SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 2
2 4. september 2011
Við mælum með
3. september
Efnt er til hátíðar í Vestur-
bænum í tilefni af leik KR gegn
Val klukkan 14 í dag, laugardag.
Yfirskriftin er Kvennafjör KR,
meðal annars til að undirstrika
að KR sé ekki lokaður karla-
klúbbur. Á meðal viðburða er
Vesturbæjarrölt með Jónasi Sig.
frá Frostaskjóli kl. 10.30, ljúf-
feng súpa 11.30 og 13, hreysti-
keppni milli deilda KR kl. 12 og
loks dömuboð í KR-heimilinu
um kvöldið.
Morgunblaðið/Ernir
Kvennafjör í Vesturbænum
4-8 Vikuspeglar
Damien Hirst hleypir öllu í báli og brand, fótalaus íþróttamaður frár á
fæti og Philipp Lahm veldur hneykslan með endurminningum.
26 Að reka gallerí er bara gaman
Innlit í gallerí Þórs Hinrikssonar, sem tekur á móti gestum í einka-
heimsóknum og sýnir valda listamenn.
28 Alin upp á ást og vatni
Anna Jóna Ármannsdóttir segir frá átakamikilli ævi og lýsir því hvernig
henni var skyndilega gefið nýtt líf.
32 Pabbinn tjaldar ekki til
einnar nætur
Bjarni Haukur hefur samið við þýskt fyr-
irtæki um kvikmynd byggða á einleiknum
Pabbanum.
34 Þar sem hjartað ...
Páll Heimir Pálsson setur líkön af byggingum í
Reykjavík inn á Google Earth.
36 „Hann tók áðan eins og
marhnútur“
Bræðurnir Eggert og Þórir frá Stykkishólmi gjörþekkja Grímsá.
38 Frægð og furður
Evan Rachel Wood ástkona Marilyn Manson.
Lesbók
42 Zombíljóðin
Hárbeittum spegli á samtímann brugðið upp á frumsýningu í Borg-
arleikhúsinu í næstu viku.
47 Síðasta orðið
Víkingur Heiðar Ólafsson um Rachmaninoff 3, Ashkenazy og flutning-
inn til Berlínar.
14
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ernir Eyjólfsson af leikkonunum Álfrúnu og Sögu.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
33
Augnablikið
M
ætti á frumsýningu íslensku bíó-
myndarinnar Á annan veg á
fimmtudaginn og ekki byrjaði það
vel. Kom inn í salinn svona tíu mín-
útum áður en hún byrjaði og það voru öll sæti
upptekin og um fimmtíu manns sem stóðu og
fundu sér ekki sæti. Djöfulsins dónaskapur,
hugsaði ég með mér, bjóða manni á sýninguna og
hafa síðan boðsmiðana miklu fleiri en sætin eru.
En þetta er alþekkt vandamál með frumsýn-
ingar að oft eru skrítnar heimtur á boðsmiðum
sem sendir eru út. Ég þekkti ekki inn á þetta kerfi
þegar ég var með frumsýningu á minni bíómynd
og sendi bara út slíkan fjölda boðsmiða sem sæti
voru fyrir og þá var ekki setið nema í 80% sæta.
Þeir segja mér í bransanum að algengt sé að miða
boðsmiðamagn við 110% sætanna, jafnvel 120%.
En svo eru sumir sem vilja vera öruggir um fullt
bíó á frumsýningu og senda jafnvel enn hærra
hlutfall miða og þá er voðinn vís.
En eftir að ég og hinir 49 höfðum bara sótt
okkur stóla fram á gang og sátum á kollum upp
við sætaraðirnar varð til ansi kósí stemning. Kósí
stemning er síðan einmitt orðið sem ég myndi
nota yfir myndina. Þetta er næs mynd sem er
tekin í flottu umhverfi, uppi á hálendi Vestfjarða.
Þótt hún byrji stirðlega er hún svo hógvær að hún
nær fljótt að heilla mann. Þetta er ekta krútt-
kynslóðarmynd þótt um sé að ræða períódu-
mynd, sem á að gerast nítján hundruð áttatíu og
eitthvað. Myndin fjallar um tvo mjög ólíka pilta;
annar er 33 ára fósturfaðir sem stefnir á fram-
haldsnám í þýsku en hinn er 24 ára strákur sem
hugsar ekki um annað en kynlíf. Þeir tengjast
þannig að sá eldri er með systur hins og þeir
vinna saman við að strika vegi. Það eru engir aðr-
ir leikarar en þeir í myndinni og síðan Þorsteinn
Bachmann í aukahlutverki sem hann fer mjög vel
með. Hann virðist ráða við öll aukahlutverk sem
hann fær, því ég er nýlega búinn að sjá hann
valda allt annars konar aukahlutverki í bíómynd-
inni hans Rúnars Rúnarssonar, Eldfjallinu. Hér
leikur hann hressa kallinn á vörubílnum sem
færir þeim kók og landa með reglulegu millibili til
að koma með smáfjör í samskipti piltanna. Öll
leikstjórnin er svo hógvær og nett að það er gam-
an að fylgjast með piltunum. Það er æðislegt að
sjá leikstjórann ná að gera vel heppnaða períódu-
bíómynd fyrir klink.
Að frumsýningu lokinni var síðan öllu liðinu
smalað á skemmtistað í borginni og slett úr
klaufunum.
Það er alltaf sérstök upplifun að mæta á frum-
sýningu bíómynda. Hópur manna, oft 50-200
manns, þarf að leggja allt sitt af mörkum í langan
tíma til að bíómynd verði að veruleika. Að vera
síðan einmitt með þessum hópi að horfa á verkið
þegar það er fyrst sýnt er alltaf skemmtileg upp-
lifun. Manni léttir ef myndin er góð en líður verr
ef hún er slæm. Þetta var léttir.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Hilmar Guðjónsson í hlutverki sínu ásamt aukaleikaranum Þorsteini Bachmann sem færir honum landa.
Sjarmi á Vestfjörðum
3. september
Í dag, laugar-
dag, efna Vinir
Japans til dag-
skrár fyrir alla
fjölskylduna í Háskólanum í
Reykjavík. Er það til að þakka
samhuginn eftir hamfarirnar í
vor og vekja athygli á aðstæðum
barna á hamfarasvæðunum.
Margt er til gamans, svo sem
íþróttaleikir, hópdans, papp-
írsbrot, skrautskrift og manga.
5. september
Uppboð á mál-
verkum verður
haldið í Gallerí
Fold á mánu-
dag á verkum
nokkurra af
þekktustu
listamönnum
þjóðarinnar, þar á meðal Ólafs
Elíassonar.
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið okkar
Saumaklúbburinn
Hreinar MA-meyjar
og makar þeirra