Skólablaðið - 01.11.1987, Síða 57
anna og marga síðan. Það er yfir-
leitt fastur kjarni fólks sem mætt
hefur á þessa tónleika. Svo ber við
að Englendingar koma auga á snilli
Sykurmolanna, (enda hafa þeir
löngum verið smekkmenn á tónlist).
Lag þeirra „Ammæli" er kosið „sing-
le of the week" í Melody Maker,
dagblöðin taka til við að básúna
það að Sykurmolar séu orðnir
heimsfrægir. Og allt í einu fer mað-
ur að sjá fólk á Sykurmolatónleikum
sem maður hafði aldrei séð á tón-
leikum áður, fólk sem kannski fram
að þessu hefur verið „önnum kafið"
við að hlusta á Bubba Morthens,
Rauða fleti, Stuðmenn eða annað
álíka tilgerðarlegt og leiðinlegt.
Allt í einu er orðið „gazalega hip"
að „fíla" Sykurmolana.
Eins og ég sagði áðan virðist
gróskan síður en svo vera að
minnka. Pað sést ef til vill best á
því að bráðum kemur út Snarl II,
þ. e. sambærileg spóla við fyrra
Snarlið. Þessi seinni mun bera
nafnið „Veröldin er veimiltíta1'. Á
henni munu verða, að því er ég veit
um, hljómsveitirnar Sogblettir, Da-
isy Hill Puppy Farm, Bleiku bast-
arnir, Bootlegs og Dead Hippies
(sú hljómsveit breytir nú víst ansi
oft um nafn, þannig að hún gæti
eins heitið eitthvað annað þegar á
spóluna kemur). Múzzólíni hefðu
líklega tekið þátt ef þeir væru ekki
hættir, aðdáendum sínum (þar á
meðal mér) til mikillar sorgar. En
upp úr Múzzólíni var stofnuð „Malt í
framan" sem verða á spólunni,
þannig að það er einhver huggun
harmi gegn. Fleiri hljómsveitir sem
verða eru Mosi frændi, Bleiku bast-
arnir, eða um 12 í allt.
Þeim sem hafa áhuga á að kynna
sér eitthvað af þeim hljómsveitum
sem ég hef skrifað um, er bent á
Snarlið sem fæst í Gramminu og ef
til vill 1 einhverjum fleiri góðum
plötubúðum. Það kostar (að mig
minnir) ekki nema 200 kr. Snarl II
kemur síðan út nálægt 1. des. og
verða ábyggilega einhverjir tón-
leikar haldnir í kjölfar þess að spól-
an kemur út.Hafið augun og eyrun
opm!
Pétur Magnússon.
Dying / Is and art, like onything else. / I do it exceptionally uuell.
— Sylvia Plath
57