SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 26
26 24. júlí 2011
L
jósmyndarinn Jón R. Hilmarsson gaf nýverið út ljósmyndabókina Ljós og nátt-
úra. Viðfangsefni bókarinnar er Skagafjörður. Jón hefur starfað sem skólastjóri
grunnskólans á Hofsósi í Skagafirði frá því hann flutti þangað árið 2005. Ljós og
náttúra er fyrsta ljósmyndabók Jóns, en hann byrjaði að taka myndir árið 2007.
„Ástæðan fyrir því að ég fór út í þetta
verkefni er sú að ég hafði séð að í öðrum
ljósmyndabókum voru mjög fáar mynd-
ir úr Skagafirði,“ segir Jón. „Yfirleitt
hoppuðu menn yfir þetta svæði og
hreinlega slepptu því. Þannig að ég sá
þarna tækifæri til að búa til ljós-
myndabók sem fjallar eingöngu um
Skagafjörð. Ég hafði haldið, frá árinu
2009, nokkrar ljósmyndasýningar og
fengið góð viðbrögð við myndunum
mínum, og því fannst mér þetta rökrétt
framhald.“
Skagafjörður hefur lengi vel getið sér
gott orð fyrir hestamennsku og hrossa-
rækt, og á það því vel við að í bókinni er
að finna fallegar myndir af hestum.
Skagafjörður liggur á milli Tröllaskaga
og Skaga. Í Skagafirði liggja þrjár eyjar;
Málmey, Drangey og Lundey, en nafnið
er einnig haft um héraðið umhverfis fjörðinn. Myndirnar í bókinni eru fallegar og sýna
hvaða náttúruperlur Skagafjörðurinn hefur að geyma.
„Ég lagði upp með að hafa myndir af öllum Skagafirði frá öllum árstíðum og ég tel að
það hafi tekist vel til. Ég vandi mig á að hafa myndavélina meðferðis í bílnum á ferð minni
um Skagafjörðinn og oft þurfti maður að hlaupa til með vélina þegar tækifæri gáfust,“
segir Jón.
Geisladiskur fylgir með bókinni.
Jón er kvæntur Alexöndru Chernyshova óperusöngkonu, en geisladiskur með klassíkum
lögum í hennar flutningi fylgir með bókinni. Jón var á ferðalagi á Spáni þegar hann
kynntist Alexöndru, en hún var fararstjóri yfir hópi af krökkum frá Kiev sem bjó á
spænskum heimilum í einn mánuð. Alexandra er fædd í Kiev í Úkraínu, en fluttist hingað
til lands árið 2003. Hún hefur verið áberandi í tónlistarlífinu fyrir norðan m.a. stofnað
Óperu Skagafjarðar og Draumaraddir og gefið út þrjár plötur: Alexandra soprana árið
2006, Draum árið 2009 og nú plötuna Aðeins þú, en hún fylgir sem fyrr segir með bók-
inni.
„Við vorum að stefna að útgáfu hvort í sínu lagi, en svo sáum við síðasta vetur að það
gæti verið sniðugt að gefa þetta út svona saman og það gæti jafnvel styrkt útgáfuna hjá
okkur báðum,“ segir Jón. „Tengingin er sú að við teljum myndirnar fallegar og róm-
antískar, sem er einmitt í takt við lögin á plötunni, en þau eru falleg og rómantísk.“ Á
plötunni flytur Alexandra nokkur þekkt lög sem hún tók upp sjálf og útsetti. Þá eru tvö
frumsamin lög eftir hana á plötunni. Bókin og platan fara vel saman og tilvalið er að
hlusta á tónlistina á meðan flett er í gegnum bókina.
Myndin er tekin í apríl 2007 á Hofsósi, þarna eru þvottasnúrurnar á Skjaldborg í aðalhlutverki ásamt fallegri kvöldsólinni og Drangeynni.
Hjónin Jón R. Hilmarsson og Alexandra Cherny-
shova standa saman að útgáfunni.