SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Side 43

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Side 43
24. júlí 2011 43 Arftaki Ragnheiðar er Steinunn Knútsdóttir. Á heimasíðu listaháskólans segir að Stein- unn eigi að baki fjölþættan feril, bæði í námi og starfi. Hún lauk bakkalárnámi í guðfræði við Háskóla Íslands, stundaði leiklistarnám í Árósum, og lauk síðar meist- aranámi í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort-háskólanum í Leicester á Eng- landi. Hún er einnig með diplóma í leik- stjórn frá Scandinavisk Centrum för Utvikl- ing af Teater. Steinunn hefur unnið með ýmsum leik- húsum og sviðslistahópum í Danmörku, Englandi og á Íslandi, sem leikari, höfundur og leikstjóri. Aðallega hefur hún numið land í fram- sæknum leikhúsum oft nátengdum dansi og myndlist og tekið þátt í mörgum rann- sóknarverkefnum á sviði sviðslista, auk þess að skipuleggja ráðstefnur og hátíðir. Hún var um þriggja ára skeið listrænn ráðu- nautur Borgarleikhússins, og einnig um ára- bil annar listrænna stjórnenda Lab Loka sem hefur staðið fyrir rannsóknum og til- raunum á sviði sviðslista. Steinunn er listrænn stjórnandi Áhugaleikhúss atvinnumanna og Netleik- hússins Herbergi 408 sem var tilnefnt til Prix Eu- ropa, verðlauna evr- ópskra ljósvakamiðla í flokki nýmiðla árið 2010. Steinunn hefur verið stundakennari við leik- listar- og dansdeild Listaháskólans allt frá því deildin var stofnuð, og á jafnframt sæti í fagráði skólans. Þá hefur Steinunn gegnt ýmsum trún- aðarstörfum fyrir hönd leiklistarfólks, m.a. verið ritari Leiklistarsambands Íslands, set- ið í stjórn Norræna leiklistarsambandsins og verið formaður Félags leikstjóra á Íslandi frá 2008. Sex umsækjendur voru um starf- ið, en stjórn skólans mat fimm þeirra hæfa til að gegna starfinu. Steinunn tekur form- lega við starfinu í byrjun næsta skólaárs, 1. ágúst. Steinunn Knútsdóttir tekur við Steinunn Knútsdóttir en þegar við vorum bara að útskrifa leikara. Listaháskólinn er eini skólinn sem kennir á fræðasviðinu listir á Íslandi þannig að við erum í rauninni ekki í neinni samkeppni við aðrar íslenskar stofnanir á þessu sviði. Þetta getur ver- ið svolítið hættulegt, en við höfum ver- ið mjög vakandi fyrir því að sofna ekki á verðinum. Ég tel að við höfum tryggt það með því að vera stöðugt að sækja þessi erlendu áhrif með því að fá hæf- ustu erlendu kennarana til okkar. Með þeim höfum við hlotið mikið aðhald og eignast góða samtals félaga.“ Mikilvæt viðfangsefni „Það viðfangsefni sem er að mínu mati mest áríðandi fyrir Listaháskólann í dag er að koma á meistaranámi. Fræðasvið- ið listir er eina fræðasviðið sem er eftir á að þessu leyti á Íslandi. Til þess að halda viðunandi framþróun lista í land- inu er mjög mikilvægt að koma á mast- ersnámi. Þá er ekki síður mikilvægt að koma allri starfsemi Listaháskólans undir sama þak. Ef ekkert verður gert hvað varðar húsakost þá munu deild- irnar færast fjær hver annarri og hug- myndafræðin sem er á bak við stofnun skólans, að hann eigi að vera miðstöð listanna, getur ekki orðið að veruleika.“ Ragnheiður segir mikilvægt að skapa farveg fyrir unga listamenn. ,,Það er mjög mikilvægt að búa til einhvern áframhaldandi grundvöll eftir nám þannig að þessir vel menntuðu lista- menn hafi einhvern vettvang til að sinna sínum störfum. Það kostar ekki mikið að búa til eitthvað úr engu og það er það sem listamaðurinn fæst við á hverjum degi. Afrakstur hvers lista- manns er gífurlegur og afleidd störf mörg. Á endanum erum við þekkt af menningu okkar og það er menningin sem fólk vitnar stöðugt í þegar það tal- ar um Ísland og við verðum því að hlúa að henni. Jafnframt er það mikilvægt að í hugum fólks eigi hugtakið leiklist eða danslist ekki bara við um Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið eða Leikfélag Akureyrar heldur er leikvöllurinn miklu stærri en þessar ríkisstyrktu stofnanir,“ segir Ragnheiður Lokal Leiklistarhátíðin Lokal varð til innan veggja Listaháskólans og hátíð sem þessi er gott dæmi um vettvang fyrir unga listamenn til þess að koma sér á framfæri. Hátíðin var sett á fót árið 2008 af Ragnheiði Skúladóttur, Bjarna Jónssyni og Guðrúnu Jóhönnu Guð- mundsdóttur. Ragnheiður segir að með hátíðinni vildu þau sýna Íslendingum það markverðasta sem er að gerast í samtímaleiklist annars staðar í heim- inum og jafnframt skapa vettvang fyrir ungt listafólk til að koma sér og sínum verkum á framfæri. ,,Auðvitað rennur manni blóðið til skyldunnar þegar maður er deild- arforseti einu leiklistar- og dansdeildar landsins, að skapa einhvern grundvöll fyrir nemendur sem maður er að út- skrifa og jafnframt skapa einhvern stökkpall,“ segir Ragnheiður. ,,Hátíðin hefur átt innhlaup inn í Listaháskólann hvað varðar aðbúnað og svo hafa nem- endur skólans komið að hátíðinni sem sjálfboðaliðar. Þá hafa nemendur við skólann sýnt verk í hliðarsýningu há- tíðarinnar sem ber nafnið ,,up and coming“ og er ætlað ungum og efnileg- um listamönnum. Í ár er stefnt að því að sýna fjögur verkefni frá nemum við leiklistar- og dansdeildina. Þannig að listaháskólinn og hátíðin eru nátengd.“ Afhverju ertu að hætta? „Ég er ekki að hætta vegna þess að mér bauðst betra starf. Mér finnst að fólk eigi ekki að vera of lengi í þessum leið- togastörfum. Ef þú ert góður leiðtogi þá leiðir þú þitt fólk, færð góðar hug- myndir og kemur þeim í verk. Með tímanum fer hugmyndunum fækkandi og maður verður smám saman stofn- anavæddur. Þá hættir maður að vera eins áræðinn og hugaður og maður var í byrjun. Ég tók því þá ákvörðun, skól- ans vegna, að hætta. Þá hefur leiklist- arhátíðin Lokal undið upp á sig og er orðinn vettvangur sem mér finnst mjög spennandi. Þar get ég verið í því að búa til ný verkefni og jafnframt haldið áfram að vera í samböndum við kollega erlendis. Það að vera sjálfs síns herra er mjög ríkt í mér og þá skapa sjálfri mér og öðrum þetta tækifæri erlendis sem skapast með hátíðinni.“ Ragnheiður Skúladóttir hættir sem deildarforseti leik-og dansdeildar Listaháskólans eftir 11 ár í starfi. Morgunblaðið/Sigurgeir S.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.