Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 18

Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 18
Hálfgerð svínastía, það er mín van- máttuga skoðun á kaffistofu nemenda Cösu. Það er helst ef maður er morgun- hress og mæti svona kortér í átta að hægt sé að njóta mjög svo dulinnar feg- urðar hennar. Venjulega á maður í hálf- gerðum vandræðum með að hrasa ekki um tómar kókflöskur eða ávaxtahyrnur sem, þegar líða tekur á morgnana, liggja eins og hráviði út um öll gölf niðrí kjall- ara Cösu. Súr reykjarsvæla, glymjandi diskó- tónlist, andfúlir þriðjubekkingar og aðr- ir mátulega fúlir, og maður á í vand- ræðum með að halda jafnvæginu á hálf- ónýtum stólræflum sem hriktir ætíð i er maður sest á þá. Þrengslin eru svo ógnar geigvænleg að í löngu frímínút- unum sitja raðir af nemendum á sitjand- anum með skítugt gólfið undir ser og þegar spurt er um öskubakka eða eitt- hvað þvíumlíkt þá er svarið venjulega: Notaðu bara þennan stóra, gráa. Kakósalan athafnar sig í þröngum í- iöngum „skáp“ og þegar um það bil 300 manns æða niður í sæluna í löngu frí- mínútunum er venjan sú að flestir fá ekki afgreiðslu fyrr en hringt er inn í tíma litlu kortéri seinna. Og þeir „heppnu“ sem ná að komast að gler- búrinu geta síðan átt fuílt í fangi með að halda jafnvægi með kaffibolla, rúnn- stykki — eða eitthvað annað í höndun- um þegar þeir reyna að troðast í gegn- um þvöguna í leit að auðu sæti í básun- um eða lausu plássi á gólfinu. Helst þarf maður að vera hálærður í þjónaskól- anum til að komast óskaddaður í gegn- um nemendagerið. Annars skiptir litlu máli þó kaffið hellist niður því að það er svo óttalegt glundur að ég skil ekki að nokkur maður geti drukkið það (en það er víst fullt af emmerringum sem drekka það). Að vísu er ónefndur kostur við kakósöluna að vörurnar eru ódýrar og auðvelt að fá lán fyrir þeim hjá vinum og kunningjum. Svo eru það nú salernin, hvað er nú hægt að segja um þau. Að minnsta kosti var þar umhorfs um daginn eins og hálf- ur blindraskólinn hefði verið leiddur þar inn og látinn sinna kalli náttúrunn- ar á sinn sjónlausa hátt. Sumir eru nefni- lega svo vanþróaðir að í stað þess að míga ofan í hugvitsamlegar pissuskálan- ar eða blessuð klósettin, þá þeyta þeir þvagi sínu bara í þær grunlausu áttir sem þeim líkar best. Nú, ég er hreinlát- ur maður og kýs að þvo hendur mínar eins oft á dag og ég get, þó lítið verði af efndunum. En það furðulega er að síð- an í haust þá hef ég ekki komist í tæri við aðrar sápur en grænt, grjóthart sápustykki sem liggur á einum vaskanna. Endilega að versla nýja sápu áður en sú gamla verður að steingervingi. (Ég hef annars lúmskan grun um að ekki sé allt með felldu hvað varðar sápukaup skól- ans, en ætla þó ekki að fara út í þá vafa- sömu og viðkvæmu sálma). Forláta flygill, var ei lengur er, prýðir Cösu og er hann brúkaður til margs. Auk þess að spilaglaðir en misfingra- fimir nemendur leiki sér stundum að hvítu og svörtu nótunum með mjög svo misjöfnum árangri, þá er hann notaður sem legubekkur fyrir fjóra og sem einn allsherjar öskubakki fyrir þá sem finnst það röffaðra að svíða örlítið brúnan viðinn í stað þess að halda sig við gömlu aðferðina (að drepa i stubbunum á gólf- inu). En sú gyðingabúlla sem rekin er af fimmta bekk fáeinum skrefum frá kakósölunni er eitt það furðulegasta fyr- irbæri sem fyrirfinnst að mínu mati niðrí kjallara Cösu. Þar er gos og annað sælgæti selt fátækum námsmönnum eins og þeir hefðu nýframið rán uppí Landsbanka. Lífsnauðsynjar eins og sígarettur eru seldar fyrir offjár og það mætti halda að hassolíu væri troðið í þær. Helst reynir maður að draga at- hygli bólugröfnu sjoppumæranna frá sígarettunum sem er geymdar undir „búðarborðinu“ og nappa síðan nokkr- um þegar þær snúa bakinu í mann. Er þær snúa sér síðan við og spyrja ger- samlega empty headed hvað maður vilji þá er þjófslundin orðin að kirkjulegu sakleysi og maður biður varfærnislega um einn grænan brjóstsykur. 18

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.