SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 20
20 27. febrúar 2011
T
ómas Heiðar Tómasson tekur tilhlaup og treð-
ur fyrir ljósmyndarann. Troðslan gengur ekki
alveg upp en ég bið unga manninn í hálfkær-
ingi að hafa ekki áhyggjur, við munum bara
„fótósjoppa“ myndina, þannig að boltinn verði í
hringnum. Hann hlær. „Heyrðu, fyrst þið eruð byrjaðir
að „fótósjoppa“, má ég þá ekki vera með hrokkið hár?“
spyr faðir hans, Tómas Albert Holton, sem stendur
álengdar.
Feðgarnir eru bersýnilega í essinu sínu á fjölum
íþróttahúss Fjölnis í Grafarvoginum enda er það annað
heimili hins nítján ára gamla Tómasar Heiðars sem leik-
ur með meistaraflokki Fjölnis í efstu deild Íslandsmóts-
ins. Faðir hans var á sinni tíð einn fremsti körfubolta-
maður þjóðarinnar með Val, Skallagrími og landsliðinu,
auk þess sem hann lék um tíma sem atvinnumaður í
Ungverjalandi.
En feðgarnir eru ekki einu körfuboltafríkin í fjöl-
skyldunni, mæðgurnar Anna Björk Bjarnadóttir og
Bergþóra Holton Tómasdóttir eru engu skárri. Anna
Björk gerði garðinn frægan með ÍS, Skallagrími og ís-
lenska landsliðinu og Bergþóra er þegar farin að leika
með meistaraflokki Fjölnis enda þótt hún sé aðeins sex-
tán ára.
Þegar sest er niður með þessari ágætu fjölskyldu getur
umræðuefnið aldrei orðið nema eitt. Hvaðan kemur
þessi körfuboltafíkn eiginlega?
Man orð fyrsta Kanans
Tómas eldri hefur orðið: „Faðir minn og alnafni, er
Bandaríkjamaður sem flutti til Íslands. Hann lék körfu-
bolta á sínum yngri árum, bæði í menntaskóla og há-
skóla. Móðurbróðir minn var Helgi Jóhannsson, einn af
brautryðjendum íslensks körfubolta. Þannig má segja að
ég sé með þetta í blóðinu.“
Það var þó ekki fyrr en hann var tíu ára að hann
komst á fyrstu æfinguna. „Ég var svo heppinn að búa í
Fossvoginum þegar Ármenningar byrjuðu með körfu-
boltaæfingar í Réttarholtsskóla. Allt fylltist á augabragði
og tveimur árum síðar urðum við Íslandsmeistarar í
minnibolta. Eftir það varð ekki aftur snúið,“ segir Tóm-
as.
Hann man vel eftir fyrsta Bandaríkjamanninum sem
kom til að leika körfubolta á Íslandi, Jimmy Rogers, sem
einmitt gekk í Ármann árið 1975. „Kanarnir gjörbreyttu
íþróttinni hér á landi með getu sinni og kunnáttu. Ro-
gers var látinn hjálpa til við þjálfun minniboltans í Ár-
manni og vorum við með stjörnur í augunum þegar
hann leiðbeindi okkur. Ég man ennþá orðrétt sumt af
því sem hann sagði við okkur.“
Anna Björk lenti í sömu körfuboltabylgjunni í Borg-
arnesi, þegar hún flutti aftur heim frá Noregi tólf ára
gömul. „Maður var bara á gönguskíðum í Noregi en í
Borgarnesi snerist allt um körfubolta. Decarsta Webster,
sem síðar tók sér nafnið Ívar, var þar að spila og þjálfa og
áhuginn var gríðarlegur. Allir voru í körfu. Webster var
„maðurinn“ enda ekki margir tveggja metra háir svartir
menn í Borgarnesi á þessum tíma,“ rifjar Anna Björk
upp. „Hann var frábær þjálfari sem við krakkarnir
dýrkuðum.“
Gaf brjóst í leikhléi
Anna Björk og Tómas giftu sig vorið 1989. Eftir það lá
leiðin til Ungverjalands þar sem þau stunduðu nám og
spiluðu körfubolta í 2 ár. Fljótlega eftir að þau komu aft-
ur heim fæddist Tómas Heiðar og Anna Björk minnist
þess meira að segja að hafa gefið honum brjóst í leikhléi í
kappleik, en þá lék hún með úrvalsdeildarliði ÍS. „Það
vita margir að Tómas Heiðar er sonur minn, körfubolta-
mannsins,“ segir faðir hans, „en gleyma því stundum að
Má nota orðið
„tuddi“ í
Mogganum?
Hjónin Tómas Albert Holton og Anna Björk Bjarnadóttir voru á
sinni tíð í hópi fremsta körfuboltafólks landsins. Nú eru börn
þeirra, Tómas Heiðar og Bergþóra, tekin við kyndlinum – og setja
markið hátt. Með vorinu bætist fimmti leikmaðurinn í liðið.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
Körfuboltafjölskyldan mikla í Grafarvoginum: Anna Björk Bjarnadóttir, Bergþóra Holton Tómasdóttir, Tómas Albert Holton og Tómas Heiðar Tómasson.
Morgunblaðið/Ómar