SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 36
36 24. júlí 2011
F
yrr á þessu ári lauk The Oprah
Winfrey Show, eftir 25 ára far-
sæla göngu. Spjallþáttadrottn-
ingin Oprah Winfrey snýr sér að
nýjum verkefnum og hefur störf á eigin
sjónvarpsstöð, OWN.
Þessi heimsfræga og vellauðuga fjöl-
miðlakona hefur hlotið fjölda verðlauna
og viðurkenninga. Newsweek hefur út-
nefnt hana áhrifamestu fjölmiðlakonuna
og Life áhrifamestu konu Bandaríkjanna.
Árið 2010 komst hún á lista Time yfir
hundrað einstaklinga sem hafa breytt
heiminum. Hún var eina manneskjan á
listanum sem hafði komist á listann átta
sinnum á átta árum.
Á sínum tíma skrifaði Oprah ævisögu
sína sem átti að koma út árið 1993. Á síð-
ustu stundu hætti hún við að gefa ævi-
söguna út vegna viðkvæmra upplýsinga
sem þar var að finna um erfiða fortíð,
misnotkun í æsku, þungun, barnsdauða,
fíkniefnaneyslu og ástarsamband við gift-
an mann. Fjörleg ævisaga hennar kom
hins vegar út árið 2010 og höfundurinn
var Kitty Kelly, sem sérhæfir sig í ævisög-
um fræga fólksins og eyddi fjórum árum í
að skrifa bók um Oprah.
Þótt Oprah hafi að ýmsu leyti verið op-
inská um líf sitt er samt ýmislegt sem hún
sér ekki ástæðu til að ræða, enda ekki
einkennilegt því þessi heimsfræga fjöl-
miðlakona sem veit ekki aura sinna tal
átti erfiða æsku og unglingsár sem hefði
eyðilagt einhverja einstaklinga fyrir lífs-
tíð.
Barnshafandi vandræðaunglingur
Oprah fæddist árið 1954 í Missisippi. Hún
sagðist sjálf hafa verið fædd í mikilli fá-
tækt, hefði ekki átt dót, gengið í lörfum
og alist upp í hreysi. Þetta er fjarri sanni
en það var engin velmegun á heimili
hennar. „Af hverju segirðu allar þessar
lygar um eymd í æsku?“ spurði einn ætt-
ingi hennar hana þegar hún var orðin
heimsfræg og fékk svarið: „Þetta er það
sem fólk vill heyra. Sannleikurinn er leið-
inlegur.“
Til fjögurra ára aldurs ólst hún upp hjá
einstæðri móður sinni en fór þá til ömmu
sinnar þar sem hún var í nokkur ár en
flutti þá aftur til móður sinnar sem hafði
eignast dóttur og son sitt með hvorum
manninum. Næstu árin skiptist hún á að
dvelja hjá móður sinni og föður sem
starfaði sem rakari. Hún var vandræða-
unglingur, eins og hún viðurkennir sjálf.
Hún stal frá móður sinni, eitt sinn stal
hún upphæð sem nam vikulaunum. Hún
bauð ungum karlmönnum heim og hafði
kynmök við þá og þáði í staðinn frá þeim
peninga. Fjórtán ára gömul varð hún
barnshafandi, hugsanlega eftir frænda
sinn. Hún sagði seinna að hún hefði eytt
helmingi af meðgöngutímanum í afneitun
og hinum helmingnum í að skaða sjálfa
sig í tilraunum til að losna við barnið.
Nokkrum dögum eftir fimmtán ára af-
mælisdag sinn, þá komin sjö mánuði á
leið, fæddi hún sveinbarn sem var sett í
öndunarvél. Oprah sá son sinn aldrei og
hann dó mánaðargamall. Árið 1990 þegar
Patricia systir hennar, sem var eiturlyfja-
neytandi, var fjárþurfi og vantaði peninga
fyrir dópi seldi hún slúðurblaði fréttina
um fæðingu barnsins og sagði einnig frá
því að Oprah hefði stolið frá móður sinni
og stundað kynlíf fyrir peningagreiðslur.
Oprah fann til svo mikillar niðurlægingar
að hún var rúmliggjandi í þrjá daga. „Mér
fannst eins og lífi mínu væri lokið og að
heimurinn myndi hata mig,“ sagði hún
seinna. Í kjölfarið sendi Oprah frá sér yf-
irlýsingu þar sem hún sagði að frásögnin
væri rétt. Oprah talaði ekki við systur
sína í tvö ár eftir uppljóstranirnar en hélt
áfram að borga fyrir menntun dætra
Oprah Winfrey Kona sem gefst aldrei upp.
Reuters
John Travolta er meðal nánustu vina Opruh, sumir segja að hann sé eins og bróðir hennar.
Hann hefur oft komið fram í spjallþáttum hennar.
Reuters
Löng sig-
urganga
Opruh
Oprah Winfrey, frægasta spjallþáttadrottning
Bandaríkjanna, hefur átt ótrúlega ævi sem fram-
an af einkenndist af margskonar áföllum og von-
brigðum. Í dag er hún auðugasta blökkukona
heims og er dáð og elskuð af milljónum manna.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is