SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Side 19

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Side 19
27. mars 2011 19 nafni, sem tekið hafði sæti í æðsta ráði Litháens. Skiptust þeir ótt og títt á bréf- um og föxum en erfiðlega gekk fyrir al- menning að ná símasambandi á þessum tíma, að sögn Arnórs. Það var helst um miðjar nætur. Nú þurftu Litháar nauðsynlega að galdra upp einhvern stuðning við mál- stað sinn. Á fundi ráðamanna þingsins dró Genzelis upp bréf frá Arnóri þess efnis að bróðir hans, sem gegndi embætti utanríkisráðherra á Íslandi, væri reiðubúinn að styðja sjálfstæði þjóð- arinnar. „Þarna lifnaði yfir Vytautas Landsbergis, sem orðinn var forseti þingsins, en við kynntumst gegnum sameiginlegan vin meðan ég var við nám í Edinborg í kringum 1970.“ Úr varð að Landsbergis hringdi í Jón Baldvin Hannibalsson og bað hann að koma til hjálpar. Jón Baldvin staðfesti vilja sinn. „Þessi afstaða mætti talsverðri andstöðu hér heima,“ rifjar Arnór upp. „Til voru þeir sem fannst hún ógna við- skiptahagsmunum okkar. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra stóð hins vegar með Jóni og Jón fór að undirbúa ferð sína til Eystrasaltsríkjanna í þeim tilgangi að styðja sjálfstæðisbaráttu þess- ara þjóða.“ Arnór fór með í ferðina sem ráðgjafi og túlkur og það kom í hans hlut að útvega vegabréfsáritun fyrir hópinn í sovéska sendiráðinu í Helsinki. „Eftir japl, jaml og fuður skellti starfsmaðurinn vega- bréfunum með fýlusvip á borðið,“ rifjar hann upp brosandi. Ferðalagið var ekki vel séð austur í Kreml. Grunaði að skotið yrði á bílalestina Íslenska sendinefndin lenti í Ríga að kveldi 18. janúar 1991 og tók forseti lettneska þingsins á móti henni. „Okkur var skipt niður á bíla. Mér var ekið í Volga-bíl á ofsahraða inn í borgina. Við hliðina á mér sátu lífverðir – í buxnavös- um glitti í skammbyssur. Við vissum það ekki fyrr en síðar en þeir höfðu sterkan grun um að skotið yrði á bílalestina. Þess vegna óku þeir svona hratt,“ segir Arnór. Í Riga hitti Jón Baldvin m.a. Gorbanov Lettlandsforseta og hlaut hópurinn góðar viðtökur. Hótelið, sem hópurinn gisti á, var gegnt innanríkisráðuneytinu. Íslending- arnir voru ekki fyrr farnir frá Riga en svarthúfusveitir Borís Púgós innanrík- isráðherra Sovétríkjanna réðust á lettn- eska innanríkisráðuneytið handan göt- unnar. Í Vilníus urðu miklir fagnaðarfundir með Genzelis og Landsbergis annars veg- ar og þeim Hannibalssonum hins vegar og var gestunum meðal annars sýnt myndband af árásinni á sjónvarpsturninn fáeinum dögum áður. „Við áttum langt samtal við Gediminas Vagnorius for- sætisráðherra og fleiri ráðamenn og urð- um margs vísari.“ Loks lagði hópurinn leið sína til Tall- inn, þar sem fundað var með Edgar Sav- isaar forsætisráðherra og Lennart Meri sem seinna varð forseti Eistlands. Arnór áréttar að aðeins hafi verið um viljayfirlýsingu af hálfu íslenskra stjórn- valda að ræða enda uppfylltu Eystrasalts- löndin ekki öll skilyrði um fullvalda ríki á þessum tímapunkti. En Jón Baldvin stað- festi í ferðinni að viðurkenningin kæmi um leið og efni stæðu til. Alþingi sam- þykkti viljayfirlýsingu í febrúar og loka- kaflinn gerðist í ágúst sama ár með und- irskrift í Höfða að viðstöddum utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litháens. Tóku því sem að höndum bar Arnór segir loft hafa verið læviblandið í höfuðborgunum þremur meðan á heim- sókninni stóð. Svarthúfusveitirnar hafi verið fjölmennar og við öllu búnar. „Það sveif mikið óöryggi yfir vötnum en úr því sem komið var þýddi ekki annað en að taka því sem að höndum bar. Menn hóp- ast ekki út í horn og skjálfa af ótta,“ svarar Arnór spurður um andrúmsloftið þennan örlagaríka janúarmánuð fyrir tuttugu árum. Hann er ekki í vafa um að heimsóknin hafi skilað árangri. „Borís Jeltsín hafði verið í Tallinn rétt á undan okkur og eftir að utanríkisráðherra NATO-ríkis hafði verið í borgunum þremur sá Gorbatsjev líklega sæng sína upp reidda. Hann neyddist til að slíðra sverðin enda var vonlaust að sameina bandalag frjálsra ríkja með hervaldi. Hvað hefði gerst hefðu Sovétmenn byrjað að brytja þetta fólk niður? Ljóst er að harðlínumenn beittu hann miklum þrýstingi heima fyr- ir en Gorbatsjev stóð það af sér. Þegar á hólminn var komið höfðu harðlínumenn ekki eins mikið fylgi og þeir héldu. Það sýndi sig þegar þeir reyndu að setja Gor- batsjev af um sumarið. Við Íslendingar megum vera stoltir af aðkomu okkar að sjálfstæðisbaráttu þessara þjóða og þakk- lætið er mikið. Það er Íslandsgata í Vil- níus og Íslandstorg í Tallinn, svo dæmi séu tekin. Þetta fólk ber góðan hug til Ís- lendinga. Þess má geta að Lennart Meri kom í heimsókn til Íslands 1997. Þá sagði hann í viðtali í íslenska sjónvarpinu að heimsókn Jóns Baldvins til Vilníus í jan- úar 1991 hefði verið „the turning point“. Hann átti við það að eftir þetta var von- laust að Sovétríkin héldu áfram að vera til, og að Litháen héldi áfram að vera til sem sovétlýðveldi.“ Lík eins fórnarlambanna sem féllu í árás svarthúfusveitanna á sjónvarpsturninn í Vilníus. Örþreyttir heimamenn í Vilníus hvíla lúin bein, reiðubúnir að verjast með gömlum rifflum.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.