SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Qupperneq 22

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Qupperneq 22
22 27. febrúar 2011 Þ að var föstudagskvöld og Olof Palme, for- sætisráðherra Svíþjóðar, var að koma úr í Grand-kvikmyndahúsinu í Stokkhólmi ásamt eiginkonu sinni, Lisbet, syni og tengdadótt- ur, þar sem þau höfðu séð nýjustu kvikmynd sænska leikstjórans Suzanne Osten, Mozart-bræðurna. Eftir sýninguna kvöddust pörin með virktum og Palme- hjónin röltu í rólegheitunum niður Sveavägen í átt að neðanjarðarlestarstöðinni á Rådmansgötu, fyrir þá sem þekkja til staðhátta í Stokkhólmi. Engir lífverðir voru með í för enda var Palme frægur fyrir óvarkárni í þeim efnum – þrátt fyrir stöðu sína vildi hann lifa eins eðli- legu lífi og unnt var. Fyrir það var hann oft gagn- rýndur. Þegar hjónin áttu aðeins örfá skref ógengin að lest- arstöðinni vatt maður sér að þeim og skaut þau bæði af stuttu færi. Palme lá eftir í blóði sínu en Lisbet særðist aðeins lítillega. Ódæðismaðurinn hljóp að svo búnu niður Tunnelgötu og hvarf fljótt sjónum. Leigu- bílstjóri sem varð vitni að atburðinum hafði um- svifalaust samband við lögreglu og tvær ungar stúlkur sem voru á næstu grösum reyndu að koma hjónunum til hjálpar. Þau voru flutt á sjúkrahús, þar sem Palme var úrskurðaður látinn. Sænska þjóðin var harmi slegin yfir morðinu. Svona lagað átti ekki að geta gerst í Svíþjóð. Lögregla gagnrýnd Viðamikil rannsókn var sett af stað en vísbendingar voru af skornum skammti. Strax fyrstu dagana eftir morðið kom fram hörð gagnrýni á lögregluna, meðal annars fyrir að loka ekki landamærum strax. Einsýnt þótti að morðinginn hefði hæglega getað komist úr landi. Fljótlega var kunnur öfgamaður, Victor Gunnarsson, tekinn höndum en engar sannanir lágu fyrir gegn honum. Gunnarsson var því sleppt. Hann flutti síðar til Bandaríkjanna, þar sem hann var myrtur. Hans Holmér, lögreglustjóri í Stokkhólmi, lagði áherslu á að fylgja eftir ábendingu um að samtök Kúrda í Svíþjóð, PKK, hefðu verið á bak við morðið á Palme. Ekki var hægt að færa sönnur á það og Holmér hrökklaðist á endanum frá rannsókn málsins. Í desember 1988, tæpum þremur árum eftir dauða Palmes, var Christer Pettersson, drykkjumaður og góðkunningi lögreglunnar, handtekinn grunaður um glæpinn, eftir að frú Palme hafði bent á hann í sak- bendingu. Hann var dæmdur fyrir morðið í undirrétti en eftir áfrýjun sýknaði hæstiréttur hann. Rök dóms- ins voru einkum þríþætt. Í fyrsta lagi var morðvopnið ófundið; í annan stað hafði hann enga augljósa ástæðu til að fremja glæpinn og í þriðja lagi þótti réttinum vitnisburður frú Palme ekki nógu áreiðanlegur. Alþjóðlegt samsæri? Petterson lá áfram undir grun en ekki var hægt að höfða annað mál á hendur honum nema nýjar upplýs- ingar kæmu fram. Frekari upplýsingar koma heldur ekki frá honum úr þessu því Petterson lést haustið 2004 af völdum heilablæðingar eftir slys. Fjöldi vitna hefur borið að Petterson hafi gengist við morðinu. Palme lét mikið til sín taka á alþjóðavettvangi. Hann hafði m.a. skömm á aðskilnaðarstefnunni í Suður- Afríku og barðist fyrir afnámi hennar. Tíu árum eftir morðið bar Eugene de Kock, fyrrverandi lög- reglumaður, fyrir rétti í Pretoríu að Palme hefði verið myrtur af þessum sökum. Hann nafngreindi meira að segja manninn sem hann taldi hafa framið verknaðinn. Sænska lögreglan sendi í kjölfarið menn til Suður- Afríku en þeir fundu ekkert sem renndi stoðum undir orð de Kocks. Mörgum fleiri kenningum hefur verið kastað fram gegnum árin, svo sem að Baader-Meinhof-hópurinn í Þýskalandi og fasisti frá Síle hafi banað Palme, en ekk- ert sannast í þeim efnum. Um 130 hafa játað Um það bil 130 manns hafa játað fyrir lögreglu í Sví- þjóð, að hafa myrt Palme. Síðasta játningin kom fyrir nokkrum árum en að sögn Stig Edqvist, sem stýrir sérstökum þriggja manna rannsóknarhópi sænsku lög- reglunnar, reyndist hún uppspuni eins og aðrar á undan. Að óbreyttu hefði málið fyrnst á morgun en lögum var breytt á síðasta ári þannig að rannsóknin getur haldið áfram. Safnað hefur verið gríðarlegu magni gagna um málið og ná skjölin yfir 225 hillumetra í skjalasöfnum lög- reglunnar. Edqvist segir að rannsóknin sé sennilega orðin umfangsmeiri en rannsóknin á morðinu á John F. Kennedy og Lockerbie-sprengjuárásinni. Edqvist segist ekki vita hvað rannsóknin hefur kost- að en fyrir fimm árum var áætlað að kostnaðurinn væri orðinn hálfur milljarður sænskra króna, rúmlega 9,1 milljarður íslenskra króna. Allar líkur eru á að sú upphæð haldi áfram að hækka. Christer Pettersson, morðingi eða ekki morðingi? AP Gátan sem seint verður ráðin Aldarfjórðungur verður á morgun liðinn frá því að Olof Palme, forsætisráðherra Svía, var skotinn til bana á götu úti í Stokkhólmi. Tvær til þrjár vísbendingar berast lögreglu daglega en rannsakendur viðurkenna eigi að síður að lausn málsins sé ekki í sjónmáli. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.