SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 16

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 16
16 27. febrúar 2011 harmleikur í fjölskyldunni fékk aukna at- hygli almennings. Árið 1988, þegar fyrri eiginkona hans lést eftir að drukkinn ökumaður ók á bíl þeirra á Skúlagötunni, varð atburðurinn fljótt á allra vörum. „Þegar svona hlutur gerist verður maður fljótt umkringdur góðu fólki, vinum og fjölskyldu, sem hjálpa manni að komast í gegn um þetta, og í minningunni var það þannig. Í kjölfarið varð svo til gríðarlega sterkur hópur, Áhugahópur um bætta umferðarmenningu, sem leikkonurnar Edda Björgvinsdóttir, Guðrún Þórð- ardóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og fleiri góðar konur stofnuðu og ég held að hafi haft gríðarlega mikil áhrif. Þær beittu sér mjög ötullega í þeirri baráttu svo þessi atburður leiddi til ýmissa umbóta sem hefði þurft að vera búið að koma á löngu fyrr.“ Síðan eru liðin 23 ár og Jóhann lifir fullu fjölskyldulífi í dag, á tvo unglingsstráka, Örn Gauta sem er nýorðinn 16 ára og Jó- hann Ólaf sem er 14 ára, með konu sinni Guðrúnu Sesselju Arnardóttur hæstarétt- arlögmanni. „Það hefur gengið ágætlega að púsla saman fjölskyldulífinu hingað til, þótt við vinnum bæði mikið, kannski af því að við eigum bæði lausar stundir inn á milli. Svo er spurning hvort svona óreglu- legur vinnutími verður ekki bara vani hjá þeim sem búa við hann. Það munar líka töluvert um að börnin eru ekki lengur á handleggnum og það koma tímar inn á milli þar sem álagið er minna, það er svo- lítil „show-mennska“ í þessu.“ Þótt leiklistin hafi verið aðalvettvangur Jóhanns í gegn um tíðina hefur tónlistin aldrei verið langt undan. „Hún hefur allt- af verið fyrirferðarmikil hjá mér, alveg síðan ég var barn, enda ólst ég upp við mikla tónlist. Mamma er píanókennari og Þorsteinn Gauti bróðir minn er píanóleik- ari auk þess sem það eru margir tónlist- armenn í mínum frændgarði. Ég ólst því upp við þetta alla tíð. Í leiklistarskólanum lærði ég svo bæði söng og tónfræði og hélt því áfram eftir að ég útskrifaðist. Þá lærði ég að syngja hjá Sigurði Demetz og var fimm vetur í tónlistarskólanum hjá hon- um og svo tvo vetur hjá Kristni Sig- mundssyni. Eftir það hef ég sótt söng- námskeið reglulega og þegar ég átti inni ársfrí eftir 20 ára starf sem leikari dreif ég mig út til Ítalíu þar sem ég tók söngtíma um leið og við Guðrún stúderuðum ítölsku. Það var mjög skemmtilegt ár.“ Söngurinn hefur því ávallt átt stóran part í Jóhanni sem viðurkennir að það hafi stundum hvarflað að sér að skipta yfir í tónlistina. „En svona hefur þetta þróast og ég er ekki ósáttur við það enda hef ég verið óskaplega heppinn með að hafa allt- af haft nóg að gera í leiklistinni.“ Það var því viðeigandi að þegar Jóhann gaf út fyrstu sólóplötu sína fyrir jól urðu lög úr leikhúsinu og kvikmyndum fyrir valinu á efnisskránni. Í hestamennskunni með kollegunum Að öðru leyti eru það helst sveitin og hestarnir sem toga í Jóhann, enda upp- lýsir hann að þrátt fyrir að hafa verið ungur að árum þegar hann flutti í borgina hafi hann dvalið meira og minna öll sum- ur í sveit þar til hann varð 17 ára. „Ég fer mikið að veiða á sumrin en pabbi var nú laxabóndi í Borgarfirði á sínum tíma. Ætli ég hafi ekki erft veiðidelluna þaðan.“ Helsta áhugamálið eru þó hestarnir, en Jóhann á þrjú hross sem þurfa auðvitað sína umhirðu og athygli. „Það endurnærir mikið að fara beint úr leikhúsinu og út í náttúruna, finna ilminn af skepnunum og moka svolítinn skít, þótt ég vildi nú ekki gera það að aðalstarfi,“ segir hann kank- vís. „Vinnan við hestana er aðallega bundin við þá sex mánuði sem þeir eru á húsi en svo fara þeir í haga. Það einfaldar líka málið að við erum nokkrir saman um húsið þannig að menn skiptast svolítið á að gefa, og þegar mikið álag er hjá einum taka hinir af honum höggið.“ Í ljós kemur að húsfélagar Jóhanns eru m.a. úr leik- arastétt svo góður skilningur ríkir á vinnuaðstæðunum. „Ef einn er að fara að frumsýna eftir tvær vikur gefa hinir á meðan,“ segir Jóhann. „Við Hilmir Snær [Guðnason] höfum átt hús saman í tólf ár og Atli Rafn Sigurðsson hefur líka verið með okkur auk þess sem Sjonni heitinn Brink var með okkur í mörg ár, en konan hans, Þórunn Clausen, og Guðrún konan mín eru bræðrabörn. Svo má ekki gleyma að nefna Gunnar Gunnsteinsson sem hef- ur lengi verið með okkur í hestamennsk- unni. Þannig að ýmsir hafa verið með í hrossunum í gegn um tíðina.“ Hápunktur hestasportsins eru svo út- reiðartúrarnir, en Jóhann hefur farið í nokkrar lengri ferðir í góðra vina hópi. „Fyrir þremur árum fórum við í stórum hópi í tíu, tólf daga ferð inn að Hofsjökli sem var alveg frábær en við fórum m.a. í Kerlingarfjöll og niður hjá Helgaskála í Leppistungur og komum svo niður í Gnúpverjahrepp. Í hittifyrra fórum við í fimm daga ferð um Borgarfjörðinn og þá uppgötvaði ég eiginlega hvað það svæði er stórt – það væri hægt að vera í hestaferð- um um Borgarfjörð í nokkur ár. Sam- hengið verður svolítið öðruvísi en þegar maður brunar beint í gegn um sveitirnar á bíl.“ Framundan er hins vegar meiri leiklist: Fólkið í kjallaranum verður tekið aftur upp næsta haust og sömuleiðis er búið að bjóða Ofviðrinu til Litháens. „Síðan eru ýmsar þreifingar í gangi þannig að það er alltaf eitthvað á leiðinni, fyrir utan það sem maður er sjálfur með í pípunum,“ segir Jóhann og upplýsir að önnur plata sé í bígerð. „Ég ætla að gefa mér góðan tíma og halda mig við leikhústónlistina enda er það minn heimavöllur. En núna eru það Allir synir mínir.“ Sem Tevje í Fiðlaranum á þakinu en hlutverkið var Jóhanni ákaflega eftirminnilegt. Sem pabbinn í Fólkinu í Kjallaranum en sú sýning fer aftur á fjalirnar í haust. Í hlutverki fjölskylduvinarins Max Detweiler í Söngvaseið í Borgarleikhúsinu. Í hlutverki Joe Keller í Öllum sonum mínum sem frumsýnt verður á föstudag. Í hlutverki Marat í lokaverkefninu Marat/Sade í Nemendaleikhús- inu en með honum á myndinni er Guð- jón Pedersen. Sem leikfimikennarinn Gummi Gumm í Gaura- gangi í fyrra en þetta var í annað sinn sem Jóhann lék í því verki.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.