Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 13

Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 13
djarfur framan í heiminn og þarf ekki að mæna út um göt á íslenskri ullar- Peysu rétt eins og einhver holdsveikur aumingi. Golan fer um mig mjúkum höndum, kitlar mig létt og ég finn lífið ólga í hverri taug. Ég er loksins orðinn lifandi, ruslið sat eftir á íslandi. Við búum hér við amma í þessu indælis húsi. Það er umkringt af pálmatrjám, sem bjóða upp á þægilega forsælu þegar hitinn er sem mestur. Amma er orðin sólbrún og sælleg og best gæti ég trúað að hún ætti eftir að lifa lengi enn. Það var fyrst í gær, sem hún sagði mér alla sólarsöguna: „Ég sá það strax á þér að þú hafðir framið ránið, þó ég ætti helvíti erfitt með að kyngja því. En ég skreiddist samt þetta upp á loftið, því að mig rámaði í að þú hefðir komið þaðan nóttina sem ég greip þig á næturrjátlinu. Og svei mér þá, ég fann byssuna og peningana. Ég ákvað samstundis að tilkynna lög- reglunni þetta. Nú þú varst heima og ég neyddist því til að hökta þetta á mín- um tveimur jafnseinum, því ekki gat ég hringt með þig vappandi um í íbúð- inni. En fyrst kom ég byssunni og pen- ingunum fyrir á öruggum stað, það held ég nú. Ég vildi ekki að þú gerðir meira af þér, gemsi, nóg var komið af svo góðu. Þegar ég var að skröltast þetta niðrá stöð, ekur þessi sallafíni jeppi framhjá mér, já og rakleiðis oní poll, þannig að gusurnar gengu yfir mig. Ég rétt sá glitta í andlitið á kálfinum sem ók svona eins og bévítans bandítt. Það var hann Hermannsson, Steingrímur heitir hann álfurinn sá. Hann var á þess- um stórglæsilega jeppa. Og þá rann upp fyrir mér ljós. Þú varst barasta að gera það sama og aðrir á þessu guðsvolaða skeri, það held ég nú.“ Og svo fékk hún sér ríflegan skammt í nefið. Teikning: Gréta V. Guðmundsdóttir. — Að skjóta nafni vors ástsæla for- sætisráðherra inn í sögu þessa var gert í vinsemd, enda maðurinn sanngjarn og þjóðinni til sóma. Nafnbirtingin var engu að síður gegn vilja ábyrgðarmanns skólablaðsins og segja má að hann hafi verið svikinn. Af ofangreindu má sjá að birtingin er því á ábyrgð höfundar. A.G.Ó. 13

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.