SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Page 34
34 27. mars 2011
V
ölundur Snær Völundarson,
eða Völli eins og hann er best
þekktur, er kominn langt frá
sínum æskuslóðum. Hann ólst
upp við Laxá í Aðaldal í Þingeyjarsýslu
en býr nú með eiginkonu sinni Þóru Sig-
urðardóttur og börnum þeirra tveimur á
Bahamaeyjum.
Íslenskt matarferðalag
Völli er í stuttu stoppi heima á Íslandi
þegar blaðamaður hittir hann í notalegri
íbúð sem fjölskyldan hefur til umráða í
kjallaranum hjá tengdó. Hann kippir sér
lítið upp við íslenskan snjó og kulda.
Segist eiginlega eiga sér íslenskan fata-
skáp og það sé ágætt að þurfa stundum
að klæða sig í hlýja peysu. Aðspurður um
lífið á hlýrri slóðum segir Völli það ekki
hafa stöðvað sig að þiggja starf svo fjarri
heimahögunum. Fyrstu þrjú árin fór
hann þó ekki heim, sem hann segir hafa
verið of langt. Eftir að börnin komu til
sögunnar segir Völli Ísland toga enn
meira í sig. Fjölskyldan kann þó vel við
sig ytra og býr nú þar saman eftir flakk á
milli landa undanfarin ár. Umhverfið í
veitingarekstri hefur breyst til muna á
Bahamaeyjum eftir hrun en Völli og Þóra
hafa síður en svo setið auðum höndum.
Hráefni við Íslandsstrendur
Völli er nýkominn frá París
þar sem hann kynnti nýjustu bók sína,
Silver of the Sea, á stærstu kokkabóka-
messu heims. Hugmyndin kviknaði árið
2008 en í bókinni er að finna þær 40
fisk- og krabbategundir sem finnast við
strendur Íslands og nýttar eru í mat-
argerð. Við gerð bókarinnar fékk Völli til
liðs við sig þá Hauk Ágústsson, sem
skrifaði fræðitexta um hverja tegund, og
Jón Baldur Hlíðberg náttúruteiknara,
sem sá um teikningar í bókina. Auk
Gunnars Konráðssonar ljósmyndara sem
tók bróðurpartinn af ljósmyndunum í
henni. Bókin hefur þegar verið
tilnefnd til verðlauna sem besta
kokkabókin árið 2011 og verður
með í keppni næsta árs þar sem
hún er rétt ókomin út. Völli
segir nálægðina við ferskt
hráefni ætíð hafa verið mikla.
„Ég er alinn upp í sveit við
mikla laxveiðiá og fór á sjó
13 ára gamall. Hveravellir
eru þarna fyrir ofan og
pabbi gaf mér haglabyssu
þegar ég var 12 ára til að
fara á skytterí, þannig að hráefnið var
Völli er alinn upp við eina mestu laxveiðiá Íslands en er hér við veiðar í fallegu umhverfi á Bahamas eyjum.
Ljósmynd/Gunnar Konráðsson
Náttúran
kveikjan
Matreiðslumeistarinn Völundur Snær Völund-
arson er með mörg járn í eldinum. Hann rekur
veitingastað á Bahamaeyjum, gefur út bækur og
framleiðir sjónvarpsþætti. Nýjasta bók hans, Sil-
ver of the Sea, hefur þegar verið tilnefnd sem
besta kokkabókin árið 2011.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Völli ætlaði upphaflega að verða íþrótta-
kennari. Hann stundaði nám í Lauga-
skóla í Þingeyjarsýslu en sá á sumrin
um matreiðslu í veiðihúsinu við Laxá í
Aðaldal ásamt móður sinni. Á þessum
árum var framtíðin ráðin þegar heim-
ilisfræðikennarinn í Laugaskóla ráðlagði
Völla að gerast frekar kokkur. Honum
fannst gaman að elda og ákvað að
fylgja þessum ráðum. Árið
1991 komst hann á
samning hjá Perlunni
sem þá var verið að
opna. Samhliða vann
hann öll sumur í veiði-
húsinu og sem barþjónn
á Ömmu Lú til að drýgja
tekjurnar. Úr Perlunni lá
leiðin til
Frakklands í rúma tvo
mánuði og síðan til Ore-
gon í rúmt hálft ár. Þar eld-
aði Völli á hóteli í hópi Íslendinga en
eftir heimkomuna hóf hann störf hjá
Hafliða, eiganda Mosfellsbakarís. Í milli-
tíðinni gekk hann hins vegar frá samn-
ingi við Charlie Trotters í Chicago, sem
þá hafði verið kosinn besti veitinga-
staður í heimi. Þar starfaði Völli í eitt ár
en kom eftir það heim og fór að vinna á
Hótel Holti. Á þeim tíma sem Völli bjó í
Chicago fékk hann símtal frá fólki sem
hann hafði kynnst í gegnum veiðina
heima á Íslandi. Þau vildu kynna hann
fyrir manni sem væri að byggja hótel og
veitingastað á Bahamaeyjum. Þá fóru
hjólin að snúast og innan árs pakkaði
Völli niður í tösku og hélt til Bahama-
eyja. Þetta var árið 2000 og síðan þá
hefur mikið vatn runnið til sjávar en
Völli hefur frá árinu 2001 rekið sinn eig-
inn stað, Sabor, sem tilnefndur hefur
verið sem besti veitingastaður Bahama-
eyja.
Frá Aðaldal til Bahamaeyja
Völundur matreiðir á bókamessunni í París, sem er sú stærsta sinnar tegundar.
Ljósmynd/Gunnar Konráðsson