SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 12
Nokia N9 er
með MeeGo-
stýrikerfi, en ekki Symbian
líkt og eldri gerðir Nokia-síma. Það
er byggt á Linux og ætti að vera auðvelt
fyrir forritara að snúa smáforritum úr
Android yfir í MeeGo. Stjórnkerfi símans
er hrein snilld, það hvernig maður notar
skjáinn, en ekki heima- eða bakkhnapp
neðst á símanum, eins og alsiða er.
Legg til að Nokia-menn haldi sig við
MeeGo, en sleppi því að skipta yfir í
Windows Phone 7.
12 4. september 2011
Miðvikudagur
Einar Kárason Ég
endurtek það sem ég
sagði á öðrum stað
að það á ekki að banna Kínverjum
eða neinum öðrum að eignast hæfi-
lega lóð undir hótel. En 300 fkm –
drjúg spilda af öllu landinu! Fjöll og
firnindi eiga ekki að vera í einka-
eign, Íslendinga né útlendinga.
Sigga Víðis Jóns-
dóttir kom suður aft-
ur með fullt kökubox
af dásamlegum Eid
al-Fitr-kökum eftir ótal
hátíðarheimsóknir á Akranesi,
kaffibolla, konfektmola, djúsglös
og smákökur. Við ræddum líka fram
og aftur um bókina – núna eru inn-
an við tvær vikur þangað til hún
kemur út! GÚLP.
Föstudagur
Vigdís Grímsdóttir
Pabbi minn heitinn,
Grímur M. Helgason, fæddist þenn-
an dag 1927 – 1961 fékk hann
Grím bróður minn í afmælisgjöf og
1965 Hólmfríði systur mína. Hvílík
gjafastelpa sem hún mamma mín,
Hólmfríður Sigurðardóttir, hefur allt-
af verið. Ástæða til að fá sér þrjá
sterka kaffibolla í morgunsárið!
Fésbók
vikunnar flett
Besti Nokia-síminn
Í heimsókn í höfuðstöðvar Nokia í Espoo í Finnlandi fyrir stuttu fékk ég að leika
mér með Nokia N9 sem kemur á markað í haust og er besti Nokia-síminn til
þessa; tæknilegasti, öflugasti og flottasti síminn – alvöru snjallsími.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Flestir eiga eflaust eftir að bera sím-
ann saman við iPhone og í þeim sam-
anburði hefur N9 vinninginn (gleymum
því ekki að nýr iPhone kemur í haust).
Þannig er skjárinn 3,9", sem er stærri
en á iPhone, og notar AMOLED
sem þýðir betri rafhlöðu-
ending.
Það er reytingur af forritum á honum:
póstforrit, dagbókarforrit, Skype, Facebo-
ok, Twitter og Angry Birds, svona rétt til
að nefna það allra nauðsynlegasta,
en hægt er að sækja fleiri
símaforrit í Ovi-
búðinni.
Síminn sem ég tók til
kosta var sprækur,
svörun góð og fljótlegt
að skipta á milli forrita.
Vafrinn í honum er nýr af
nálinni, vel sprækur og
með HTML5-stuðning. Ovi-
kortaforritið fylgir, en ekki
mikið breytt frá því sem er á
N8 til að mynda.
Þessi nýi sími sem Huawei framleiðir
fyrir Vodafone, Vodafone 858 Smart,
sýnir vel hvað Nokia á við að eiga.
Hann er ódýr, kostar ekki nema
22.900, en hefur þó flest það upp á
að bjóða sem maður gæti óskað sér af
snjallsíma: keyrir Android 2.2 og
hægt er að lesa vefsíður á honum,
keyra Android-smáforrit og leiki, sýsla
með Gmail og leita á Google, uppfæra
stöðu á Facebook og svo má lengi
telja. Stuðningur er við þráðlaust net,
sem er að verða staðalbúnaður, Blá-
tönn, GPRS, 3G (HSDPA, 3,6 Mb á
sek) og svo framvegis.
Með símanum fylgir 2 GB minn-
iskort og því gott pláss fyrir gögnin,
en það má auka ef vill, setja í hann
stærra kort. Síminn er með prýðilegan
snertiskjá, að vísu ekki mjög stóran,
2,8" með 240x320 díla skjá, og hann
er ekki ýkja hraðvirkur en þetta er
ekki keppinautur iPhone – hér er kom-
ið dæmi um það hvernig símar flestir
verða fljótlega: nettir og ódýrir snjall-
símar með snertiskjá. Það er engin til-
viljun að Huawei er einn stærsti far-
símaframleiðandi heims.
Ódýr snjallsími
Vodafone 858 Smart