Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.03.1984, Side 39

Skólablaðið - 01.03.1984, Side 39
Ritnefnd: Hvað segirðu Óli, ertu ekki til í smá viðtal? Ólafur: Voruð þið kosin í ritnefnd??? Ja, svei mér þá ef ungdómurinn í dag er ekki á niðurleið. R: Tja, við vorum eiginlega sjálf- kjörin. Ó: Það hlaut líka að vera. En hvað vor- ttð þið að segja? R: Okkur bráðvantar þig í viðtal. ó: Eg hef nú ekki frá neinu að segja, að minnsta kosti engu skemmtilegu. R: Ef þú getur ekki fortellað okkur neitt skemmtilegt, þá erum við girðing. ó: Átti þetta nú að vera brandari?? Ég sé að þið verðið í verulegum vandræð- um með húmorinn í blaðinu. R: (hulk) ó: Svona, svona, ég neyðist víst til þess. R: Jibbí, dibbí dei, hrópaði ritnefnd- ln og sá að nú var góð ástæða fyrir að ttiinnsta kosti tveggja vikna svalli. Þeg- ar saxast tók á þær 40 þús. kr. sem til voru í ritnefndarkassanum urðum við að selja Sonygræjurnar fyrir búsi. Þess vegna er viðtalið við Óla ekki til á kass- ettu. En minni ritnefndar var ennþá í Þolanlegu ástandi, þótt mörg ein sellan hefði lagt upp laupana í baráttu við á- fengið sem keypt var fyrir skólagjöld ttemenda. Viðtalið er sem sagt samið eftir minni og stopulum nóteríngum. Ólafur býr í sloti á Seltjarnarnesinu sem byggt var um miðja síðustu öld af bróður langafa hans. Að stíga yfir þrösk- uld þess er einna líkast því að ferðast rúmlega hundrað ár aftur í tímann. Rit- nefndarmönnum myndi ekki hafa kom- ið á óvart þótt Sebastian Flyte úr „Ætt- aróðalinu“ hefði komið lallandi út úr stofunni með glas í hendi. Sukkboltinn sá hefði fallið vel að þessu tígulega um- hverfi. Hvert sem litið var, 'bar allt vott um smekklega uppröðun gamalla og glæstra muna. Mubleríng hússins var heill kapítuli út af fyrir sig. í svona húsi gat ekki neinn hversdagslegur maður búið, enda fór því fjarri. R: Hvernig er það, líður þér ekki eins og safnstjóra í þessu stóra og gamla húsi? Ó: Nei, vitiði, það hefur aldrei hvarfl- að að mér. Ég hef þekkt þetta hús frá því ég var smápjakkur og er þar af leið- andi kunnugur hverjum krók og kima þess. Ótal æskuminningar eru tengdar þessu húsi og það er alltof samtvinnað lífi mínu til þess að ég geti litið á það sem safn. R: En hvað með alla þessa hluti, klukkurnar, myndirnar o.s.frv? Ó: Það gildir það sama um þá og húsið. Mikill hluti þeirra er búinn að vera hérna svo lengi að þeir tilheyra húsinu nánast, ættargripir og þess háttar. R: Heyrðu annars, lesa kennarar yf- irleitt skólablöðin? Ó: Ja, ég get nú bara svarað fyrir sjálf- an mig. Já, oftast geri ég það. R: Ertu ekkert hræddur um að við klúðrum þessu viðtali alveg og að menn fái alrangar hugmyndir um hvers konar maður þú sért? Ó: Það gæti náttúrulega farið svo að ég mæti til kennslu með barðastóran hatt og með svört sólgleraugu. Nei, nei, hvaða vitleysa ég treysti ykkur fullkom- lega. R: Tommi kvestor treysti okkur líka en nú situr hann í skuldafangelsi. En sleppum því. Ertu framfarasinnaður? Ó: Tja, maður sem býr í svona gömlu húsi getur tæpast verið mjög framfara- sinnaður. Nei, en í alvöru þá tel ég mig vera nokkuð framfarasinnaðan og ég held að framfarir séu mun skynsamlegri en bylting. R: Svo að við höldum okkur við fram- farirnar, vídeóið þarna stingur dáldið í stúf við aðra hluti hér inni. Hvað kom til að þú fékkst þér vídeó? Ó: Ja, ég fékk mér það fyrir alllöngu, var eiginlega á undan vídeóæðinu. Ann- ars horfi ég ekki oft á það, kannski tvisv- ar, þrisvar sinnum í mánuði. En mér finnst gott að vita af því að geta tekið upp þætti sem ég myndi annars missa af. Vídeótækið mitt hefur líka valdið því að ég nýt mikilla vinsælda yngstu meðlima fjölskyldunnar. Fúsi er líka mjög hrifinn af vídeóinu. R: Hver er hann þessi Fúsi? Ó: Fúþi er lídill vinur minn (hér brá Óli á leik og við gátum ekki annað en dáðst að hæfileikum hans í leiklist). Hann á heima ekki ýkja langt í burtu héðan. Foreldrar hans vinna bæði úti og ég passa nann stundum, þí ’ann Fúþi e ’ba”fimm. Hjá mér fær hann að gera allt það sem honum leyfist ekki heima hjá sér. Þegar ég passa hann líður ekki á löngu þar til hann segir við mig: Eium vi’ekk’horrá vídeó? Enda eru líka haldn- ar heilu vídeóorgíurnar þea”ann Fúþi e’hédna. Þá förum við á vídeóleigur og náum í spólur. Fúsi fær auðvitað að velja myndirnar. Hann velur oftast góð- ar myndir þó megnið í þessum leigum sé hálfgert drasl. R: Fékkst þú frjálslegt uppeldi, eða ertu kannski niðurbæld sál sem fær út- rás á nemendum sínum? (eiginlega fár- ánleg spurning því Óli er mun léttari og opnari en flestir jafnaldrar hans. Hér skal því skotið inn að hippatímabilið missti mjög naumlega af Óla — mikill skaði það.) Ó: Ég fékk eiginlega að gera það sem mig langaði til, svo framarlega sem það væri ekki lifshættulegt. Annars var ég prúður og góður drengur. R: Ha, þetta segja nú allir (menn sem eru komnir í ábyrgðarmiklar stöður virðast ekki eiga sér nokkra einustu fortíð.) Ó: Ja, ég var að minnsta kosti stilltur strákur, kannski dálítið kotroskinn stundum. 39

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.