitn- unar jarðar, sem nánast enginn eða lítill ágrein- ingur er um, ekki af mannavöldum – heldur útgeislun sólar. Höfundur er efnaverkfræðingur, dr.rer.nat. Munurinn á stað- reyndum og skoðunum um staðreyndirAÐ UND-ANFÖRNU hefurHalldór Jónsson skrifað ótrúlegar greinar í Morg- unblaðið og raunar víðar. Stef þeirra allra er í ata nokkra bæjarfulltrúa Sam- fylkingarinnar í Kópavogi auri og ausa yfir þá hálf- óprenthæfum dylgjum af þeirri einföldu ástæðu að þeir eru að vinna hjá ríki eða sveitarfélögum. Hefur þetta drullukast sér- staklega beinst að þeim bæj- arfulltrúum sem eru skólastjórar í grunnskólum í bænum. Fram að þessu hef ég reynt að leiða þetta svona frekar hjá mér, en grein hans frá 28. janúar er þannig að ekki er hægt að láta henni ósvarað. Halldór heldur því fram að áhugi Hafsteins Karlssonar á bæj- armálum markist af því að hann vilji vera ,,yfirmaður sjálfs sín“ hvað sem sá orðaleppur þýðir. Um leið fullyrðir hann að Hafsteinn hafi ítrekað hunsað fjárhags- áætlun sem skólastjóri. Ekki veit ég hvaðan hann hefur þær upplýs- ingar en hægt er að benda honum á að eftir fullyrðingar í tíð fyrr- verandi bæjarstjóra um gríðarlega yfirkeyrslu í rekstri Salaskóla, sem Hafsteinn veitir forstöðu, var farið ofan í öll fjármál skólanna í Kópavogi. Þá komu í ljós alvar- legar villur í uppgjöri skólanna sem nú hafa verið leiðréttar. Þannig fengu sumir skólar of mikið en aðrir alltof lítið fjár- magn. Upplýsingar um þetta getur Hall- dór fengið t.d. hjá forstöðumanni fræðslusviðs, for- manni skólanefndar eða núverandi bæj- arstjóra. Án þess að hafa haldbærar upp- lýsingar kýs hann að bera á Hafstein stór- fellt brot í opinberu starfi án þess að geta fært fyrir því rök. Hér eru í raun svo alvar- legar og tilhæfulausar ásakanir á ferðinni að Halldór ætti að biðja Hafstein afsökunar og væri hann þá maður að meiri. Halldóri er umhugað um að koma öllum opinberum starfs- mönnum út úr sveitarstjórnum og virðist telja hagsmunatengsl þeirra slík að þeir séu ófærir um að geta unnið með hag bæjarbúa að leiðarljósi. Hann vill að þeir sem sitja í sveitarstjórnum komi úr „einkaframtakinu“. Hver eru þá hagsmunatengsl sveitarstjórn- armanns sem er eigandi verktaka- fyrirtækis sem á í viðskiptum við sveitarfélagið? Hver eru hags- munatengsl sveitarstjórnarmanna sem eiga ættingja eða vini sem vinna ýmis verkefni fyrir millj- ónatugi fyrir bæinn án útboða? Þess má geta að málefni einstakra stofnana bæjarins koma afar sjaldan eða jafnvel aldrei til um- ræðna á vettvangi bæjarstjórnar, sjaldnar en málefni ýmissa verk- taka. Og hvað hefur Halldór um það að segja þegar vinur hans og fyrr- verandi bæjarstjóri ræður hann sjálfan, Halldór Jónsson fyrrver- andi formann fulltrúaráðs flokks- ins í bænum sem eftirlitsmann við ákveðnar framkvæmdir af því ekki virtist vera eftirspurn eftir honum í einkageiranum. Það eru sjálfsögð og eðlileg mannréttindi allra að fá að bjóða sig fram til starfa fyrir sitt sveit- arfélag. Um allt land og í öllum flokkum er fullt af kröftugu fólki sem starfar hjá ríki eða bæ sem nýtir sér þennan rétt sinn sam- félaginu til hagsbóta. Skrif Halldórs voru og eru part- ur af ógeðfelldri aðför að Gunn- steini Sigurðssyni, núverandi bæj- arstjóra, sem ákveðin klíka sjálfstæðismanna í Kópavogi stendur fyrir. Í þeirri aðför er einskis svifist og málflutningurinn oft á tíðum einstaklega ruddalegur og ósmekklegur. Engu virðist skipta hvort hallað er réttu máli, farið með dylgjur eða helber ósannindi til að koma höggi á þá sem ekki tilheyra klíku þeirra. Tími stjórnmála og stjórnmála- manna af þessu tagi er liðinn. Eftir Flosa Eiríksson »Hér eru í raun svo al-varlegar og tilhæfu- lausar ásakanir á ferð- inni að Halldór ætti að biðja Hafstein afsök- unar og væri hann þá maður að meiri. Flosi Eiríksson Höfundur er bæjarfulltrúi og áhuga- maður um þátttökulýðræði. Umgengni Halldórs við sannleikann –– Meira fyrir lesendur Ert þú í tísku? PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 15. FEBRÚAR PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16 mánudaginn 15. febrúar. Best er að panta sem fyrst til að tryggja sér góðan stað í blaðinu! NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað, LIFUN, sem fjallar um Tísku og förðun, föstudaginn 19.febrúar. Í blaðinu verður fjallað um tískuna vorið 2010 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihluti auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O R 48 90 9 1/ 10 MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur Förðun Húðin, krem og meðferð Snyrting Kventíska Herratíska Fylgihlutir Skartgripir Árshátíðatískan Vortískan Og fullt af öðru spennandi efni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.