Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1984, Qupperneq 22

Skólablaðið - 01.03.1984, Qupperneq 22
Ríddarínn Hvítar, stórar snjóflygsurnar þustu að úr öllum áttum. Norðangarrinn, bit- ur og miskunnarlaus, þaut í öllu, lifandi sem dauðu. Það ýlfraði og hvein í hon- um eins og soltnum úlfi. Hvergi sást eða heyrðist til mannaferða þar til dauft hófatak heyrðist í fjarska. Það var vart greinanlegt fyrir gnauði vindsins. En smátt og smátt komu útlínur hests og manns í ljós. Hesturinn var háfættur og tignarlegur. Hann var hvítur líkt og mjöllin sem þyrlaðist upp við hvert hófa- íak hans. Maðurinn virtist vera riddari. Hann var íklæddur brynju, með íburð- armikinn hjálm á höfði og sverð sér við hlið. Hesturinn brokkaði eftir auðninni. Ekki sást út úr augum; stormurinn var að ágerast. Eftir nokkurra tíma ferð blasti við sjónum gríðarmikil hvít höll. Úr glugg- um hennar lýsti dularfullri birtu. Gul- hvítt skinið lýsti upp tröppur og stíg sem lá frá höllinni. Stígurinn var skreyttur ískristöllum sem glömpuðu dauft í hríð- inni. Sólmundur leit sem snöggvast á gamla skólann í gegnum kófið. Svo ók hann bak við skólahúsið og iagði hvita Mitsubishinum rétt við Cösu. Á enni hans og efri vör giampaði á svitaperlur. Hendurnar titruðu þegar hann drap á bílnum. Dauft véiarhljóðið hætti skyndi- iega, iíkt og raddbönd bílsins hefðu ver- ið slitin í sundur. Sólmundur sat í rauðu vinylsætinu nokkra stund og augun flöktu ýmist frá mælaborðinu eða út í hríðina. Hann sá skugga hreyfast til hægri og vinstri. Hann vissi að þetta var fóik að fara í próf eins og hann. Sígarettan titraði lítið eitt í munnviki hans. Hann sogaði reykinn ofan í lung- un einu sinni í viðbót, svo drap hann í henni í útdregnum öskubakkanum. Hann var orðinn kófsveittur innan í svarta Gefjunarfrakkanum og skyrtan límdist við hann eins og flugnapappír. Sólmundur leit á klukkuna. Fjórar mín- útur. Hann fann boðin berast hratt til heilans og svo hríslast hægt niður bak- ið, í það skiptið í formi ískalds svita. Með fálmkenndu handtaki opnaði hann bílhurðina og smeygði sér út. Hann horfði enn um stund á skuggana sem iiðu áfram líkt og vofur. Loks tók hann á sig rögg og gekk óstyrkum skrefum að Cösu. Þegar hann tók í hurðarhún- inn fann hann nistingskuldann berast með taugakerfinu upp í endastöðina. Hann opnaði dyrnar og gekk inn. Á leið- inni brá kunnuglegum andlitum fyrir: Systa, Katrín, Sigurgeir, Haukur sögu- kennari. Hann heilsaði ekki neinum, heldur gekk vélrænt niður í kjallara Cösu. Þar var allt fullt af krökkum. Innilokunarkenndin fór að gera vart við sig og ælubragð kom upp í munninn á honum. Hann ieit flóttalega til klósett- hurðanna með löngunarfullu og eigin- lega þurfandi augnaráði. Enginn tími. Hann sá allt í grábleikri móðu eitt and- artak en jafnaði sig aftur. Maginn var þungur sem grjót. Honum varð óglatt og það byrjaði að suða í eyrunum eins og þúsundir býflugna væru einhvers staðar á sveimi í galtómu höfðinu. Hon- um fannst allir þrengja að sér úr öllum áttum. Allir vildu kreista vitglóruna úr honum líkt og tannkrem úr túpu. Hann leit með brjálæðislegri örvæntingu yfir hópinn eins og maður sem er að drukkna og kemur í þriðja og síðasta skiptið upp á yfirborðið. Svitaholurnar urðu að stórum hellismunnum sem stórfljót foss- aði úr, heitt og þrúgandi eins og blóð. 22

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.