SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 12

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 12
12 27. mars 2011 É g vil ekki halda því fram að menn séu að gabba vísvitandi eins og einhvers staðar virðist hafa komið fram. Það finnst mér of harkalegt. En ef tækið virkar ættu þeir sem fram- leiða það og selja að geta útskýrt fyrir mér á einfaldan hátt hvað gerist inni í brunahólfinu sem fær vélina til að vinna með 30% meiri nýtni og 30% meira afli, og að mengunin verði allt að 80% minni eins og haldið hefur verið fram. Það hef- ur ekki verið útskýrt fyrir mér og ekki lagðar fram neinar rannsóknir. Miðað við það sem ég hef heyrt er tækið sett í gamla bíla en ég trúi því ekki að tækið sjálft bæti vélarnar. Þegar það er sett í bílinn er vélin eflaust stillt í leið- inni þannig að hún vinnur betur en áð- ur; kannski eyðir bíllinn minna á eftir en það sannar ekki að tækið virki. Mér finnst líklegra að það væri vegna þess að fólk hugi meira en áður að því hvernig það ekur. Vandamálið er ekki vetnið sem slíkt heldur hvar það er framleitt. Það kostar orku að framleiða vetni og ef það er gert með rafmagninu í bílnum er það gert með því að brenna eldsneyti. Orkan kemur úr bensíninu eða díselolíunni og fer bara aðra leið út í hjólin en kemur úr sömu uppsprettunni. Menn græða því ekki nýja orku. Ég hef heyrt að tækið eigi að bæta brunann mikið en sannleikurinn er sá að hefðbundin nútímabílvél brennir elds- neytinu nánast fullkomlega, 99,9%, og því er ekki hægt að gera betur. Þessi þáttur stenst því ekki. Ef þeir geta útskýrt nákvæmlega hvað gerist, hvaðan aukaorkan kemur, er hugsanlegt að ég fari að taka þetta alvar- lega en á meðan vetnið er framleitt um borð í bílnum með bílarafmagninu sé ég enga leið til þess að þetta geti hugs- anlega virkað. Það vita allir að hægt er að stilla vélar mismunandi; hægt er auka aflið en þá eykst líka eldsneytiseyðslan og öfugt; sumar vélar eru nýtnari en aðrar en þær eru þá líka aflminni. Þetta brýtur því ekki bara lögmál eðlisfræð- innar heldur einnig lögmál almennrar skynsemi. Upplýsingar um þessa tækni hafa gengið manna á milli lengi og búnaður- inn virðist vera ódýr, en samt sem áður hefur enginn framleiðandi í heiminum enn sett hana í bílana sína. Bara það þykir mér grunsamlegt. Ég myndi því alls ekki mæla með því að fólk keypti þetta tæki og setti í nýja bíla. MEÐ Ágústa Loftsdóttir eðlisfræðingur Er vetnisbúnaðurinn í bifreiðir bara gabb? ’ Hefðbundin nútíma- bílvél brennir elds- neytinu nánast full- komnlega, 99,9%, og því er ekki hægt að gera betur. Þessi þáttur stenst því ekki. Sveinn Hrafnsson greindi frá því nýverið að hann hefði fundið upp búnað sem dregur bæði úr eldsneytisnotkun bíla og mengun. Ýmsir segja orð hans ekki standast. Mánudagur Vigdís Grímsdóttir Menn virðast ekki sammála um að 23% sé minna en 77%, ef málið snýst um viðveru kvenna og karla í Kilj- unni. Æ – svona nú, gott fólk! Um þetta þarf ekki að fjölyrða og hæl- bítast. Þessu þarf bara að breyta og það er sem betur fer svo lítið mál. Lærum af mistökunum! Það er enginn að biðja um að neinn sé (d) rekinn! Hvaða viðkvæmni er þetta? Er ekki gagnrýnin af hinu góða? Þriðjudagur Katrín Pálsdóttir Er að horfa á þýska boltann á RÚV. Vinir mínir á íþróttadeildinni kunna ekki lengur nöfnin á liðunum – Bayern Münc- hen, það fræga lið, nefna þeir alltaf FC Bayern. Föstudagur Kjartan Birgisson Mæli með að allir vondir, menn og konur, gangi með einhvers konar auðkenni til aðgreiningar frá okkur hinum. T.d. grímu um augu (sígilt) eða í ljótum leðurjökkum með misljótum merkjum. Fésbók vikunnar flett V ið áttum von á gagnrýni, en vonuðum samt að fræðifólk myndi setja sig í samband við okkur fyrst. Það er rétt að vetnisbúnaðurinn gerir ekki mikið fyrir vélar sem nýta eldsneytið 100% eða mjög nálægt því, hvort sem um er að ræða bensín- eða díselvélar en það er margt sem þarf að skoða þegar kemur að nýtni eldsneytis og bílafloti Íslendinga yngist ekki í kreppunni. Við erum ekki að tala um mikla raforku af bílnum fyrir vetnisframleiðslu og henni er ekki ætlað að knýja bílinn áfram. Sá misskilningur virðist útbreiddur. Í vetnisframleiðsluna notum við á við ljósabúnað bifreiða,10-15 amperstundir. Ef það er mikið og veldur mun meiri mengun og eldsneytisnotkun væri líklega ráð að hætta dagljósaskyldu. Bensín og díselolía eru sóðalegustu orkugjafar sem til eru og ef vél brennir ekki eldsneyti nálægt 100%, sem fæstar gera til lengri tíma, safnast upp kolefnasót í sprengirýmið og hefur mikil áhrif á end- ingu véla og nýtni eldsneytis. Við höfum sett búnaðinn í um það bil 30 mótorhjól og jafnmarga bíla og enginn er óánægður. Þegar menn, á ökutækjum sem nýttu eldsneytið sem verst, koma með tárin í augunum og segjast komast 50% lengra en áður get ég ekki séð að mengun hafi bara aukist í heildina. Ástand öku- tækjanna er misjafnt, það endurspegla tölur um sparnað líka; hann getur verið 10% til 50%. Svo er það aflaukningin sem að sama skapi skýrist af slæmu ástandi ökutækis fyrir vetnið. Ökutækið er léttara í akstri og minna þarf að stíga á bensíngjöfina til að koma bílnum af stað. Ég geri mér grein fyrir að þetta er allt mjög ótrúlegt, og erfitt að meðtaka, en reynslusögurnar eru of margar til að hægt sé að kæfa þetta niður. Bifreiðir eru í misjafnlega góðu ástandi og við eigum örugglega eftir að lenda á bíl þar sem búnaðurinn skilar ekki árangri. En þá er málið svo einfalt að við end- urgreiðum kostnaðinn að fullu. Við get- um ekki verið sanngjarnari en það. Hjá okkur eru dyrnar alltaf opnar og við bjóðum FÍB-menn velkomna. Von- andi taka þeir boði okkar og sannreyna jafnvel búnaðinn sjálfir í framhaldinu. Hjá okkur er reyndar opið fyrir alla sem vilja kynna sér málið frekar. Ég gæti lært mikið af eðlisfræðingum og þeir sjálfsagt lært mikið um vélar hjá mér. Ég held það væri skynsamlegra að vinna saman að orkulausnum fyrir samfélagið í heild. MÓTI Sveinn Hrafnsson uppfinninga- maður ’ Við erum ekki að tala um mikla raforku af bílnum fyrir vetn- isframleiðslu og henni er ekki ætlað að knýja bílinn áfram. Sá misskilningur virðist útbreiddur

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.