Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 3
Ingvar Sverrisson.
Ritstjórn
Arnór Gisii Ólafsson.
Sigríður Matthíasdóttir.
Wilhelm Emilsson.
sagnir, takk!
Lauflétt rugl
að auki hefur nafnið að tarna bara gott
af því, það hefur nú gert annað eins við
önnur tilkomulítil nöfn sem í voru landi
þúa. Sú skoðun mín er óhrekjanleg.
Þetta var samt afsökun.
W: Svaka er þetta gáfulegt hjá þér. Þú
hefur ekkert hugsað um að stofna stjórn-
fnálaflokk? Þetta er nú svolítið annað
en ruglið sem veltur upp úr þér dags dag-
*ega. Annars er það ofsalega æðislega
IT'ikið fönn að geta sagt öll orðin sem
maður má absalút ekki nota í íslensku-
ritgerðum.
Mitt slagorð er: Það er betra að vera
ðauður en rauður. Guð forði mér ann-
ars frá annarri eins lágkúru og að lenda
1 stjórnmálaflokki. Það er satt hjá þér
að það er orðin hreinasta kvöl að þurfa
að hripa niður íslenskuritgerðir. Þeim
er hreinlega drekkt í rauðu eins og Pétur
Gunnarsson sagði. Maður skrifar allt
annað mál en maður talar og það hlýtur
að enda með ógæfu. Meira að segja
„maður“ er stranglega bannað og samt
hefur það verið notað í óratíma. Eitt er
víst að þróun sem tekur tíu ár að jafn-
aði tekur tíu sinnum tíu ár í M.R. En
heyrðu Villi, finnst þér ekki hundhelvíti
hart að neyðast til þess að skrifa heilt
skólablað sjálfur eða so gott sem?
W: Auðvitað er það hart. En hugsaðu
um það að þetta er kannski það næsta
sem þú kemst því að teljast rithöfundur.
Þegar þú ert orðinn afi, geturðu sýnt
barnabörnunum að þú varst einu sinni
kúl gæi. Annars er þetta orðið svo alvar-
legt hjá okkur. Heyrðu, ég setti Neil
Young á fóninn (ath. ekki Paul Young,
því þótt hann dansi æðislega þá langar
mig ekki í plötu með honum). Verst að
eiga ekki hvítvín. Áttu kannski smá lögg
einhvers staðar?
A: Sko, þetta sæmir ekki virðulegum
menntskælingum. Við eigum að vera
búnir að hlaupa af okkur hornin (hvaða
horn eiginlega?). Hvað heldurðu að
mamma segi þegar hún les skólablaðið
sem sonur hennar gefur út? Annars
með ’ann Paul Young, þat gæ rilí törns
mí on.
W: Yeah, that guy is really hot.
A: Nú heldur liðið að við séum einhver
frúttkeik, þú getur reitt þig á það. Eig-
um við ekki að fara að slútta þessu áður
en restin af mannorðstetrinu fer í vask-
inn?
OG ÞAR MEÐ LAUK HINNI Ó-
SKÖP VENJULEGU EDITOR DIC-
IT GREIN.
3