SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Side 4
4 4. september 2011
Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna Philipp
Lahm, sem er 27 ára gamall, hafi séð sig knúinn til
þess að skrifa ævisögu sína. Athygli vekur að hann
sér sérstaka ástæðu til þess að taka fram að hann
sé ekki samkynhneigður og ákveður reyndar líka að
vara knattspyrnumenn við að koma út úr skápnum.
„Í fyrsta lagi er ég ekki hommi,“ segir Lahm. „Ég
er ekki kvæntur Claudiu konunni minni til þess eins
að sýnast og ég á ekki vin í Köln sem ég bý með í
raun.“ Hann segir að þessar vangaveltur skipti sig
ekki máli og bætir við: „Ég hef ekkert á móti homm-
um og finnst ekkert vera athugavert við samkyn-
hneigð.“
Hafið þið ekkert mikilvægara að gera?
Síðan segir hann: „Það kemur mér stöðugt á óvart
hvað þessar einangruðu manngerðir, sem segja
svona sögur, geta haft mikil áhrif á almenningsálitið.
„Philipp Lahm hommi“ … hafið þið ekkert mikilvæg-
ara til að tala um?“ Lahm gefur til kynna að orðróm-
urinn hafi komist á kreik eftir að ókunnugur maður
bankaði upp á hjá honum í München, játaði honum
ást sína og skildi eftir hjá honum bréf.
Lahm ráðleggur hins vegar knattspyrnumönnum
að koma ekki út úr skápnum. Nefnir hann þar sér-
staklega mál Johns Fashanus, fyrsta atvinnumanns-
ins á Bretlandi, sem gerði grein fyrir því að hann væri
hommi. Fashanu sagði að hann hefði orðið fyrir djúp-
stæðum fordómum gegn samkynhneigð eftir yfirlýs-
ingu sína. Fashanu svipti sig lífi 1998.
„Í fyrsta lagi er ég ekki hommi“
Philipp Lahm fagnar sigri á Brasilíu í vináttuleik
ásamt félögum sínum í þýska landsliðinu.
Reuters
P
hilipp Lahm verður seint kallaður
ólátabelgurinn í þýskri knattspyrnu.
Eftir uppnáminu, sem nýútkomin
sjálfsævisaga hans hefur vakið mætti
hins vegar ætla að hann væri einhver ófyr-
irleitnasti rógberi, sem þýskur fótbolti hefur
alið.
Lahm er fyrirliði félagsliðsins Bayern Münc-
hen og hefur verið fyrirliði þýska landsliðsins
frá því í fyrra og leiddi liðið þegar það náði
þriðja sæti í heimsmeistarakeppninni í Suður-
Afríku. Bókin heitir Der feine Unterschied, sem
mætti útleggja Hinn hárfíni munur. Lahm segir
í formála bókarinnar að fyrir sér vaki að sýna
hvernig hlutirnir gangi fyrir sig í fremstu röð í
fótboltanum.
Í umfjöllun um bókina kemur hins vegar
fram að þar sé aðallega fjallað um ýmis atvik úr
fótboltanum og hvernig hlutirnir gengu fyrir
sig síðasta keppnistímabil hjá Bayern München.
Í grein í Der Spiegel um málið segir að Lahm sé
„tengdasonarmanngerðin, eðlilegur, vingjarn-
legur, meinlaus“. Hann tali um slæman anda í
búningsklefanum á Evrópumeistaramótinu
2008, en nefni engan á nafn. Hann gagnrýni
heldur ekki Rudi Völler, fyrrverandi þjálfara
landsliðsins, eins og margir telji, heldur lýsi
hvernig landslið í þá daga (2004) undirbjó sig.
Menn skoðuðu ekki myndir, drógu ekki upp
áætlanir um leikskipulag né lögðust í tölfræði. Í
bókinni sé skýrt tekið fram að þá hafi verið
aðrir tímar og Völler hafi ekki skorið sig úr í
þessum efnum. Völler hefur engu að síður
gagnrýnt Lahm harðlega.
Mikið hefur verið gert úr ummælum Lahms
um þjálfaratíð Jürgens Klinsmanns hjá Bayern,
en þar segir Lahm þó ekkert nýtt og ekkert
umfram það, sem Uli Hoeness, æðsti ráðamað-
ur félagsins, hefur þegar sagt.
Þáttur Bild í að blása bókina upp
Bók Lahms kom út hjá frekar litlu forlagi, sem
hefur sérhæft sig í skáldsögum og fræðiritum
og hét einu sinni kvennaforlag. Við kynningu á
bókinni veitti forlagið dagblaðinu Bild forbirt-
ingarrétt á efni úr henni. Þar á bæ tóku menn
saman allt, sem eitthvert púður þótti í, og slógu
bókinni upp sem þar væru gerð „reiknings-
skil“. Aðrir miðlar gripu boltann á lofti og úr
varð írafárið, sem nú hefur gengið yfir Lahm.
Svo virðist þó vera sem háværustu gagnrýn-
endurnir hafi látið sér nægja að lesa Bild og látið
vera að plægja í gegnum bókina. Hún varð hins
vegar til þess að þýska knattspyrnusambandið
kallaði Lahm á teppið og á mánudag átti lands-
liðsþjálfarinn, Joachim Löw, fund með fyrirlið-
anum til þess að „hreinsa andrúmsloftið“ og
kom í ljós að hann fær að halda fyrirliðaband-
inu . Daginn eftir komu þeir báðir fram á blaða-
mannafundi í Dusseldorf. „Í gærkvöldi ræddum
við málið til að átta okkur á hvers vegna
ákveðnir hlutir hefðu verið skrifaðir,“ sagði
Löw. „Ég sagði honum að ég væri ekki ánægður
með að hann hefði gert opinberar upplýsingar
um leikmenn og þjálfara. En það kom aldrei til
greina að taka af honum fyrirliðatitilinn.“
Áður hafði Lahm beðist innilega afsökunar og
gefið út yfirlýsingu: „Auðvitað ætlaði ég hvorki
að ráðast á né móðga Rudi Völler, Jürgen Klins-
mann, né annað fólk,“ sagði hann í yfirlýsing-
unni. „Fremur vildi ég, eins og verður ljóst við
lestur bókarinnar, setja fram hreinskilnislega
skoðun mína á því hvernig hefði verið að vinna
með ólíkum þjálfurum á ólíkum tímum.“
Írafárið út af bókinni vekur einnig furðu
vegna þess að ýmsir fengu að sjá bókina áður en
hún kom út. Einn þeirra er Oliver Bierhoff, sem
heldur utan um landsliðið. Hann gaf grænt ljós,
en sagði engu að síður þegar bókin var komin
út að þar hefði Lahm „farið yfir mörkin“.
Antje Kunstmann, útgefandi bókarinnar,
segist vorkenna Lahm. Hann hefði ekki átt von
á slíku uppnámi. Menn áttu greinilega ekki
heldur von á því á ritstjórn Der Spiegel að farið
yrði með Lahm eins og hann hefði framið morð.
Í blaðinu segir að þar hafi upphaflega átt að
birtast stutt umsögn um bókina með svohljóð-
andi niðurlagi: „Eftir situr tilfinning eins og
eftir fótboltaleik, sem hefur verið blásinn af
vegna þoku.“
Í skamm-
arkrókinn
fyrir skrif
Lahm sakaður
um svæsnar
árásir í ævisögu
Philipp Lahm átti síst von á því að verða fyrir árásum úr öllum áttum þegar ævisaga hans kom út fyrir rúmri viku.
ReutersVikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Þýskir fótboltamenn
hafa áður valdið usla
með skrifum. Mark-
maðurinn Toni Schu-
macher kallaði yfir
sig harða gagnrýni
þegar hann skrifaði
um lyfjanotkun í
knattspyrnu og Lot-
har Matthäus sparaði
ekki stóryrðin í garð
gamalla félaga. Phil-
ipp Lahm hefur nú
fengið á sig sama
stimpil, en ýmsum
þykir það ómaklegt.
Skrif hans séu í raun
saklaus.
Fleiri hafa
hneykslað
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið okkar
Leikhúshópur strákanna
í Hagaskóla