Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 7
Inspector scholae, engilbert frama-
gosason, er ungur (?) maður á ofsa
hraðri „uppleið“. Stundar hann nám
sitt af ógnarkappi og gegnir um leið
sínu mikilvæga embætti af stakri prúð-
•ttennsku. Eins og öllum sönnum gáfu-
ntönnum hæfir (t.d. vorum „háttvirtu
alþingismönnum“) er hann soldið fyrir
bað gefinn að hafa vit fyrir öðru fólki.
Ögeðslega laumuleg aðför hans að toll-
eringum við M.R. er gott dæmi um slík
vinnubrögð. Held ég að menn hljóti að
vera orðnir hundleiðir á slíkum mönn-
um, enda sextíu eintök af þess háttar
fígúrum á Alþingi. Hins vegar er allt
gott um inspectorinn að segja og ill-
mögulegt að gera grín að honum í Quid
Novi — svo streit er hann.
Hlynur kríp er hoblaust fyrirbæri,
enda er hann einn af brandaraköllum
framtiðarinnar (ath. hann er brandar-
inn). Hver veit hvers konar perverta-
drauma hann elur í brjósti sér? Þó dást
menn almennt að ræðusnilld hans. Ræð-
ur hans eru mjög ferskar og nýstárleg-
ar, jaðra stundum við að vera bylting-
arkenndar. Forðast hann rótgróinn M.
R.-húmor af miklum móð og tilvitnanir
í afgamla jálka eru honum eitur í bein-
um. Er hann skærasta von okkar M.R.-
inga. Verst að inspektor þarf að vera úr
fimmta bekk. Óskar ritnefnd Hlyni vel-
farnaðar á þeirri áhugaverðu braut sem
hann er að leggja út á — það hafa engin
fífl farið út á hana áður — eða hvað?
Þar sem ekki var búið að kjósa in-
spektor áður en blaðið fór í prentun,
vill ritnefnd koma eftirfarandi athuga-
semd á framfæri: Sá frambjóðandi sem
ekki náði kosningu hefði átt að vera
kosinn og sá sem var kosinn er óhæfur.
(Fyrir þá sem skildu þessa grein ekki,
skal þess getið að hún gefur það til kynna
að ritnefnd sé á móti öllu, einungis til
þess að vera á móti. Þetta var gert með
ráðnum hug og til þess að stuða M.R-
inga, því að þessi stofnun og ekki síst
fólkið innan hennar er í óhugnanlega
föstum skorðum. Ég er viss um að 90%
M.R.-inga stimplar ritnefndina komma
einungis vegna þess að forsíðan er rauð.
Fólk tengir ákveðinn lit ákveðinni stefnu.
Ef aðeins einn nemandi hefur áttað sig
á því að það er varasamt að hugsa eftir
ákveðnum reglum er tilgangi okkar náð.
Undirritaður vill ekki tengja nafn sitt
ákveðinni stjórnmálastefnu eins og
flokkarnir eru í dag. Sá dagur mun e.t.v.
renna að ég geti tilkynnt með stolti að
ég tilheyri einhverjum flokki. En á með-
an svo er ekki get ég ekki annað en virt
það fólk sem starfar í stjórnmálasam-
tökum, fullvisst um að það sé að bjarga
heiminum.
W.E.
í framhaldi af greininni að ofan, og
til þess að undirstrika það að ritnefnd
er ekki bara samansafn af niðurrifs-
mönnum og ábyrgðarlausum brandara-
köllum, lýsum við því hér með yfir að
Anna K. Jónsdóttir hefði átt að verða
næsti inspektor. En M.R.-lýður hefur
því miður verið þekktur fyrir það að
kjósa streit og hundleiðinlega gaura í
öll embætti.
7