SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 27
4. september 2011 27
Listamennirnir sex sem eigendur gallerísins munu hlúa að
eru margvíslegir. Sameinaðir í eitt verða höggmyndlist-
armenn, listamenn málverksins og listaljósmyndari.
Jón Axel Björnsson
Myndlistarmaðurinn Jón Axel Björnsson varð þekktur í
bylgju Nýja málverksins á níunda áratugnum sem kom eins
og ferskur blær inn í konsept-drifin verkin sem voru allsráð-
andi á Vesturlöndum á þeim tíma. Listamenn Nýja málverks-
ins sóttu föng í expressjónismann. Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur segir um hann: „Í umfjöllunum um verk Jóns
Axels hafa gagnrýnendur og listfræðingar, t.d. Halldór Björn
Runólfsson og Auður A. Ólafsdóttir, lagt áherslu á drama-
tískt og tilvistarlegt inntak þeirra. Grunneiningar myndverka
Jóns Axels eru maðurinn, verk hans og gjörðir.“
Ragnar Axelsson
Sem oftast er kallaður RAX er orðinn heimsþekktur lista-
maður eftir útkomu ljósmyndabóka sinna Andlit norðursins
og The Last Days of the Arctic.
Guðný Kristmanns
Málaralist Guðnýjar verður til við lok tímabils Nýja málverks-
ins í byrjun tíunda áratugarins. Um listaverk hennar segir Að-
alsteinn: „Hún vinnur einvörðungu út frá eigin hugmynda- og
tilfinningaheimi, við aðstæður sem hún líkir við draumkennt
og takmarkalaust frelsi. Eins og súrrealistarnir leggur hún
mikið upp úr draumum sínum og reynir að koma þeim til
skila án truflunar frá rökhugsun.“
Hafsteinn Austmann
Hann nam í París á sjötta áratugnum og fór strax að mála í
abstrakt stíl á þeim tíma. Hann hefur tekið þátt í miklum
fjölda einkasýninga og lýsti sjálfur stíl sínum með eftirfar-
andi orðum: „Ég reyni að búa til málverk sem virka eins og
óræð og opin ljóð og hafa burði til að lifa sjálfstæðu lífi eftir
að ég er búinn að sleppa af þeim hendinni.“
Valgarður Gunnarsson
Einsog Jón Axel var Valgarður einn listamannanna sem
þroskuðust á tíma Nýja málverksins. Í verkum sínum í dag
vill Aðalsteinn meina að markmið Valgarðs sé leynt og ljóst
að auka á fagurfræðilega og merkingarlega virkni hvers-
dagslegra fyrirbæra.
Hallsteinn Sigurðsson
Hann er eini höggmyndlistarmaðurinn og er kannski fræg-
astur fyrir Höggmyndagarð Hallsteins í Gufunesi.
Listamennirnir
Ein mynda Jóns Axels Björnssonar.
liggur það mikið betur fyrir þeim en mér. Hin börnin
mín, Arnar Þór og Þórdís Lind eru máski frekar eins og
ég,“ segir hann.
Þór bendir á að þótt áhugi hans sé mikill skipti ekki
minna máli stuðningurinn sem hann hefur frá Ingi-
mundu (Indu) í verkefnið en það var strax á fyrsta
stefnumóti þeirra sem þau notuðu tímann til að fara á
milli allra listasafna Reykjavíkur og spjalla saman um
verkin. En bæði móðir hennar og amma máluðu mikið
og Inda því mikil áhugamanneskja um myndlist og
hönnun.
Of skemmtilegt?
Aðspurður hvort þetta verði ekki bara of skemmtilegt
hérna með góðu fólki og rauðvíni langt fram á nótt og
engu komið í verk, segir hann enga hættu á því. „Þetta
verður vonandi hörkuvinna sem það og hefur verið
fram að þessu. Inda mín kemur að þessu með nattninni
sinni og skipulaginu og ég með vinnuna að vopni og í
samvinnu við listamennina verður þetta bara gaman.
Það þarf engar áhyggjur að hafa af rauðvíninu og við
munum auðvitað vera með hvítt vín líka, þannig að
dagur og nótt sameinist með góðu fólki,“ segir hann og
hlær.
’
Við sameinum þessa
sex listamenn því
þeir höfða mikið til
okkar. Þeir eru kveikjan að
galleríinu því fyrst höfðum
við samband við þá áður en
við létum verða af því að
útvega húsnæði fyrir verk
þeirra.
Þór Hinriksson og Ingimunda Mar-
en Guðmundsdóttir (Inda) ásamt
listamanninum Jóni Axel Björns-
syni. Þór og Inda reka galleríið úti
á Granda.