Skólablaðið - 01.03.1984, Page 6
Quid novi?
Klósettekla í M.R.
Ónafngreindur heiðursmaður af einni
„bestu ætt“ landsins tók sig til, eftir
festivalið í Gamla Bíói og meig hraust-
lega utan í bifreið Bjarna enskukennara,
þar sem hún stóð varnarlaus á bílastæði
M.R. Tók pisseríið dágóða stund, enda
maðurinn búinn að safna lengi. Og svo
er hundahald bannað.
Andrés Magnússon rokkarinn frægi,
sem nú hefur verið ráðinn við Rás 2,
virðist vera ungur maður á framabraut,
því þegar Guðni rektor frétti um ráðn-
ingu hans ákvað hann að láta ekki sitt
eftir liggja. Er Andrés nú fastráðinn
sem nemandi við M.R. ævilangt.
í öllum skólablöðum sem við munum
eftir hafa verið birt einhver soraskrif
um mann sem við öll þekkjum og lítum
upp til. En nú gengur það ekki lengur
að húmorslausar ritnefndir slái sér upp
á því að skrifa óhróður um menn sem
ekki geta varið sig. Semsagt Egill „Ele-
phant Man“ Þorfinnsson, þú sleppur
núna...
Allt til þessa dags hefur það verið föst
venja að skólablaðið birti eitthvað ofsa
sniðugt um þriðjubekkinga. En einhvers
staðar lásum við svohljóðandi gullkorn:
„Eina reglan er sú að það eru engar regl-
ur.“ Þess vegna verður ekki gerð tilraun
til þess að grilla þriðjubekkinga í þess-
ari grein. Það er aftur á móti engin trygg-
ing fyrir því að það verði ekki gert í
þeirri næstu. (Það er alveg satt hjá þér,
þetta er óttalega þunnur brandari.)
Gjaldkeri ritnefndar eftir uppgjörið.
Ef einhverjum skyldi detta í hug að
undirritaðir séu oggulítið rauðir, þá
viljum við barasta tilkynna honum að
so er ekki. Hins vegar erum við orðnir
hundhelvítileiðir á lífsseigum frímanns-
sneplum, nýjum skólum og öðrum slík-
um viðbjóði, þannig að okkur fannst
tími til kominn að þeirri óhollu einokun
væri aflétt.
A.G.Ó., I.S., W.E.
6