Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1984, Qupperneq 41

Skólablaðið - 01.03.1984, Qupperneq 41
R: Kladdahvað??? O: Það var þannig þegar ég var í M.R. að umsjónarmaður bekkjarins sá alfar- ið um kladdann. Aftan við nöfn nem- enda var bætt alls konar fáránlegum athugasemdum. Ég man eftir því að einhver hafði skrifað við nafn mitt: Dan- mark længe leve! Einn í bekknum var frá Stokkseyri, aftan við nafn hans stóð: Stokkseyri tiber alles! Svo var það einn daginn að við ákváðum að hressa aðeins upp á tilveruna og bæta nýju nafni í kladdann. Þessi ímyndaða persóna hlaut hið virðulega nafn Hermann Hval- fjörð. Aftan við það stóð svohljóðandi athugasemd: Hermann er drykkjumað- ur og slæpingi. Þessi náungi mætti mjög illa eins og gefur að skilja, enda höfðu sumir kennarar áhyggjur af heilsuleysi hans; því að við afsökuðum fjarveru hans með ógnvekjandi sjúkdómssögum. En þegar líða tók á veturinn fóru marg- ir að efast um tilvist Hermanns því hann lét aldrei sjá sig. Þá tókum við til bragðs að fá strák utan úr bæ til að mæta í stað hans. Staðgengillinn var býsna sérkenni- legur karakter. Þegar hann var spurður að því hvers vegna hann mætti svona illa stóð ekki á svarinu: „Ja, ég er bara það vinsæll maður að ég má ekkert vera að því að vera í skólanum. Ég sit í fjöl- mörgum nefndum og er því störfum hlaðinn.“ Því næst leit hann á úrið sitt, stóð upp og sagði: „Jæja, ég má ekki vera að þessu lengur. Ég þarf að mæta á fund.“ Og með það var hann farinn og kom aldrei aftur. Einu sinni skil- aði hann meira að segja latínustíl. Þegar kennarinn skilaði okkur stíln- um var hann mjög undrandi yfir því að eitt blaðið var merkt Hermanni, þrátt fyrir að hann minntist þess ekki að Hval- fjörð hefði mætt í þennan tímastíl frek- ar en aðra. Við skildum vel undrun hans þvi að við höfðum laumað blaði á milli okkar og gerði hver eina setningu. Síðan tók einhver það að sér að skrifa allt upp á eitt blað og skila því síðan sem blaði Hermanns. Kennarinn hafði þetta að segja um verkefni hans: „Það er undar- legt með hann Hvalfjörð. Hann gerir níðþungar málsgreinar hárréttar, en flaskar svo á einföldustu atriðum." En eftir því sem á leið varð Hermann okk- ur sifellt erfiðari, því að við þurftum alltaf að standa klárir á trúanlegum af- sökunum. Að lokum urðum við að taka til róttækra aðgerða. Helst vorum við á því að birta dánartilkynningu hans í Mogganum til að losna við hann fyrir fullt og allt. Ég átti að sjá um það því ég var nógu sakleysislegur til að verða tekinn trúanlegur. Að lokum var þó á- kveðið að segja þeim kennara, sem mestar áhyggjur hafði haft af Her- manni, hvernig í öllu lá. Við kviðum mjög fyrir að tala við hann, því að hann hefði getað tekið það nærri sér að við vorum að spila með hann. En við höfð- um aldrei ætlað okkur að særa neinn. Þetta var í upphafi saklaust grín en hlóð síðan utan á sig eins og oft vill verða þegar blekkingar eiga í hlut. R: Við ætlum að hlífa þér við þvi að segja einhver spakleg lokaorð, en spyrja þig í staðinn gáfulegrar spurningar: Hefðir þú áhuga á þvi að lifa að eilífu? Ó: Nei, það yrði hræðilegt. Hugsið ykkur bara að þurfa að leiðrétta dönsku- stíla fram í það óendanlega. Wilhelm Emilsson. Arnór G. Ólafsson. Sigríður Matthíasdóttir. 41

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.