SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 2
2 24. júlí 2011 Við mælum með 23. júlí Á Mærudögum á Húsavík er þétt dagskrá í fimm daga. Margt skemmtilegt verður á döfinni í dag, laugardag, svo sem strand- blak, hoppkastalar, ljósmynda- maraþon, krakkahlaup, hrúta- sýning og dansleikur með „kónginum sjálfum“. Á sunnu- dag er söguganga um Húsavík með Hafliða Jósteinssyni, mærumessa í skrúðgarðinum og opunun myndlistarsýningar nemenda við LHÍ. Morgunblaðið/RAX Mærudagar á Húsavík 4-8 Vikuspeglar Símahleranirnar í Bretlandi, Patreus nýr yfirmaður CIA og hung- ursneyð í Sómalíu. 18 Skrifum ekki ódýra brandara Ragnar Bragason vinnur að gerð nýrra sjónvarpsþátta. 31 Af presti ertu komin Hildur Eir Bolladóttir opnar myndaalbúmið. 32 Ekkert til hollara en að syngja Ólöf Jónasdóttir frá Vogum í Mývatnssveit átti 95 ára afmæli í vikunni. 34 Ertu dóttir þess hávaxna sem var hér á síðasta ári? Var Kristín spurð um í Kína en hún synti þar yfir Guluá í erfiðri keppni. 36 Sigurganga Opruh Winfrey Seldi sig, notaði eiturlyf og stal frá mömmu sinni. Leið Opruh Winfrey til mikils sigurs í Bandaríkjunum var ekki auðveld. 40 Hola í höggi María Ólafsdóttir veltir lífsstíl golfara fyrir sér, búnaði og klæðaburði. Lesbók 48 Brautryðjandi kveður Listaháskólann Rætt við Ragnheiði Skúladóttur sem er að hætta sem deildarforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands eftir 11 ár í starfi. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Sigurgeir Sigurðsson Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson. Augnablikið F ór nýlega með vinkonu minni frá Slóvak- íu í flugferð. Hún er orðin 33 ára og þetta var í fyrsta skiptið sem hún steig uppí flugvél. Ég varð síðastur í mínum vina- hópi til að fara uppí flugvél og fljúga til útlanda, ég var ellefu ára. Þetta minnti mann aðeins á það hvað það er mikill lúxus að vera Íslendingur. Því þótt hluti af ástæðunni fyrir því að hún hafði aldr- ei ferðast með flugvél væri að það er minni þörf til þess þegar maður býr í Mið-Evrópu, þá var einnig hluti af ástæðunni sú að fjárráðin eru minni þar en hér. Hún varð strax pirruð þegar við vorum í hlið- inu og hún þurfti að taka af sér beltið og fara úr skónum. Svo roðnaði hún þegar vörðurinn gerði líkamsleit á henni og lét hana lyfta upp höndum og þuklaði á henni frá toppi til táar. Dóni sagði hún um greyið kvenvörðinn sem var ekkert dóna- leg við hana. Þegar í flugvélina var komið sat hún fyrst og sagði endurtekið: Þetta verður ekkert mál, þetta verður ekkert mál. En þegar vélin fór loksins í loftið sneri hún sér allt í einu hratt að mér og klemmdi andlitið á milli handar minnar og sætis. Svo kreisti hún hönd mína svo fast að ég þurfti að taka aðeins á móti til að vernda vöðva og bein. Svo þuldi hún eitthvað í sætið sem ég heyrði ekki hvað var. Kannski fór hún með bænirnar sín- ar. Hún hætti sér samt með andlitið aftur undan baki mínu en hélt áfram í hönd mína, mjög fast. Ég byrjaði að segja henni rólega að þetta væri örugg- asti ferðamátinn, það væri hættulegra að fara í bíl- ferð, sjóferð, það væri hættulegra að ganga úti á götu, það væri nánast hættulegra að setjast í sóf- ann heima hjá sér, því þar gerast slysin. Hún svitnaði bara og róaðist ekkert við þetta. Ég sagði henni að líta í kringum sig, í vélinni væru tvö hundruð manns, það væru allir rólegir nema hún, því þetta væri svo öruggt. Já, já, hér erum við í lausu lofti í þúsund metra hæð og allir eru rólegir nema ég. Þið eruð kolklikkuð, ekki ég, sagði hún af mikilli sannfæringu. Börkur Gunnarssonborkur@mbl.is Merkilegt að fólk skuli geta verið afslappað í þotu í þúsund metra hæð yfir jörðu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Aldrei flogið á ævi sinni 24. júlí Lokatónleikar Reykholts- hátíðar með einvalaliði hljóðfæraleik- ara kl. 16. Fyrr um daginn eða kl. 14 verða hátíðartónleikar í tilefni af 15 ára vígsluafmæli Reykholts- kirkju. 23.-24. júlí Djasstríó Sunnu Gunn- laugs spilar í menningar- veislu á Sól- heimum í dag, laugardag. Einnig heldur Pétur Thomsen nám- skeið í náttúruljósmyndun og ljósmyndamaraþon. Á sunnu- dag verður messa í Sólheima- kirkju kl. 15. 24 13 Verð áður 1498 kr. kg Grísahnakki á spjóti. Þú velur: New York eða hvítlauks- og rósmarín marinerað 10 9kr.kg 30%afsláttur fyrst og fremst ódýrt

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.