SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 4
4 27. febrúar 2011
Tilkynnt var á dögunum að heimildamyndin Drauma-
landið eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magna-
son hefði unnið „Cinema Politica Audience Choice
Award 2010“, en það eru áhorfendaverðlaun virtra
grasrótarsamtaka sem dreifa og sýna pólítískar
heimildamyndir í Kanada og víðar um heiminn. Kosn-
ingin fór fram á netinu og var hægt að kjósa milli 10
mest dreifðu mynda síðasta árs innan Cinema Poli-
tica. Á listanum voru myndir á borð við Gasland sem
hefur hlotið Óskarstilnefningu í ár sem besta heim-
ildamyndin, svo keppinautarnir voru ekki af verra
taginu.
Draumalandið hefur farið víða. Eftir frumsýningu
hér heima hóf myndin ferð sína um heiminn í nóv-
ember árið 2009 með því að vera ein 15 mynda sem
teknar voru til sýninga á IDFA heimildamyndahátíð-
inni í Amsterdam, en þúsundir kvikmynda keppa um
að komast þar að. Síðan hefur myndin farið á kvik-
myndahátíðir um allan heim, s.s. til Tel Aviv, Cam-
den, Varsjár, San Francisco, Hamborgar og Norð-
urlanda svo eitthvað sé nefnt.
Draumalandinu vel tek-
ið á kvikmyndahátíðum
út um allan heim
Draumalandið snertir við áhorfendum um allan heim.
Ljósmynd/Úr Draumalandinu
E
ignarhald á jörðum með
vatnsréttindum og skipulags-
vald í litlum sveitarfélögum
verða þungamiðja umræðu
um náttúruvernd á Íslandi á næstu ár-
um að mati Andra Snæs Magnasonar
rithöfundar. Tveimur árum eftir að
kvikmyndin Draumalandið var frum-
sýnd segir hann enn stórkarlaleg áform
uppi um orkuframleiðslu í framtíðinni.
Engar kvikmyndir geta breytt stóra
vandamálinu sem blasir við segir Andri
sem líkir því við það ástand sem skap-
ast þegar hrörlegt hús stendur autt á
besta stað í miðborginni. „Maður gæti
haldið að eigendurnir væru fátækir en
því er öfugt farið – líklega á auðmaður
eða banki hreysið. Ósýnilega, dauða
höndin sem hvílir á húsinu, þ.e. deili-
skipulagið, gerir það að verkum að
húsið er ekki hús heldur bara vannýttur
byggingarréttur í huga eigendanna. Á
sama hátt er búið að búa til efnahags-
legt kerfi sem veldur því að ef vatn
rennur um jörð einhvers þá er hún
ónýttur virkjunarréttur. Smám saman
mun eignarhaldið því safnast þannig að
þeir sem vilja virkja eignast landið því
það mun ekki borga sig fjárhagslega að
eignast land og virkja ekki. Rétt eins og
enginn vill kaupa 70 fermetra timbur-
hús á 100 milljónir og ákveða að nýta
ekki byggingarréttinn – hann gæti það
aldrei.“
Andri segir búið að búa svo um hnút-
ana að ríkið geti ekki myndað sér orku-
stefnu. „Í raun er Ísland ekki þjóð lengur
heldur erum við annars vegar hrepp-
stjórar og landeigendur og hins vegar
þeir sem búa í landinu, þekkja það og
vilja ekki virkja það. Landið mun að lok-
um lenda í höndum þeirra sem vilja
virkja. Það gerist í gegnum viðskipti þeg-
ar land skiptir um hendur eða í gegnum
mjög harðar deilur í sveitum landsins þar
sem vatnsréttindum er mjög ójafnt skipt.
Af einhverri tilviljun fellur foss í annars
landi sem menn veltu aldrei neitt sér-
staklega fyrir sér fyrr en hann er allt í
einu orðinn að einhverri gullkvörn.“
Mjög óhugnanlegt kerfi
Þannig er búið að búa til mjög óhugn-
anlegt kerfi, segir Andri, og nefnir í því
sambandi nýjasta deiliskipulag Skaftár-
hrepps. „Þar er búið að teikna upp 150
megavatta virkjun upp undir Hólaskjóli
auk annarrar 50 megavatta virkjunar í
Hólmsá. Að auki er gert ráð fyrir 5 mega-
vatta virkjun sem veldur gríðarlegu raski
fyrir lítinn ávinning og maður furðar sig
á því af hverju henni er ekki bara sleppt.
Það er einfaldlega af því að allir þurfa að
fá sitt.“
Þarna liggur hundurinn grafinn að
mati Andra. „Stór hluti af náttúruverð-
mætum á Íslandi og skipulagsvald er í
höndum sárafámennra hreppa sem hafa
enga innviði eða fjárhagslega burði til að
sinna sínu hlutverki almennilega. Þeir
eru bara sitjandi gæsir fyrir orkufyrir-
tæki, banka, Magma energy eða hvern
sem er sem hefur áhuga á að hræra upp í
skipulaginu eða kaupa það til að geta gert
hvað sem er.“
Hann bendir á að vilji þjóðarinnar sé að
auðlindirnar haldist í almannaeigu í stað
þess að þær verði viðfangsefni braskara.
„Því miður sitjum við uppi með módel
sem elur á spillingu og misskiptingu eftir
efnahagslega tilraun síðustu ára og ef við
ætlum ekki að horfa upp á þjóðina berjast
yfir silfrinu næstu árin þurfum við að
taka á því. Það er hægt að gera með því
að breyta lögunum þannig að svona
mikið vald á alþýðuverðmætum sé ekki í
höndum fámennra hreppa þar sem er svo
auðvelt að kaupa pólitíkina.“
Andri segir þetta þó ekki gerast mót-
þróalaust. „Það má búast við rosalegri
viðspyrnu því menn eru ekki gjarnir á að
gefa frá sér slík réttindi. En hvað segir
það þá um okkur þegar hófsemin er eng-
in – það eru ekki einu sinni skilin eftir 5
megavött þótt þau raski tugum ferkíló-
metra af landi. Þannig held ég að sé
áþreifanlega hægt að mæla græðgi. Ég
hitti einu sinni mann sem sagði við mig:
Þú þekkir ekki manneskju fyrr en þú
hefur skipt með henni arfi. Það má setja
þetta upp á sama hátt: Þú þekkir ekki
þjóð fyrr en hún hefur skipt upp nátt-
úruarfinum.“
Úr heimildarmyndinni Draumalandinu eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason.
Þegar þjóð
skiptir nátt-
úruarfinum
Baráttan um vatns-
réttindin að aukast,
segir Andri Snær
Vikuspegill
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
„Það hefur orðið mikil viðhorfs-
breyting undanfarið hjá Lands-
virkjun og nýja orkustefnan henn-
ar er mjög jákvætt skref,“ segir
Andri Snær. „Menn eru líka loks-
ins farnir að tala um orkuverðið –
að þjóðin eigi að geta fengið
meira út úr þessu en bara störf í
álverum. Þeir eru farnir að sjá að
við eigum líka að geta fengið pen-
inga út úr þessu svo þeir koma
sterkari að samningaborðinu en
áður. Þannig að margt er jákvætt í
hugsunarhætti Landsvirkjunar
núna.“
Ásóknin í landið er hins vegar sú
sama og áður. „Fyrirtækið hefur
það ennþá að markmiði að tvö-
falda orkuframleiðsluna og það er
ekki hægt nema ganga afar nærri
mörgum fallegustu stöðunum
sem eftir eru.“
Enn stefnt að því
að tvöfalda orku-
framleiðsluna
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ilva.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
einfaldlega betri kostur
Brauð með hangikjöti.
490,-
SMURT
BRAUÐ