SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 8

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 8
8 27. febrúar 2011 Karl-Theodor zu Guttenberg hefur átt skjótan frama í stjórnmálum. Hann komst á þing fyrir kristilega demókrata í Bæjaralandi, CSU, árið 2000. Hann varð ráðherra efnahags- og tæknimála í febrúar 2009 og varð strax einn vinsælasti stjórnmálamaður lands- ins. Eftir kosningarnar í fyrra varð hann varn- armálaráðherra. Fjaðrafokið vegna doktorsritgerðarinnar sem nú hefur leitt til þess að hann hefur verið sviptur dokt- orsnafnbót sinni virðist ekki ætla að hafa áhrif á vin- sældir Guttenbergs. Samkvæmt skoðanakönnun Dimap fyrir þýska rík- issjónvarpið, ARD, sem birt var á miðvikudag, eru 73% þýskra kjósenda ánægð með störf Guttenbergs, en það átti við um 68% áður en málið kom upp. 72% sögðu að ákvörðun hans um að afsala sér dokt- orstitlinum dygði til þess að honum væri stætt á að vera áfram í embætti. 24% sögðu að hann ætti að segja af sér. „Fólk kann að meta að hann er ekki afsprengi hinnar pólitísku valdablokkar í Berlín,“ sagði Man- fred Güllner, sérfræðingur um stjórnmál hjá skoð- anakönnunarfyrirtækinu Forsa, í samtali við AFP. „En blaðamönnum finnst hann hrokafullur.“ Guttenberg er 39 ára gamall. Hann er af aðalsætt- um, sem rekja má aftur til miðalda. Þá er kona hans, Stephanie, afkomandi járnkanslarans, Ottos von Bis- mark. Guttenberg vakti athygli fyrir framgöngu sína í síðustu kosningabaráttu þar sem hann tróð ekki að- eins upp á hefðbundnum kosningafundum heldur skaut líka upp kollinum sem plötusnúður á skemmti- stöðum. Hann þykir tala tæpitungulaust, þótt nokk- ur mál, sem upp hafa komið í tíð hans sem varn- armálaráðherra hafi reynst honum erfið, og nýtur vinsælda. Ýmsir hafa spáð því að hann eigi fyrir sér að verða kanslaraefni hægri manna í Þýskalandi. Vinsældir aukast þrátt fyrir doktorsmissi Karl-Theodor zu Guttenberg ásamt Stephanie, konu sinni, á Wagner-hátíðinni í Bayreuth. Reuters K arl-Theodor zu Guttenberg, varn- armálaráðherra Þýskalands, var á miðvikudag sviptur doktorsnafnbót sinni eftir að hann var ásakaður um að hafa stolið stórum hluta hennar. Rüdiger Bormann, forseti Bayreuth-háskóla, sagði á blaðamannafundi að þetta hefði verið ákveðið vegna þess að ekki hefði verið beitt „réttum vísindalegum vinnubrögðum“ við skrif dokt- orsritgerðar hans. Hann talaði ekki um rit- stuld. Guttenberg hafði áður beðið háskólann um að draga doktorsnafnbótina tilbaka og sagt að á doktorsritgerð sinni væru „alvarlegir tækni- legir gallar, sem gengju þvert á viðtekin aka- demísk vinnubrögð“. „Ég er manneskja, sem hefur veikleika og gerir mistök,“ sagði Guttenberg. Mikið fjaðra- fok varð þegar dagblaðið Süddeutsche Zeitung birti frétt um að heilu kaflarnir í doktorsritgerð hans hefðu verið teknir upp úr öðrum greinum og verkum án þess að heimildar væri getið. „Ritgerð mín sem ég skrifaði er enginn rit- stuldur og ég vísa þeirri ásökun frá mér af öll- um krafti,“ sagði hann í upphafi. Það varð þó fljótlega ljóst að erfitt yrði fyrir hann að standa við þau orð. Í nýjasta tölublaðið Der Spiegel voru birtir heilir kaflar hlið við hlið sem voru svo til samhljóða. Aðeins hafði verið hnikað til orði hér og þar án þess að það hefði áhrif á merkingu og stafsetningarvillur fái jafnvel að fljóta með. Netverjar tóku sig til, fínkembdu ritgerðina og leituðu sambærilegra kafla á net- inu. Afraksturinn má finna með því að slá inn slóðina http://de.guttenplag.wikia.com/wiki/ Plagiate. Á miðvikudag höfðu fundist kaflar, sem teknir voru annars staðar án þess að heim- ildar væri getið, á 286 síðum eða 72,77% af síð- unum, sem teljast meginmál ritgerðarinnar. Þegar frá er tekið efnisyfirlitið, tilvitnanir aft- ast og heimildaskrá er ritgerðin 394 síður. Guttenberg hefur verið vinsælasti stjórn- málamaður Þýskalands. Honum hefur þótt fylgja ferskur andblær, en nú velta menn vöngum yfir því hvaða áhrif þetta mál muni hafa á feril hans. Stjórnarandstaðan hefur kraf- ist afsagnar Guttenbergs vegna málsins og sak- að hann um svik og undirferli. Angela Merkel, kanslari og flokkssystir varnarmálaráðherrans, hefur hins vegar veitt honum fullan stuðning. Stuðningur hins stjórnarflokksins, frjálsra demókrata, hefir aftur á móti verið hálfvolgur. Fjölmiðlar á vinstri vængnum hafa gagnrýnt Guttenberg. Vinstrablaðið Tageszeitung spurði hvernig ætti að vera hægt að trúa orðum hans hér eftir og gagnrýndi Merkel: „Sú staðreynd að hún er tilbúin að hafa lygara í stjórninni til að viðhalda valdajafnvæginu er ekki bara óverðugt embætti hennar. Það er hneyksli.“ Í Der Spiegel er farið í Guttenberg af hörku. Þar segir að „nálgun hans til fræðimennsk- unnar sé ekki: Ég vil koma miklu í verk. Held- ur: Ég vil að þú haldir að ég hafi komið miklu í verk.“ Greininni lýkur á þeim orðum að hann hefði kannski betur lesið endurminningar afa síns, Karls-Theodors zu Guttenbergs, sem komu út undir heitinu Neðanmálsgreinar. Viðskiptablaðið Handelsblatt studdi hins vegar Guttenberg í forsíðuleiðara. Þar segir að hann sé fulltrúi „vonarinnar um að Þýskaland geti fært sig inn í framtíðina … verkefnið sem bíður hins unga stjórnmálamanns er mikil- vægara en mistök hans. Hann á enn ýmislegt ólært, þar á meðal auðmýkt. En þetta ætti hann að læra í embætti. Veikari Guttenberg er betri en enginn Guttenberg.“ Blaðið, sem fyrst fjallaði um málið, skrifar að Guttenberg ætti að skammast sín, en bætir við að málið gæti orðið honum til hagsbóta. „Gæti ritstuldarmálið jafnvel orðið til þess að greiða honum leið í kanslarastólinn?“ spurði blaðið. „„Sjáið, segir baróninn við fólkið, ég er einn af ykkur. Manneskja sem er með veikleika og gerir mistök.““ Láns- fjöðrum skilað Guttenberg sviptur doktors- titli en sívinsæll Álagið leynir sér ekki í svip Karls-Theodors zu Guttenbergs, varnarmálaráðherra Þýskalands. ReutersVikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Þýski varnarmálaráð- herrann er barón og heitir fullu nafni Karl- Theodor Maria Nikolaus Johann Jakob Philipp Franz Joseph Sylvester Freiherr von und zu Guttenberg. Á forsíðu Financial Times Deutschland var hann kallaður Barón klippa og líma1 með illkvitnislegri neðanmálsgreinar- tilvísun og Jürgen Trittin, þingflokks- formaður Græningja, kallaði hann dr. Googleberg. Baróninn - nýr auglýsingamiðill Nýtt og betra atvinnublað alla fimmtudaga Blaðinu er dreift í 85.000 eintökum á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu Sendu pöntun á finnur@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í blaðinu og á mbl.is ERATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.