SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Síða 43

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Síða 43
27. febrúar 2011 43 Dagný Kristjánsdóttir getur um brautryðj- andann Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm. Torfhildur fæddist á Kálfafellsstað 2. febrúar 1845 og ólst þar upp. Faðir henn- ar var Þorsteinn Einarsson prestur, en móðir hennar Guðríður Torfadóttir. Torfhildur fór til Reykjavíkur 17 ára gömul til náms á heimili Guðnýju Helga- sen, systur Helga Helgasen, barna- skólastjóra og síðar á heimili Jóns háyfir- dómara Péturssonar. Hún lærði líka hannyrðir og teikningu, meðal annars hjá Sigurði málara Guðmundssyni. Eftir fjögurra ára dvöl í Reykjavík hélt hún til Kaupmannahafnar og var þar eitt ár að nema tungumál og hannyrðir, sneri svo heim og tók að sér einkakennslu hjá Jósep Skaptasyni lækni á Hnausum í Húnavatnssýslu. Árið 1872 fluttist hún með Ragnhildi systur sinni og Eggerti Ólafssyni Briem manni hennar til Skagastrandar. Þar gift- ist hún Jakobi Hólm kaupmanni 1874, en hann lést réttu ári eftir giftinguna. 1878 fluttist Torfhildur til Bandaríkj- anna með vinkonu sinni, Rannveigu Ólafsdóttur Briem, og manni hennar Sig- tryggi Jónssyni og settist að í Winnipeg. Þar skrifaði hún fyrstu smásögurnar og síðan skáldverkið Brynjólfur Sveinsson biskup. Upp frá því hafði Torfhildur ekki aðra atvinnu en ritstörf og því hefur verið haldið fram að hún hafi verið fyrsti Íslend- ingurinn sem hafði ritstörf að aðalatvinnu og lifði af þeim. Í kvennablaðinu Fram- sókn kemur fram að Torfhildur hafi einnig stundað listnám vestan hafs, talsvert málað og hlotið verðlaun fyrir máluð blóm á sýningu. Torfhildur fluttist hingað til lands sum- arið 1889 og stofn- setti tímarit, bók- menntatímaritið Draupni á árunum 1891 til 1908 og tíma- ritið Dvöl á árunum 1901 til 1917, skrifaði sögur og tvær skáld- sögur til. Hún fékk styrk „til ritstarfa“ frá Alþingi 1891, sú fyrsta sem fékk slíkan rithöfundastyrk, sem varð umdeilt, enda þótti sumum hún ekki standast sam- jöfnuð við þau skáld sem hæst bar. Í Bjarka, blaði Þorsteins Gíslasonar, ber Sigurður Sigurðsson í Kaupmannahöfn saman bók Torfhildar um Brynjólf Sveins- son og ljóðaflokk Þorsteins Erlingssonar um sama efni með þessum orðum: „Skáldið yrkir, vinnukonan skrifar.“ Deil- urnar urðu til þess að styrkurinn var lækkaður úr 500 krónum í 200. Ekki voru allir sama sinnis og Sigurður og þannig skrifaði Matthías Jochumsson 1889 svo um Torfhildi í blaðið Lýð sem hann ritstýrði: „Óskandi væri að alþýða vor vildi kepp- ast við að sýna þessari gáfuðu konu, og fyrsta íslenzka rithöfundi hennar kyns, allan sóma og velvild – meðan hún lifir. Margir menn og konur fá fulla viðurkenn- ing, en heldur seint.“ Torfhildur lést í spænsku veikinni í nóv- ember 1918, 73 ára gömul. Bækur henn- ar eru Brynjólfur Sveinsson biskup, Eld- ing, Jón biskup Vídalín og Jón biskup Arason, en einnig liggur eftir hana nokk- uð af smásögum. Brautryðjandinn Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm Torfhildur Holm hennar að þegar hún fór í nám til Rúss- lands á sjöunda áratugnum voru örfáar skáldkonur áberandi hér á landi. Þegar hún sneri svo til baka rúmum áratug síðar er myndin gjörbreytt vegna þess að þá voru margar ungar skáldkonur komnar fram á sjónarsviðið, Rauð- sokkahreyfingin hafði umtalsverð áhrif hér sem annars staðar,“ segir Dagný. Í því sambandi megi ekki gleyma baráttu Helgu Kress fyrir því að brjóta niður karllæga háborgarbyggingu íslenskrar menningar með greinaskrifum og kennslu. Jafnréttissinnaðir karlar hafi líka brett upp ermarnar. Allir lesa karlana Ekki liggja fyrir tölur um kynjaskipt- ingu í bókaútgáfu hér á landi, en tölur frá Bretlandi og Bandaríkjunum benda til þess að þar komi út nokkuð fleiri skáldverk kvenna en karla þótt þess sjái ekki stað í verðlaunaveitingum og við- urkenningum. Dagný segist halda að hlutfallið sé annað hér á landi, þ.e. hvað varðar útgefin skáldverk, en for- vitnilegt væri að skoða þær tölur meðal annars með það í huga hvort karlar séu líklegri til að senda skáldverk til útgef- anda, útgefendur líklegri til að gefa út bækur eftir karla en konur, gagnrýn- endur líklegri til að fjalla um bækur karla og svo mætti telja. „Það hefur hins vegar verið vís- indalega sannað að ef hlutfall kvenna fer yfir 20-25% prósent í bókmennta- sögu telja menn það hræðilega fem- íníska slagsíðu,“ segir hún og hlær, „þar liggja sársaukamörkin í jafnrétt- inu.“ Hún leggur áherslu á að ekki sé gott að treysta á tölfræði nema rýnt sé rækilega í hana, en það þó ljóst að kon- ur séu meirihluti lesenda hér á landi sem og víða erlendis. „Karlar lesa helst bækur eftir karla, en konur lesa bækur eftir bæði konur og karla. Það má því segja að allir lesi karlana en bara kon- urnar konur. Ef þetta heldur áfram er langt í land með að konur sem eru rit- höfundar nái þeirri áheyrn og þeirri virðingu sem þær hafa barist svo hart fyrir.“ Enginn kynbundinn munur „Það var mikið rætt um það í hópi kvennabókmennafræðinga fyrir þrjátíu árum eða svo hvort hægt væri að búa til sérstaka kvennabókmenntafræði til að kanna kvennamenningu og kvennafag- urfræði, en aðferðafræðilega séð er eng- inn kynbundinn munur á bókum karla og kvenna og ekki einu sinni munur á hvaða efni menn velja sér, það er helst að sjá mun í sjónarhorni og reynslu höfundar. Heimspekingurinn Stanley Cavell hefur sagt að rithöfundurinn sem leggur texta sinn fyrir þig segi þar með: Þetta er það sem ég sé. Getur þú séð það líka? Í þessu felst mikið traust til lesandans og vilji til að ná til hans og það er ekki gott ef menn láta fordóma stoppa sig í því að hlusta á hitt kynið.“ Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna verða kynntar á Borgarbókasafninu við Tryggvagötu á morgun kl. 16:00. Að þessu sinni verða í fyrsta sinn til- nefndar þrjár bækur í hverjum flokki, flokki fagurbókmennta, fræðibóka og barna- og unglingabóka, níu bækur alls. ’ Menn vildu ekki kerf- isbreytingu sem þeir gátu ekki séð annað en myndi fara illa, heim- urinn myndi farast og óreiðan ríkja. Svona ofboð má sjá þegar rætt var um kvenréttindamál. Dagný Kristjánsdóttir: „Það hefur hins vegar verið vísindalega sannað að ef hlutfall kvenna fer yfir 20-25% prósent í bókmenntasögu telja menn það hræðilega femíníska slagsíðu," Morgunblaðið/Ernir

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.