SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Qupperneq 6
6 4. september 2011
Nú sér fyrir endann á 13.
heimsmeistaramótinu í
frjálsum íþróttum sem hald-
ið hefur verið í Daegu í Suð-
ur-Kóreu. Mótið hefur stað-
ið yfir frá 27. ágúst og lýkur
nú 4. september. Á mótinu
eru 1943 keppendur frá
203 löndum. Mótið hefur
farið fram í Daegu Stadium
eða á sama stað og heims-
meistaramót FIFA í fótbolta
fór fram árið 2002.
Þau Ásdís Hjálmsdóttir
spjótkastari og Kristinn
Torfason langstökkvari
hafa verið fulltrúar Íslands
á mótinu. Ásdís kastaði
lengst 59,15 metra og
hafnaði í 13. sæti og Krist-
inn stökk lengst 7,17
metra og hafnaði í 30.
sæti.
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum 2011
Það vantaði ekki mikið upp á að Ásdís Hjálmsdóttir kæmist í úrslitin á HM eða
aðeins rétt rúma 50 sentimetra.
Þ
að þurfti ekki forfallinn íþróttaáhuga-
mann til að festast yfir skjánum þegar
400 metra hlaup karla á Heimsmeist-
aramótinu í frjálsum íþróttum í Suður-
Kóreu fór fram. Ekki nóg með að sigurvegarinn,
Kirani James, væri rétt tæplega 19 ára gamall
heldur komst í undanúrslit íþróttamaðurinn
Oscar Pistorius sem hefur fengið viðurnefnið
fljótasti fótalausi maður veraldar.
Pistorius fæddist í Suður-Afríku árið 1986,
hann var 11 mánaða þegar þurfti að fjarlæga báða
fætur hans fyrir neðan hné vegna meðfædds
sjúkdóms. Hann tók þátt í Ólympíuleikum fatl-
aðra árið 2004 og gerði sér lítið fyrir og vann
200 metra hlaupið í flokki fatlaðra sem hafa
misst einn útlim. Pistorius er með gervifætur frá
Össuri og er fyrsti einstaklingurinn með þess
konar stoðtæki sem hlýtur réttindi til að keppa á
stórmóti eins og HM í frjálsum íþróttum. Gagn-
rýnisraddir hafa vissulega verið uppi um það að
gervifætur hans gefi honum forskot fram yfir
aðra og eins hefur hann verið gagnrýndur fyrir
að vera sá sem stal athyglinni frá raunverulegum
sigurvegurum mótsins, þeim sem héldu á verð-
launapeningunum.
Pistorius er svo sannarlega brautryðjandi og
hvort sem gagnrýnisraddirnar eiga rétt á sér eða
ekki þá má ekki taka afrek hans af honum. Þeg-
ar skotið hljóp af byssunni og hlaupararnir
spyrntu sér af stað var erfitt að taka augun af Pi-
storius. Það skipti í raun engu máli hvernig hin-
um gekk, aðeins hvort Pistorius næði í undan-
úrslit eða ekki. Barátta hans við eigin fötlun og
það að hann skyldi sýna það í verki að fötlun
þarf ekki að vera hindrun getur ekki annað en
heillað hörðustu andíþróttasinna. Hann var
þriðji í sínum riðli og náði sínum næstbesta
tíma, 45,39 sekúndum, og var öruggur með að
komast í undanúrslit með fjórtánda besta tím-
ann. Fjölmiðlafárið fylgdi í kjölfarið og héldu
íþróttafréttamenn Pistorius lengur í viðtali en
öllum öðrum keppendum og á endanum sagði
hann: „Ég verð að komast héðan eins fljótt og
mögulegt er til að fara í ísbað og gera mig kláran
fyrir framhaldið.“
Pistorius náði ekki að bæta tíma sinn þegar
hann hljóp í undanúrslitunum og var síðastur í
því hlaupi. Engu að síður var sigurinn hans að
hluta þó að hann deili ekki gullinu með verð-
skulduðum sigurvegara, Kirani James.
Pistorius hafði vonast eftir að fá að taka þátt í
Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 en var ekki
valinn af ólympíunefnd Suður-Afríku þá honum
til mikilla vonbrigða. Pistorius stóð síðan uppi í
hárinu á mörgum til að fá það í gegn að keppa
nú í ár á heimsmeistamóti með ófötluðum. Hann
lét gagnrýnisraddir sem vind um eyru þjóta,
fékk vilja sinn í gegn og sýndi og sannaði að
hann er afreksmaður í íþróttum sem á vel heima
í þessum hópi.
Pistorius á hrós skilið fyrir margt. Hann er
baráttumaður réttinda minnihlutahóps, hann er
sannkallaður afreksmaður og ekki má gleyma
því að hann hefur veitt til sín aðdáendur úr
ólíklegustu áttum sem ósjálfkrafa eru farnir að
fylgjast með frjálsum íþróttum.
Frár án fóta
Oscar Pistorius er búinn að
vera einn umtalaðasti þátttak-
andinn á HM í Suður-Kóreu
Fljótur en fótalaus hleypur Pistorius inn í undanúrslitin á HM.
Reuters
Gælunafnið „Blade Runner“ hefur fylgt Pistorius en
það hljómar einhvern veginn betur en blaðhlauparinn.
Vikuspegill
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
Oscar Pistorius er einn
af fjölmörgum afreks-
íþróttamönnum í úr-
valsliði Össurar. Lengi
hefur Össur staðið við
bakið á fólki sem hefur
sýnt að það þarf ekki
að vera takmörkunum
háð að vera þátttak-
andi í lífinu sé maður
án útlima.
Úrvalslið
Össurar
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið okkar
Nemendur í áfanganum
„Íslensk leikhús og leiklist“
í Flensborg