SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 15

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 15
24. júlí 2011 15 A uður Axelsdóttir er iðjuþjálfi og forstöðumaður hjá Geð- heilsu eftirfylgd og Hugar- afli. Hugmyndafræðin sem liggur að baki starfinu felst í valdeflingu og batamód- elinu sem er gjörólíkt læknisfræðilegri nálgun. „Læknisfræðilega módelið gerir ráð fyrir að sjúklingurinn sé veikur og svo muni verða áfram sem leiðir af sér að hann muni alltaf þurfa að taka lyf og sé háður þjónustu um ókomna tíð. Alvarlegast er þó að lítið ráð er gert fyrir bata. Okkar sýn er sú að geðrænir erfiðleikar séu gjarnan tímabundnir og tilkomnir vegna áfalla á borð við missi eða vöntun á stuðningi. Í batamódelinu er ekki gengið út frá genabreytingu í heila heldur tilfinningum, alvarleg áföll geta haft þær afleiðingar að mann- eskjur komast í þrot með líf sitt eða fara í geðrof eins og það er kallað. Bat- inn er ferli þar sem fólk lærir á tilfinn- ingar sínar og aðstæður. Náin sam- skipti við fjölskyldu og vini eru mikilvæg til að ná tökum á ástandinu.“ Batamódelið segir Auður ekki byggj- ast á sjúkdómsvæðingu. Sorg og van- líðan segir hún ekki vera sjúkdóma og kerfi sem gangi út frá því sé í raun hættulegt þegar vonin er tekin frá fólki. „Bráðaþjónustan hér á landi er góð en hún vinnur þó ekki á því sem bjátar á í daglegu lífi sem fólk glímir svo við þegar það kemur heim. Heil- brigðiskerfið vinnur í kring um veik- leika í eðli sínu og í meðferð á ein- kennum.“ Meðferðin úti í samfélaginu „Oft er það þannig í tengslum við geð- heilsuna að vinnan sem fólk stendur frammi fyrir þarf að fara fram í dag- legu umhverfi. Að mínu mati væri nær að vinna meira með fjölskyldunni í ferlinu öllu líkt og hefur verið gert með góðum árangri í Finnlandi í opn- um samræðum. Þar hefur teymi fag- fólks samskipti við einstaklinginn sem á við vandamál að stríða ásamt hans nánasta tengslaneti. Þetta er gert utan stofnana þar sem málin eru rædd op- inskátt þ.e.a.s. allir taka þátt og ákvarðanir eru teknar í sameiningu. Okkar starf er oft svipað þar sem fjölskyldur leita til okkar. Þá reynum við að skilgreina hlutverk og hvað hver og einn á að gera. Mikilvægt er að átta sig á því að athyglin beinist ekki ein- göngu að þeim sem er veikur. For- eldrar, systkini og vinir þurfa að taka þátt í vinnunni og reyna að átta sig á hvað hægt er að gera til að leggja sitt af mörkum. Ég hef séð mikinn árangur af því að vinna á þennan hátt og í mínum huga er þetta leiðin fram á við.“ Ekki nægur áhugi á meðal lækna Árangurinn af slíkri vinnu segir Auður að hafi vakið eftirtekt innan geirans. „Þegar fólk sér hvaða árangri er mögu- legt að ná með þessum aðferðum vaknar áhugi en því miður er of stór hópur lækna sem leggur of mikla áherslu á lyfjameðferð, þ.e. þeir ávísa of miklu af lyfjum og of lengi. Ég er ekki alfarið á móti lyfjum, en ég verð alltaf hugsi þegar ég hitti ungt fólk sem tekur margar tegundir af lyfjum en er jafnframt að berjast áfram í námi og er að stofna fjölskyldu. Það getur ekki farið saman og verður að endur- skoða. Lyfjagjöf miðast gjarnan við að um- hverfinu líði betur. Of oft vantar að læknarnir vinni út frá því hvernig hægt sé að virkja manneskjuna í dag- legu lífi þar sem fjölskyldutengsl og hlutverk eru lykilatriðin. Einstaklingur sem er t.d. að berjast í gegn um há- skólanám er ekki líklegur til að ná ár- angri ef stíf lyfjameðferð er eina úr- ræðið.“ Menningin vandamálið „Ég hefði viljað sjá fleira fagfólk þegar Daniel Fisher sem er geðlæknir, vís- indamaður og höfundur batamódelsins kom hingað til lands um daginn og hélt opinn fyrirlestur. Ég tel að bata- kúltúrinn og valdeflingin eigi heima í öllu okkar kerfi og að brýnt sé að við tileinkum okkur þessa nálgum. Mín tilfinning er þó sú að einna erfiðast sé að innleiða slíka hugmyndafræði innan stofnana. Breytingin sem þarf að eiga sér stað er svo mikil. Lykilatriði er að endurmennta fagfólk og nýta þekkingu fólks með geðraskanir svo finna megi út hvað er að virka í nálguninni og hvað ekki. Í okkar starfi er ákaflega mikilvægt að vinna með fólki sem jafningjum. Á stofnunum eru valda- hlutföll svo augljós og fastmótuð sem einstaklingurinn líður alltaf fyrir. Geðheilsa eftirfylgd starfar innan heilsugæslunnar. Fólk þarf ekki að vera með sjúkdómsgreiningu til að leita til okkar og við lítum á það sem gott mál ef fólk kemur áður en allt er komið í óefni. Við störfum því í forvörnum og endurhæfingu ásamt eftirfylgdinni. Þetta er samfélagsgeðþjónusta sem er í takt við það sem er að gerast á al- þjóðavísu og hefur reynst spara fjár- magn, tíma, sársauka, auk þess að flýta bataferlinu.“ Grasrótin veitir kerfinu gott aðhald Á síðastliðnum tíu árum hefur færst mikill vöxtur í grasrótarstarf í málum tengdum geðheilsu. „Notendur eru mjög mikilvægir og geta nýtt þekkingu sína og reynslu til að skapa mjög nauðsynlegt aðhald. Þannig hefur mik- ið unnist án þess að farið hafi verið út í beina gagnrýni á kerfið. Þá er hættan á að fólk fari niður í skotgrafir. Okkar starf er líka gott dæmi um hvernig grasrótin getur þróað þjónustuna. Starfið hefur svo skilað sér í því að okkar rödd fær að heyrast við stefnu- mótun þó svo að það mætti alltaf vera meira.“ Staðan núna „Við finnum vel fyrir kreppunni og höfum gert frá upphafi hennar. Fólk leitaði í auknum mæli til okkar þar og í raun frekar en til venjulegra heilsu- gæslustöðva. Fólk virðist vera að leita aðstoðar fyrr sem er náttúrulega já- kvæð þróun og sýnir gildi þjónust- unnar. Ungt fólk leitar mikið til okkar sem er alltof oft að hætta og byrja upp á nýtt í framhaldsskólum áður en grip- ið er inní og réttur stuðningur veittur. Við finnum það vel þegar við erum að fara í grunn- og framhaldsskóla með geðfræðslu Hugarafls að það er mikil þörf fyrir fræðslu á þessum nótum. Fjölskyldur leita einnig í auknum mæli til okkar og farsælast er þegar hægt er að vinna er að batanum með tengslanetinu öllu. Þeir erfiðleikar sem fólk á við eiga ekki allir heima inni á bráðamóttöku og þess vegna er nauð- synlegt að þróa svona þjónustu og laga hana að fólki sem leitar hennar frekar en að stofnunum. Þjónustan verður að vera miðuð að notendunum sem setja sig í allt aðrar stellingar ef væntingar eru til staðar um bata og lausnir. Hlutverk notand- ans verður virkara og líklegra til ár- angurs. Þegar fólk gengur í gegnum áföll og erfiðleika er jafnframt nauð- synlegt að flýta meðferðinni ekki of mikið þar sem afdrifarík mistök geta átt sér stað.“ Erfitt að breyta áherslum Auður segir að frá stofnun Geðheilsu eftirfylgdar og Hugarafls hafi starfsem- in eflst ár frá ári og eftirspurn hafi aukist. „Ég vona að ráðuneytið sjái þörfina fyrir að auknum fjárveitingum til að hægt sé að mæta þörfinni. Frá árinu 2005 hefur starfsemin ekki náð að eflast nægjanlega þrátt fyrir að hafa lengi verið undirmönnuð en um 300 manns nýta sér þjónustuna á ári.“ Auður telur að í grunninn snúist þetta um hugmyndafræði og segir að leggja þurfi meiri orku og fjármuni í bata- módelið. Ef hún fæst viðurkennd megi nýta hana til jákvæðra breytinga innan kerfisins og hægt sé spara stórar fjár- hæðir í eftirfylgd og endurhæfingu. Breytingar Auður segir viðhorf til geðsjúkra og möguleikum þeirra á bata þurfi að breytast. Morgunblaðið/Golli Markmiðið á að vera bati ’ Þjónustan verður að vera miðuð að not- endunum sem setja sig í allt aðrar stellingar ef væntingar eru til staðar um bata og lausnir. Isaac Newton Stærðfræðingur sem gerði margar af merkustu uppgötv- unum 18. aldar er talinn hafa glímt við geðhvarfasýki sem var óþekkt á þeim tíma. Ludwig van Beethoven Tónskáldið fræga glímdi við geðhvarfasýki sem sumir telja að hafi haft mikil áhrif á tón- smíðar hans. Mörg af hans þekktustu verkum voru samin þegar hann átti í miklum erf- iðleikum. Abraham Lincoln Sextándi forseti Bandaríkjanna glímdi við mjög alvarlegt þung- lyndi sem hann tókst á við af miklum styrk. Vincent Van Gogh Málarinn frægi var álitinn und- arlegur af samtímamönnum sínum og vakti athygli fyrir sveiflur í geði. Hann sveiflaðist á milli þess að vera mjög þunglyndur og orkumikill og ástríðufullur. Virginia Woolf Breska skáldkonan glímdi við einkenni geðhvarfasýki allt sitt líf. Með skrifum sínum náði hún tökum á aðstæðum sín- um. Hún naut jafnframt góðs stuðnings fjölskyldu sinnar og þurfti því aldrei að leggjast inn á stofnun. Winston Churchill Forsætisráðherra Breta í seinni heimsstyrjöldinni fjallaði um þunglyndi sitt í sjálfsævisögu- legum skrifum sínum. Oft tókst hann á við vandann með drykkju. Með miklum viljastyrk náði Churchill þó að hafa mikil áhrif á mannkynssöguna. John Nash Nóbelsverðlaunahafinn í stærðfræði hefur hefur þurft að lifa með geðklofa. Kvik- myndin A Beutiful Mind fjallar um líf hans. Fleiri þekktir einstaklingar sem eru taldir hafa glímt við geðraskanir: Leó Tolstoj - rithöfundur Charles Dickens - rithöfundur John Keats - rithöfundur Michelangelo - listamaður Irving Berlin - tónskáld Janet Jackson - söngkona Buzz Aldrin - geimfari Marlon Brando - leikari Ernest Hemingway - rithöfundur Byggt á mentalhealthministries.net Margir þekktir einstaklingar hafa glímt við geðraskanir

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.