Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 45

Skólablaðið - 01.03.1984, Blaðsíða 45
í seinni bókinni yrkir Ingibjörg enn um heimþrána, að vera útlendingur í landi sem kannski er ekki ókunnugt lengur, en samt framandi. Hún yrkir um tilgangsleysi þessa lífs, það getur ekki orðið öðruvísi meðan hún er ekki sátt við umhverfi sitt, og dagarnir líða hjá, án þess að hún fái að gert: KAFFIHLÉ Hvílíkt öryggisleysi að lifa sjá dagana koma og fara einn af öðrum og geta ekkert gert til að stöðva þá sjá þá verða að vikum mánuðum, árum og hugsa: Á sama hátt verða dagarnir að öldum og hverju máli skiptir þá þessi laugardagur söngur nautabanans í útvarpinu strigaskórnir mínir og steinninn sem ég sit á? En það bíða svo sem engir gullstólar heldur við heimkomuna: VONBRIGÐI Þú hélst þú kœmir heim í hlýjan faðm þín biði sól í grœnu grasi huggun hvíld. Þú hélst þú ættir skjól í landsins hjarta. En von þín brást: þín biðu nakin fjöll og naprir vindar. Munurinn er aðeins sá, að nú á hún möguleika á að sigra, og við lestur ljóðs- ins Þyrnirós, trúum við að hún muni sigra, svo kraftmikið og frjálst sem það er: Nú rís ég upp einbeitt og vakna af aldarlöngum svefni — eða er ég að fœðast? Núna. Hér. Með tvær hendur tómar — hreinar og tómar. Einhver hefur sagt mér ég eigi hér heima. Þá eru ljóð um örvæntinguna og til- ganginn og efnið sótt á kunnar slóðir, Reykjavík skemmtistaðanna, Reykjavík hráblautra gangstétta og erfiðra sam- skipta. Ljóðið Frelsi er grátbroslegur óður til hjónabandsins og frelsisins: Ég neita því ekki: frelsið er dýrkeypt. Notalegra að ylja tœrnar á gamalkunnum karlmanni í bólinu og vita alltafhvað kemur nœst. Þœgilegra að þurfa ekki að taka ákvarðanir. Gott að segja: Þú ræður, elskan. Ég neita því ekki: öryggiskenndin var sæl. Og það magnleysi, sem fylgir því að sjá tímann þjóta út í buskann er hræði- legt, að vera allt í einu orðin „kelling í fiskbúðum veruleikans“, snakkandi við aðrar „kellingar“ á svipuðum báti — miðaldra kona. Geturðu níst það pnóni? SPEGILL Þegar ég kem heim lít ég í spegil og sé ekki mig heldur einhverja miðaldra konu sem hefur drukkið of mikið reykt ofmikið og talað ógœfulega. Ekki mig. 45

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.