SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 32
32 24. júlí 2011 Ó löf hefur búið í eigin húsi við Eyrarveg áratugum saman, miklu lengur en nokkur ann- ar núverandi íbúa þessa gamla bæjarhluta, Eyrarinnar. Enda man hún tímana að minnsta kosti tvenna. Ólöf er kvik, heilsuhraust og skemmtileg. Hrein og bein. Með munninn fyrir neðan nefið, eins og sagt er, og hefur alltaf verið! Boðið var til afmælisveislu í Oddfellow- húsinu á fimmtudaginn og þar kom sam- an fjöldi fólks, bæði ættingjar hennar og vinir. Þeir eru margir, ekki síst söngvinir, enda hefur þessi kjarnakona sungið í kór- um allar götur síðan hún flutti til bæjarins fyrir 70 árum. Geri aðrir betur! Fyrst var Ólöf í Kantötukór Akureyrar sem Björg- vin Guðmundsson stofnaði og stjórnaði, söng í Kirkjukór Akureyrarkirkju um hríð, var í kvennakórnum Gígju og nú er hún í kór aldraðra, sem kallaður er Í fínu formi. Ólöf hefur alla tíð verið sópran. Ekkja í 45 ár Ólöf missti eiginmann sinn, Torfa Vil- hjálmsson frá Torfunesi í Kinn, í bílslysi árið 1966. Hún var með Torfa í bílnum, slapp ótrúlega vel en hefur ekki átt bíl síðan og aldrei lært að keyra. Hún segir syni sína, Pétur og Valgeir, duglega að skutla sér á milli staða þegar þess er þörf. „Þegar ég fer í sund fer ég til dæmis með Pétri. Þeir segja mér í lauginni að ég sé líkast til sú elsta sem kemur þangað reglulega,“ segir Ólöf við blaðamann í stofunni heima í Eyrarvegi. Ekki er ástæða til þess að rengja starfs- menn Akureyrarlaugar! Ólöf fer í sund um helgar og einu sinni til tvisvar í viku á virkum dögum. Torfa kynntist Ólöf þegar hún réð sig sem matráðskonu hjá Vegagerðinni, þar sem hann starfaði. „Ég held að þar hafi verið 16 í fastri vinnu og stundum á milli 30 og 40. Það var því nóg að gera að elda handa öllum á einni kolavél. Ég þurfti að hafa til kaffi handa þeim klukkan hálfsjö á morgnana því þeir byrjuðu að vinna klukkan sjö, svo var heitur grautur og slátur klukkan hálf- tíu og matur klukkan tólf, kaffi hálffjögur og kvöldmatur klukkan sjö. Það var talað um að hún þyrfti að fá hjálp á kvöldin, að minnsta kosti við uppþvottinn, ef þá væri aftur kaffi fyrir karlana!“ Ólöf var elst níu systkina og vön mikilli vinnu þannig að hún vílaði ekki fyrir sér að elda ofan í karlahópinn. „Það var ekk- ert mál. Ég var vön þessu; það var bara að ganga í verkin.“ Hún er hið eina af syst- kinunum frá Vogum sem enn er á lífi. Áður en hún fór í vegagerðina var Ólöf einn vetur í Reykjavík. Það atvikaðist þannig að með afa hennar kom í heim- sókn kona úr höfuðborginni og vildi endilega fá stúlkuna suður. „Hún vildi fá mig í „formiddagsvist“, sem kallað var, og koma mér í skóla. Ég átti að búa hjá henni og fá frítt fæði.“ Fyrri part vetrar var Ólöf á heimilisiðn- aðarnámskeiði. „Þar var konum kennt að prjóna og sauma og hekla og það kom sér mjög vel. Ég var til þess að gera fatalaus og saumaði mér bæði kjól og undirkjól, föt á bræður mína sem ég sendi heim og meira til.“ Að lokinni vetrardvöl í Reykjavík sigldi Ólöf norður með Dronning Alexandrine. Fór þá í fyrsta skipti á sjó og fannst ekki mikið mál. „Ég sagði við menn um borð að ég sem alin væri upp á vatni færi ekki að vera sjóveik. Passaði mig bara að vera uppi á þilfari þegar siglt var framhjá ein- hverju sem varið var í að sjá því ég vildi ekki missa af neinu.“ Lengi við þjónustustörf Eftir að Ólöf kynntist Torfa var hún einn vetur á Húsmæðraskólanum á Laugum, veturinn 1940-41. „Maður gifti sig auð- vitað ekki nema húsmæðraskólageng- inn!“ Þau fluttu síðan til Akureyrar og bjuggu fyrst í ein sex ár við Hamarstíg á meðan þau biðu eftir húsi sem Bygginga- félag verkamanna reisti við Eyrarveg og hún á enn. Ólöf fékkst við ýmis störf, var til dæmis lengi í þjónustu, í Samkomuhúsinu, á Hótel KEA og í Alþýðuhúsinu. „Ég vildi sjá um heimilið yfir daginn en fór svo að vinna eftir að Torfi kom heim. Ég var yfirleitt þrjú kvöld í viku í Samkomuhús- inu, bæði þegar voru leiksýningar og böll, og svo þegar Hótel KEA var opnað fór ég líka að vera þar.“ Hún kynntist því vel í störfum sínum hve miklu máli skiptir hvernig komið er fram við fólk. „Ef strákarnir voru kenndir þegar þeir komu að skemmta sér þurfti bara að fara vel að þeim og tala rólega við þá,“ segir hún um akureyrska karlmenn á skemmtistöðum. „Ég lenti aldrei í því að nokkur væri vondur við mig – af því að ég kom fram við þá eins og menn.“ Ólöf segir að auðvitað hafi verið erfitt að vera ein með þrjá syni á sínum tíma en hún hafi viljað sjá um allt sitt sjálf og geri einn. „Ég hef alltaf verið góð í reikningi og vil hafa allt 100% Ég sé um mitt bók- hald og borga mína reikninga. Ég safna saman reikningunum og legg saman, Pét- ur keyrir mig inneftir og ég borga eina tölu. Þeir hafa ekkert þurft að sjá um það, strákarnir.“ Hún vill sjá um sig sjálf eins og hún get- ur. „Ég er með stórt hús en fæ manneskju einu sinni í hálfum mánuði í tvo tíma. Hún fer yfir gólfin og svoleiðis en ég sé um annað.“ Tækin til að hirða lóðina á hún sjálf og geymir uppi á háaloftinu yfir veturinn, hjá jólaskrautinu. Allt er á sínum stað enda segist hún sérlega skipulögð. Ólöf vill líka hafa nóg fyrir stafni. „Ég hef ekki breytt mínu daglega líferni neitt á síðustu árum. Vakna alltaf á sama tíma, geri venjulegu leikfimina sem er í sjónvarpinu og klæði mig svo á meðan ég hlusta á Glæstar vonir.“ Hún segist passa sig að elda sér hollan mat og drekka njóg. „Einu sinni eftir leikfimitíma fór ég í gufu en þegar ég steig út úr henni lá ég. Ég var flutt í sjúkrabíl upp á spítala en það var ekkert að henni sögðu þeir, nema að hún hafði gleymt að drekka. En ég mætti synda og fara í gufu og gera hvað sem ég vildi bara ef ég drykki nóg og nú passa ég mig á því að fá mér alltaf vatn.“ Ólöf segist kunna afskaplega vel við sig í margmenni. „Enda hef ég verið í nánast öllum félagsskap sem ég gat komist í!“ Hún stundaði lengi dans og sýndi, var í leikfimi, í kórunum og hefur lengi stund- að sund. Hún er hress og kát. „Ég segi ekki að ég finni ekki aðeins til, en það er ekkert sér- stakt að mér. Samt er búið að saga mig í sundur hérna,“ segir hún og bendir á mjaðmirnar. Skipt var um liði. Söngur og sálarnæring Ólöf dásamar dansinn og sönginn. „Ef ég gef mig í eitthvað er það alveg af lífi og sál.“ Og hún er ekki í vafa þegar spurt er hvað standi upp úr af áhugamálunum. „Söngurinn hefur gefið mér langmest. Bæði það að framkvæma sönginn og svo sálarnæringin sem maður hefur af því að vera í góðum félagsskap. Það er ekkert til hollara en að syngja; tilsögnin hjá öllum þessum þjálfurum sem kenndu okkur að anda skipti miklu máli. Það er svo hollt að kunna að anda rétt.“ Ólöf hefur alltaf sungið sópran. „Mamma var sópran og fleiri af Skútu- staðaættinni. Þetta hefur alltaf verið gal- andi fyrir austan!“ Hún byrjaði í kór strax og þau Torfi „komu inneftir“ eins og hún orðar það. Vinkona Ólafar dró hana með sér á æfingu hjá Kantötukórnum sem Björgvin Guð- mundsson tónskáld stofnaði og stjórnaði. „Árið 1945 þegar Jakob Tryggvason organisti fór til Bretlands í nám leysti Björgvin Guðmundsson hann af sem org- anisti og tók okkur í Kantötukórnum með sér.“ Þá varð Kór Akureyrarkirkju til, með söngvurum úr Kantöutukórnum og fleirum sem sungið höfðu í kirkjunni. Ólöf var reyndar ekki lengi í kirkju- kórnum. „Ég var ófrísk að [miðsyninum] Pétri og hætti þá en var á fullu í Kant- ötukrónum og fór í allar þessar ferðir. Sú eftirminnilegasta var sex vikna ferð til Norðurlandanna.“ Svo skemmtilega vill til að tveir söngv- aranna í þeirri ferð eru enn að; Ólöf og Guðmundur Stefánsson, sem bæði eru í Kór aldraðra á Akureyri. Af þeim sem fóru í Norðurlandaferðina eru einnig á lífi Ekkert til hollara en að syngja Ólöf Jónasdóttir frá Vogum í Mývatnssveit hélt upp á 95 ára afmælið í vikunni. Þessi lífsglaða kona hefur búið á Akureyri í 70 ár, sungið í kór- um allan þann tíma og heldur eigið heimili. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.