SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 2
2 27. febrúar 2011
Við mælum með
Hinn 4. mars
munu Alex Metric (dj set) og Blo-
odgroup troða upp á NASA. Upp-
hitun verður í höndum Bloodgroup
en þetta eru þeirra einu tónleikar á
Íslandi þar til þau taka sér pásu til
að vinna nýtt efni. Alex Metric
kom, sá og sigraði á síðustu Ice-
land Airwaves-hátíð. Evrópa hefur
líka tekið honum vel en þar hefur
hann slegið í gegn með laginu
Open Your Eyes.
Morgunblaðið/Ernir
Blóðugur Metric á Nasa
20 Má nota orðið „tuddi“?
Tómas Heiðar og Bergþóra Tómasarbörn feta í fótspor foreldra sinna,
Tómasar Holton og Önnur Bjarkar Bjarnadóttur, í körfuboltanum.
22 Gátan sem seint verður ráðin
Á mánudag verða 25 ár liðin frá morðinu á Olof Palme, forsætisráð-
herra Svía. Lögregla viðurkennir að lausn málsins sé ekki í sjónmáli.
24 Kröpp kjör í Búrma
Um helgina verður opnuð sýningin Líf í fjötrum á ljósmyndum Þorkels
Þorkelssonar frá Búrma. Landið er lokað og fátæktin sár.
26 Félagar tefla til þrautar
Valur leikur til úrslita í bikarkeppninni í handbolta fjórða árið í röð en
Akureyri í fyrsta skipti.
28 Ný hugsun
í skólamálum
Enginn veit hver heildarstefna skólastarfs í
landinu er, segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
40 Ólík hlutverk
Ætli sé gaman að bregða sér í hlutverk eða
betra að vera maður sjálfur með smá uppábroti inni á milli?
Lesbók
42 Bara konur lesa konur
Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna,
verða kynntar á morgun. Af því tilefni er ástæða til að velta vöngum.
44 Herbergin okkar
Í skáldsögunni Room eftir Emmu Donoghue segir frá konu og fimm
ára syni hennar sem er haldið föngnum í litlu herbergi.
34
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Steve Lorenz og
Hjördísi Lilju Örnólfsdóttur.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Þ
að var þröng á þingi þegar háskóladag-
urinn var haldinn í Háskóla Íslands um
liðna helgi, en þá var opið hús í nokkr-
um byggingum skólans, þar sem kynnt
var bæði grunnnám og framhaldsnám. Einnig var
starsemi skólans kynnt almennt og var dagurinn
sniðinn fyrir alla fjölskylduna, sem boðið var í
heimsókn á aldarafmælinu.
Á meðal þess sem var í boði voru fjórar sýn-
ingar í Háskólabíói, þar sem sprengjugengið svo-
kallaða fór á kostum, en það skipa nemendur í
efnafræði. „Það er sýning sem hefur vakið athygli
jafnvel út fyrir landsteinana,“ sagði Jón Örn
Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og sam-
skiptasviðs.
Og Háskóli Íslands virðist ern, þrátt fyrir háan
aldur, því aldrei hafa fleiri komið á kynninguna
eða á áttunda þúsund, að sögn Jóns Arnar.
– Er sprengjugengið jafnhættulegt og það
hljómar?
„Þau eru að framkvæma hluti sem menn ættu
ekki að reyna heima hjá sér,“ svarar Jón Örn.
– Nema fólk hafi menntun til?
„Já, sumt er sárasaklaust, en áhrifaríkt, annað
þannig að það eru sprengingar og mikill ljósa-
gangur. Það er ár efnafræðinnar í heiminum,
þannig að það fór vel á því að þetta fengi svona
mikla athygli. En svo var hver bygging með sinn
fókus, það eru fimm fræðasvið í skólanum.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Það var mikið um dýrðir hjá hugvísindadeild í aðalbyggingu Háskólans.
Morgunblaðið/Kristinn
Sprengjugengi á ferð
Það gneistaði af Sprengjugenginu í Háskólabíói.
Viðskiptafræðideild skýrði kvótann með frumlegum hætti.
Tennisleikur er ekki alltaf tekinn út með sældinni eins og sjá má á
tilburðum hinnar dönsku Caroline Wozniacki á Opna Katarmótinu á
föstudag. Eigi að síður átti Wozniacki, sem vermir toppsæti heims-
listans, ekki í vandræðum með frönsku stúlkuna Marion Bartoli í
undanúrslitum og leikur til úrslita á mótinu um helgina.
Veröldin
Reuters
Wozniacki í ham
27. febrúar
Sýningin Grín
og glens í
Tjarnarbíói.
Fjórir af bestu
fjölskyldu-
skemmtikröftum Íslands koma
saman á sýningu sem er troðfull
af skemmtilegheitum, gríni og
glensi.
2. mars
Handverks-
kaffi í
Gerðubergi.
Þröstur
Jónsson
kennir gestum hefðbundið bók-
band.
5. mars
Ýmiss konar örnámskeið verða
haldin á vegum Háskóla Íslands í
Árnagarði. Meðal fjölda nám-
skeiða má nefna námskeið í
handritalestri og ástarsögum.
36
Morgunblaðið/Kristinn