SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 31
27. febrúar 2011 31 M aría Heba Þorkelsdóttir fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík hinn 1. október 1974. Hún er dóttir hjónanna Gunnþóru Hólmfríðar Ön- undardóttur kennara og Þorkels Ingimars- sonar skólastjóra. Systkini Maríu Hebu eru Þorkell Þorkels- son og Sigríður Kristjana Þorkelsdóttir. María Heba bjó fyrstu ár ævi sinnar í Vík Mýrdal og á þangað sterkar taugar. Hún gekk í Álftamýrarskóla grunnskólaár sín, ef frá eru talin þrjú ár sem hún bjó á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. María Heba lauk stúdentsprófi frá Verslunarskólanum og útskrif- aðist sem bókmenntafræðingur frá Háskóla Íslands 1999. Það sama haust hóf hún nám við Leiklistarskóla Íslands, sem ári seinna varð ættleitt afkvæmi leiklistardeildar Listaháskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist María Heba sem leikkona árið 2003 en stundar nú nám við listkennsludeild sama skóla. Hún býr í Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum, Kristófer Dignus, framleiðanda og handritshöfundi. Börn þeirra eru Ari Dignus (fæddur 2005), Katrín Dignus (fædd 2006, dáin 2006) og Högni Dignus (fæddur 2009). María Heba fer með hlutverk misþroska stúlku að nafni Embla í kvikmynd Reynis Lyngdal Okkar eigin Osló sem verður frumsýnd 4. mars næstkomandi. pebl@mbl.is Í heimsókn hjá tengdapabba í Edinborg í desember síðastliðnum. Jólasnjór, jólatívolí og jólafrí með mínum uppáhalds. Lífið. Fallegt. Tvítug og allt á byrjunarreit. Aftur í Vík, heima hjá ömmu Sísí (Sigríði Kristjönu Sigurgísladóttur) og afa Ingimar (Ingimarssyni) Upp úr einum pakkanum hafa komið glæsi- stígvél. Mér sýnist við sáttar. Með bekknum úr leiklistarskólanum á Theatertreffen í Berlín 2002. Þor- leifur (Örn Arnarsson) bekkjarbróðir minn og frændi fór svo þangað að nema leikstjórn og hefur gengið vel. Ég í kringum 1 árs aldurinn hjá ömmu minni Rannveigu Ísfjörð, Lillu, í Vík. Við hliðina á ömmu situr Ólöf Hallsdóttir frænka mín. Tvær frábærar konur og fyrirmyndir á marga vegu. Skírnardagur Sæmund- ar Bjarnasonar heitins frænda míns. Mér þykir sérstaklega vænt um þessa mynd. Stoltið skín úr augum afa, ömmu og stóru frænku. Fer með stórt hlutverk í Okk- ar eigin Osló Leikkonan María Heba Þorkels- dóttir opnar myndaalbúmið að þessu sinni. Á Þjóðhátíð 2009. Ari Dignus með stjörnur í augum að horfa á Pál Óskar troða upp. Allt fyrir ástina. Elsku perform- erinn minn hann Ari Dig- nus. Við Sísí systir mín erum dyggir áhorf- endur. Högni Dignus og tíkin okkar Embla eru í ein- hverjum öðrum hugleiðingum. Í það minnsta kerti og spil... Á leikferðalagi með In Transit, sýningu sem var sýnd í 4 löndum. Þetta er í Edinborg. Dá- semda borg sem er mér mjög kær. Sem Rós í Nemendaleikhúsinu í verkinu Tattú eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Rún- ars Guðbrandssonar. Ég saumaði ekta gervi- leðurpilsið sjálf og er enn súperstolt af því. Ástin er frekast að því kunn að hún vill kyssa beint á munn. Vík 15. júlí 2000. Myndaalbúmið Með minni frábæru Maríönnu Clöru á leik- ferðalagi 2004.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.