SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 25
27. febrúar 2011 25 fyrir skipulega niðurrifsstarfsemi stjórnvalda á menn- ingararfinum. Svo er líka ótrúlegt hvernig þetta fólk getur galdrað fram veislurétti úr engu á einum prím- usi.“ Myndir Þorkels sýna daglegt líf í Búrma. Hann fór inn á heimili og heimsótti bænahús, skóla og sjúkra- hús. „Mér fannst sláandi að sjá aðbúnað á sjúkrahúsi, sem ég heimsótti, því að ég vissi að það var verið að sýna mér það besta,“ segir Þorkell. Myndir Þorkels frá Búrma eru hluti af stærra verk- efni, sem fjallar um afkomu mannsins við erfiðar og óbærilegar kringumstæður víða um heim. Litlar framfarir hafa orðið í Búrma frá því að Þorkell var þar, ef nokkrar. Óhæfi herforingjastjórnarinnar kom berlega í ljós eftir að fellibylurinn Nargis gekk yfir Búrma 2008 með hryllilegum afleiðingum og landið lamaðist. Í nóvember lét herforingjastjórnin fara fram fyrstu kosningarnar í 20 ár og var gefið í skyn að þær yrðu upphafið að því að flytja völdin í hendur borgaralegra afla. Kosningarnar einkenndust af ásökunum um svik og tilraunum til að hafa áhrif á kjósendur með hót- unum. Stjórnvöld komu einnig í veg fyrir að Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefði áhrif á kosningarnar, en létu hana síðan lausa nokkrum dög- um eftir að þær voru haldnar eftir sjö ára stofufang- elsi. Flokkur Suu Kyi hefur enga rödd á hinu nýkjörna þingi. Þar hafa herforingjarnir og leppflokkar þeirra tögl og hagldir. Fjórðungur þingsæta var tekinn frá handa stjórnarflokknum fyrir kosningar og hann fékk síðan 388 af 493 sætum, sem kosið var um. Í febrúar valdi þingið nýjan forseta, Thein Sein. Hann er herforingi og settist í helgan stein í fyrra. Eftir því var tekið að af fimm æðstu stöðunum, sem skipað var í – stöðum forseta, tveggja varaforseta og forseta efri deildar þingsins annars vegar og neðri deildar hins vegar – komu fjórar í hlut manna, sem höfðu verið háttsettir í hernum. Herforingjastjórnin fór frá, en hélt samt völdum.Talið er að Than Shwe, sem komst til valda 1992, muni áfram halda um valdataumana bak við tjöldin með svipuðum hætti og Deng Xiaoping í Kína á sínum tíma. Þegar þingið kom saman fyrr í þessum mánuði var stillt upp glansmynd í innlendum fjölmiðlum, en efnisleg umfjöllun var rýr. Erlendum fjölmiðlum hefur verið bannað að fylgjast með störfum þingsins. Herforingjastjórnin hefur í tvígang brotið tilraunir til uppreisnar á bak aftur á seinni tímum, síðast 2007. Stjórnvöld í landinu hafa ákaflega takmarkað bakland. Það segir sína sögu að fjölmiðlar í Búrma, sem alla- jafna segja nokkuð rækilegar erlendar fréttir, skuli ekki hafa nefnt uppreisnirnar í arabaheiminum. Sennilega telja stjórnvöld í Búrma því fylgi smithætta að birta myndir af mótmælendum á götum Kaíró að lýsa yfir því að þeir óttist ekki lengur ráðamenn sína. Vinnumaður eys vatni úr dæmigerðu vatnsbóli í miðhluta Búrma. Áætlað er að 57% Búrmamanna hafi ekki aðgang að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu og 40% landsmanna hafi ekki aðgang að hreinu neysluvatni. Heilbrigðisþjónusta í Búrma er ein sú versta í heimi. Árið 2009 var aðeins 1,8% af heildarútgjöldum herforingjastjórnarinnar varið til heilbrigðismála, þrátt fyrir að við- skiptajöfnuður við erlend ríki væri hagstæður um 2,5 miljarða dollara, eða tæpa 295 miljarða íslenskra króna. Takmarkaður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu, eink- um á landsbyggðinni, veldur iðulega óþörfum þjáningum og oft dauða af völdum auð- læknanlegra sjúkdóma. Flestir eiga sér drauma. Líkt og börn á Íslandi sem skreyta herbergi sín með myndum af átrúnaðargoðum sínum hefur þessi stúlka sett upp mynd af fyrirsætu sem margar stúlkur í Búrma líta upp til. Þótt aðbúnaðurinn sé annar og fátæklegri er vafalítið margt líkt með hugarheimi barna hinna ýmsu þjóða óháð kynþætti og efnahag. ’ Mér er minnisstæðast hvað allt var vanþróað í þessu landi og hvað fólk var hrætt við að tala við mann. Ljósmyndir/Þorkell Þorkelsson

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.