SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Page 29

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Page 29
24. júlí 2011 29 umsjá þegar systir hennar lést. Og hún segir fjölskylduna nána, eins og almennt eigi við í Kenía. „Við systkinin erum kannski ekki úr sama efni, en foreldrar okkar eru það, og ræturnar eru því þær sömu. Við eigum málshátt sem segir, að fjölskylda sem á í illdeilum, sé ekki fjöl- skylda. Jafnvel þó að það geti orðið ósætti, þá leysum við það í lok dags.“ Og það er minna ólíkt með Kenía og vestrænum samfélögum en virðist við fyrstu sýn. „Munurinn felst fyrst og fremst í tækni og aðbúnaði, en mann- lífið er ekkert frábrugðið – tilfinning- arnar eru þær sömu. Nema það er minna stress í Kenía og fólk er nægju- samara. Það kvartar ekki eins mikið og Vesturlandabúar.“ Það er því margt sem Vesturlandabú- ar geta lært af Keníabúum, þar á meðal Íslendingar. „Þegar þið glímduð við örðugleika vegna eldgossins í fyrra, þá man ég að margir í Kenía báðu fyrir Ís- landi og það snertir hjarta mitt. Kannski hefur það bjargað mannslífi. Þeir hafa aldrei komið til Íslands, en taugin er þarna sem tengir okkur.“ – Að lokum, hvaða hlaup eru fram- undan? „Ég hleyp í Kenía í september og æfi fyrir það. Svo er ég að velta New York fyrir mér, en það verður líklega í góð- gerðarskyni.“ Loroupe tók þátt í alþjóðlega friðarhlaupinu við hringleika- húsið í Róm í mars 2008. Ljósmynd/Tegla Loroupe Peace Fo Obama sagðist líta á Loroupe sem fyrirmynd er þau hittust í Berlín. Friðarhlaupið sameinar stríðandi fylkingar í Kenía. „Já,“ svarar hún og hlær. „Svo las ég mér líka til um vestrænar konur og fannst ég ætti að geta blandað mér í hóp þeirra. Úr því Ingrid Kristiansen gat hlaupið á nýju heimsmeti, ætti ég að geta það líka. Og það tókst!“ En hvaða ráð gefur hún öðrum hlaup- urum? „Þegar fólk hleypur í fyrsta skipti, þá verður það að slaka á og undirbúa sig. En ef það vill ná árangri í keppni, þá verður það að gæta að mat og drykk og setja sér markmið. Það er mikilvægt að borða vel kvöldið áður, því um morg- uninn er maður taugaóstyrkur og borðar lítið. Mikilvægast er að drekka mikið, þess vegna orkudrykki, því maður tapar miklum vökva á hlaupunum. Og svo er nauðsynlegt að njóta augnabliksins og vera viðbúin góðum eða slæmum ár- angri, því þetta er keppni og ómögulegt að segja hvernig fer. En það er um að gera að berjast, ná sínu markmiði og missa ekki vonina á miðri leið. Ekki gleyma því, að ef maður kennir sárs- auka, þá á það líka við um hina. Maður verður að sýna styrk.“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.