SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 40

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 40
Lífsstíll 40 27. mars 2011 G ott ef ég á ekki enn einhvers staðar heima fyrstu púðurdósina mína. Hún er orðin ansi gömul og var hluti af einhverju agalega fínu setti. Man nú ekki alveg hvaðan það kom en hef foreldra mína eða aðra ættingja grunaða um að hafa borið þetta heim frá útlöndum handa barninu. Svona til að leika sér með og gott ef ég hef ekki smakkað á þessu smá líka. Ég man að það var alla vega nokkuð sérstök lykt af púðrinu. Ætli ég hafi ekki byrjað fremur seint að farða mig svona miðað við aðra. Á fermingardaginn minnir mig að ég hafi verið með smápúður og past- elgrænan augnskugga frá Bourjois. Pastellitir voru agalega móðins þá og lengi var þetta franska snyrti- vörumerki eitt af mínum uppáhalds. Svo fór smám saman að bætast í snyrtibudduna og á tímabili varð ég bara nokkuð djörf. Man að ég keypti mér t.d. svartan, mjög glansandi gloss, notaði óspart blautan eyeliner og klastraði svo maskara yfir ósköpin í lokin. Svona var maður stífmálaður eins og dúkka og ég fæ varla skilið hvernig ég gat brosað, borðað eða drukkið með þetta allt saman framan í mér. Smám saman fór ég nefnilega að draga úr förðuninni og finnst óþægilegt að vera svona mikið máluð í dag. Vissulega sparsla ég vel í allar holur og glufur. Þannig er dag- kremið, púðrið og meikið farið að skipta æ meira máli. Jarðlitir hafa tekið við af þeim pastellituðu á augun en reyndar hef ég upp á síðkastið verið að bæta mig í vara- litanotkun. Set gjarnan á mig mattan bleikan varalit ef ég er á leið eitthvert að degi til en skipti út fyrir djúsí gloss eða skær- bleika varalitinn minn á kvöldin. Svo passa ég mig á að nota nógan mask- ara. Systir mín hefur skammað mig fyrir að spara hann svo ég hef það í huga og bretti bæði og mála augnhár- in. Talandi um það, þá gaf litla systir mín mér fyrsta augnhárabrettarann og ja þann eina. Hann hefur nefnilega dugað svo vel. Þá er líka komið að því að ég játi að lengi vel sá litla systir, sjö árum yngri, um það að farða mig þegar ég fór eitthvað fínt. Eða bara á djammið. Mér fannst ég svo miklu meiri klaufi en hún sem gat nostrað við þetta alveg út í eitt. Svo í haust þá gerðist það. Hún flutti út á land og ég varð að standa á mínum eigin förðunarfótum. Held það hafi samt bara gengið ágæt- lega. Svei mér ef ég hef ekki bara lært hitt og þetta af henni í gegnum tíðina. Hún hefur í það minnsta hrósað mér fyrir ágætt verk og ekki er það nú slæmt frá jafn- góðum lærimeistara! Brett og sparslað Það getur verið gaman að prófa nýjar snyrtivörur og nú fara hillur að fyllast af spennandi nýjum sumarlitum. María Ólafsdóttir maria@mbl.is ’ Svona var maður stífmál- aður eins og dúkka og ég fæ varla skilið hvernig ég gat brosað, borðað eða drukkið með þetta allt saman framan í mér. Fyrir þá sem eru kannski dálitlir klaufar og vildu gjarn- an ná betra valdi á förðunarburstunum er um að gera að fara á námskeið. Förðunarnámskeið eru haldin víða og sums staðar er líka hægt að koma á ákveðnum tíma dags eða fá stuttan tíma þar sem kennd er dag- eða kvöldförðun. Allt eftir því hvað hver og einn vill og þarfnast. Síðan er náttúrlega bara að æfa sig eins mik- ið og hægt er. Sumir hafa líka nýtt sér tæknina og horfa á kennslumyndbönd í förðun á Youtube. Það er ekki alvitlaus hugmynd til að fá nýjar hugmyndir að skemmtilegri förðun. Nýjar hugmyndir Með því að æfa sig nær maður betra valdi á förðuninni. Förðun er oft jafnstór, ef ekki stærri, partur af útlitinu en fötin sjálf. Við veljum gjarnan liti í augnskugga og varalit eftir því sem við klæðumst og oft má lífga dálítið upp á svartan klæðnað með því að farða sig með áber- andi litum. Fyrir tískusýningar er líka mikilvægt að förð- unin fari vel við klæðnaðinn. Það var handagangur í öskjunni á tískuvikunni í New York fyrir sýningu á haust- og vetrarlínu hönnuðarins Malandrino. Það þurfti ekk- ert minna en þrjá til að undirbúa fyrirsætuna. Einn til að lakka neglur og tvo til að sjá um andlitsförðunina. Það myndi sjálfsagt flýta nokkuð fyrir manni að hafa svo mikla og góða hjálp áður en haldið er út. Áberandi förðun Allir leggja sitt af mörkum. Reuters Litríkar umbúðir og skemmtilegt út- lit getur haft áhrif á hvaða snyrti- vörur við ákveðum að kaupa. For- svarsmenn Tokidoki eru greinilega með þetta á hreinu og hafa hann- að heila línu af snyrtivörum og fylgihlutum byggða á karakterum úr japönskum teiknimyndasögum. Alþjóðlegt samstarf Fyrirtækið er bandarískt, með höf- uðstöðvar í Los Angeles og var sett á fót árið 2003 af hönnuðum Simone Legno, Pooneh Mohajer og Ivan Arnold. Snyrtivörurnar frá Toki- doki fást meðal annars í banda- rísku snyrtivöruversluninni Sephora og er ekki annað hægt að segja en að sköpunargleðið ráði ríkjum þeg- ar kemur að pakkningum. Umbúðir og snyrtivörurnar sjálfar eru mjög litríkar og öðruvísi. Hver karakter á sína sögu en hægt er að kaupa maskara, gloss, púður og flestallt annað í línunni. Auk þess töskur, skartgripi og jafnvel sængurföt. Fyr- irtækið hefur einnig verið í sam- starfi við fræga hönnuði á borð við Karl Lagerfeld, LeSportsac svo og Hello Kitty og Levi’s. Fyrir áhugasama má finna verslanir Tokidoki í Los Angeles, New York og Mílanó. Litríkar snyrtivöru- umbúðir Litríkir púðurburstar, maskarar, bara nefndu það!

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.