SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 18
18 24. júlí 2011
V
erkefnið er hvað lengd varðar
eitt af stærstu leiknu verk-
efnum sem hafa farið í tökur
hér á landi. Ragnar segir hug-
myndina að Heimsenda hafa líkt og svo
margar legið í loftinu í ákveðinn tíma áður
en stokkið var á að koma henni í fram-
kvæmd. „Ég hef nú aldrei starfað sjálfur á
geðdeild eða átt við geðsjúkdóm að etja.
Hinsvegar þekki ég marga sem hafa
kynnst þessu af eigin raun. Ófáir leikarar
hafa t.a.m. starfað tímabundið inni á geð-
deild. Þegar við vorum að gera Vakta-
seríurnar kom líf á geðdeildum oft til tals,
bæði sjónarhorn starfsmanna og vist-
manna. Upphaflega hugmyndin var að
kvikmyndin Bjarnfreðarson gerðist að
hluta til á geðdeild en svo þróaðist hún í
aðra átt en eftir stendur að þetta hefur
verið að gerjast mjög lengi með mér og ég
er að nota ýmislegt sem var í þeirri upp-
haflegu hugmynd.
Maður er alltaf að leita að vettvangi fyrir
áhugaverðar sögur og fólki sem hefur
áhugaverðar sögur að segja. Í skáldskap er
löng hefð fyrir því að leita í jaðar sam-
félagsins og á geðdeildum er náttúrulega
hafsjór af áhugaverðu fólki.“
Hælið að hverfa
„Ástæðan fyrir því að við látum þetta ger-
ast fyrir tuttugu árum síðan er að sög-
urnar sem við höfðum heyrt voru margar
frá þeim tíma og umhverfið í þessum mál-
um hefur breyst talsvert mikið. Þjónustan
er meira úti í samfélaginu o.s.fr.v. Hælið
er því að hverfa úr okkar samfélagi, sem
betur fer. Ég hafði lengi vitað af hælinu á
Arnarholti sem hefur staðið autt í ein 7-8
ár. Það að vera með tilbúinn tökustað af
þessari stærðargráðu hafði mikið um að
segja að hugmyndin varð að veruleika.
Þetta er náttúrlega mjög táknrænt hvernig
fólki var bolað út úr bænum til að ná geð-
veiku fólki út úr samfélaginu svo það
myndi ekki stuða okkur hin.“
Vonar að þættirnir hafi áhrif
„Ég vona að þættirnar verði til þess að
umræðan dýpki. Með því að vinna vel í
persónusköpuninni myndast tengsl við
persónurnar. Áhorfendur fara þá vonandi
að horfa fram hjá einhverjum sjúkdóms-
einkennum sem athyglin dregst gjarnan
að. Einstaklingur sem er að kljást við geð-
sjúkdóm er ekki sjúkdómurinn sjálfur,
heldur manneskja sem í eina tíð lifði eðli-
legu lífi, átti vonir og væntingar en svo
gerðist eitthvað sem sneri öllu á hvolf og
lífið tók nýja stefnu. Lífseigasta goðsögnin
er að fólk með geðraskanir sé hættulegt.
Maður sér merki þess víða t.d. í þýðingum
á erlendum kvikmyndum þar sem sið-
blindur morðingi fær þýðinguna geð-
sjúkur morðingi. Geðveikt fólk er hins-
vegar í fæstum tilfellum hættulegt.“
Mikil rannsóknarvinna
Ragnar segir að hugmyndin hafi aldrei
verið að þættirnir yrðu áróður eða myndu
snúast um að bæta hag geðsjúkra. „Þetta
er ekki heimildarmynd en við fórum út í
gríðarlega rannsóknarvinnu þar sem við
tókum fjölmörg viðtöl við fólk sem hefur
verið í ólíkum hlutverkum innan kerf-
isins. Við reyndum að hitta sem flesta til
Pétur Jóhann í nýju hlutverki. Eigum við að ræða það eitthvað?
Heims-
endir
í nánd
Ragnar Bragason vinnur nú að gerð
nýrra sjónvarpsþátta sem gerast inni á
geðveikrahæli um verslunarmannahelg-
ina árið 1992. Þættirnir sem verða níu
talsins og hver þáttur verður 40 mínútur
að lengd eru að mestu leyti unnir af sama
fólki og gerði Vaktaseríurnar vinsælu.
Hallur Már hallurmar@mbl.is