SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 4

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 4
4 27. mars 2011 Leiðtogar Evrópusambandsins komu saman í Brussel fyrir helgina til að ræða björgunaraðgerðasjóð fyrir aðþrengd ríki á evrusvæðinu. Á fimmtudag náðist áfangi í þeirri vinnu þegar fallist var á kröfu, sem Þjóðverjar höfðu sett fram á síðustu stundu. Gert er ráð fyrir því að sjóðurinn verði aflögufær um 440 milljarða evra í júní, en áætlanir gera ráð fyrir að þar verði 700 milljarðar evra þegar upp verður staðið. Nú er hins vegar talið að sjóðurinn gæti lánað 200 milljarða evra. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur verið gagn- rýnd harðlega fyrir að taka þetta í mál og fær kaldar kveðjur í flestum fjölmiðlum, jafnt til hægri sem vinstri. „Gamla loforðið um að við munum „ekki borga fyrir aðra“ hefur verið brotið enn einu sinni,“ sagði í Bild, útbreidd- asta blaði Evrópu. Í dagblaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung sagði: „Saga evrunnar er röð af sviknum loforðum. Evrópu- bandalagið er að verða bandalag um tilfærslu á fé þar sem Þjóðverjar og Frakkar eru bjargvættirnir.“ „Saga evrunnar röð af sviknum loforðum“ David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Nicolas Sarkozy, forseti Bretlands, og Barut Pahor, forsætisráðherra Slóveníu, á leiðtogafundinum í Brussel í gær, föstudag. Reuters S tjórnarkreppan í Portúgal gæti dregið dilk á eftir sér. Forsætisráðherra landsins, Jose Socrates, sagði af sér á miðvikudag eftir að allir fimm stjórnarandstöðuflokkarnir greiddu atkvæði gegn niðurskurðarfrumvarpi minnihlutastjórnar hans þar sem lagðar voru til frekari skattahækkanir og launalækkanir. Anibal Cavaco Silva, forseti Portúgals, fundaði í gær með forustumönnum stjórnmálaflokkanna til að reyna að leysa úr stjórnarkreppunni, en fátt virðist geta komið í veg fyrir að gengið verði til kosninga í landinu. Tugir þúsunda manna hafa mótmælt aðgerðum ríkisstjórnarinnar í Lissabon og öðrum borgum landsins undanfarnar helgar og ríkir mikil ólga meðal almennings. Sósíalistaflokkur Socratesar fengi samkvæmt könnun, sem birt var í gær, 24,5% atkvæða, en Sósíaldemókrataflokkurinn 46,7% og hægri-miðflokkarnir í stjórnarandstöðu samanlagt meirihluta ef kosið yrði nú. Niðurskurðaráætlunin var sú fjórða á einu ári og ætlunin með henni var að koma í veg fyrir að Portúgalar þyrftu að verða þriðja þjóðin á evru- svæðinu á eftir Írum og Grikkjum til að leita ásjár hjá Evrópusambandinu um neyðarlán upp á tugi milljarða evra. 75 milljarðar evra hafa verið nefndir og það verður ekki ódýrt lánsfé því að vaxtastigið á lánum portúgalska ríkisins er komið upp í átta af hundraði. Margir telja að því verði ekki afstýrt að taka neyðarlán fyrst ekki tókst að koma niðurskurðarfrumvarpinu í gegn. Hallinn á ríkissjóði Portúgals var 9,3% af þjóð- arframleiðslu árið 2009 og í ár átti að reyna að ná hallanum niður í 4,6%. Til marks um vanda Portúgala er að þeir þurfa að reiða fram 28 millj- arða evra í endurgreiðslu af lánum á næstu þremur árum og 29 milljarða evra til viðbótar til að vega upp á móti fjárlagahallanum, samkvæmt grein- ingu Commerzbank í Þýskalandi. Matsfyrirtækin Standard og Poor’s og Fitch biðu ekki boðanna að lækka lánshæfismat Portúgals. Stjórnmálaskýrendur hafa velt fyrir sér for- sendum ákvörðunar stjórnarandstöðunnar um að fella frumvarp stjórnarinnar og bent á að erfitt sé að skilja rökin að baki henni, sérstaklega vegna þess að þurfi Portúgalar að sækja um aðstoð og leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins blasi við enn harðari aðgerðir hvað snerti niðurskurð í út- gjöldum, skattahækkanir og sölu á eignum. Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, sagði að fyrst hefði skollið á „bankakreppa, sem síðan varð að efnahagskreppu og félagslegri kreppu og í dag varð að pólitískri kreppu“. Ástandið í Portúgal hefur vakið ugg víða í Evrópu og er sérstaklega horft til þess hvaða áhrif kreppan í Portúgal muni hafa á viðkvæmt efnahagslífið á Spáni. Sérfræðingar, sem fréttastofan AFP leitaði til, sögðu að Spánn ætti að sleppa við dómínóáhrif af því að Portúgal fengi aðstoð vegna þeirra umbóta, sem Spánverjar hefðu gert á lífeyriskerfi sínu, vinnumarkaði og fjármálageiranum. Þeir benda hins vegar á að áhætta Spánverja liggi í því að spænskir bankar eigi 80 milljarða evra útistandandi í lánum til Portúgals. Þá sé at- vinnuleysi á Spáni enn 20% hvað sem umbótum líði, hagvöxtur óverulegur og talið að fjármögn- unarþörf bankageirans muni nema 10 milljörðum evra á næstu mánuðum. Eins og einn viðmælandi AFP orðaði það er jaðar Evrópu enn í eldlínunni. Jaðar Evrópu er enn í eldlínunni Stjórnarkreppa í Portúgal og neyðarlán spurning um tíma Portúgalar mótmæla niðurskurði í Lissabon. Reuters Jose Socrates, forsætisráðherra Portúgals, til- kynnti afsögn sína á miðvikudag. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is „Grundvallargalli sam- komulagsins [um björg- unarsjóð fyrir evrusvæðið] er að það er sniðið að skulda- kreppu framtíðarinnar, en snýst ekki um það hvað eigi að gera við foldgná skuldafjöll fortíðarinnar veigri markaður- inn sér við frekari fjár- mögnun.“ Thomas Mayer, yfirhagfræð- ingur Deutsche Bank, í sam- tali við Die Zeit. Tekur ekki á fortíðarvanda

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.