SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 9
4. september 2011 9
Þ
að er gaman að vera
kominn aftur eftir
ansi langt frí, og
munu pistlarnir mínir
nú verða með svipuðu sniði,
en á síðasta ári var ég mikið
úti á landi. Í ár hef ég aftur á
móti haldið mig á höfuðborg-
arsvæðinu, ég mun að sjálf-
sögðu einbeita mér að mat og
matartengdum málefnum,
enda er það atvinna mín og
mitt helsta áhugamál. Ég verð
ófeiminn við að hrósa þeim
sem gera vel, sama hvort um
er að ræða í veitingamennsku,
matvælaframleiðslu, verslun
eða eitthvað sem tengist mat
og matargerð.
Ég hafði verulega gaman af
því að upplifa Menningarnótt í
Reykjavík í fyrsta skipi, sér-
staklega vegna þess að umræð-
an hefur að mínu mati ekki
verið svo góð og aðallega talað
um fyllerí og sóðaskap. Við
hjónin hlustuðum á ráðlegg-
ingar borgaryfirvalda og lögð-
um bílnum í hæfilegri fjarlægð
og löbbuðum í bæinn, það var
hárrétt ákvörðun. Karnival-
stemmingin höfðaði til okkar
og ég skil vel að fólk velti því
fyrir sér hvort stórtónleikarnir
á Austurvelli og Ingólfstorgi
séu þarfir á svona kvöldi. Ég
hafði aftur á móti mjög gaman
af því að sjá Samaris á litlu
sviði á horni Bankastrætis og
Skólavörðustígs og frábæra
tónleika í rakarastofu almúg-
ans, Amadeus, sem greinilega
eru árvissir því færri komust
að en vildu. Svo ekki sé
minnst á að upplifa orgelleik
og kórsöng í Hallgrímskirkju
án þess að vera í messu. Er það
merki um að ég sé orðinn
gamall þegar flugeldasýning
höfðar ekki lengur til mín? Eða
er það kannski upplifunin á
stórkostlegri flugeldasýningu í
tilefni af 10 ára afmæli Fiski-
dagsins mikla í fyrra sem lætur
aðrar flugeldasýningar líta
hálf-ræfilslega út? Ég held að
það sé óhætt að segja að Skóla-
vörðustígurinn sé miðdepill
mataráhugafólks á Menning-
arnótt, gaman að sjá fallegar
samlokur fyrir utan Ostabúð-
ina, fjölda fólks gæða sér á
heimilismat í Matbúð
mömmu Steinu og þétt-
setnir bekkir á öllum
kaffihúsum og veit-
ingastöðum í götunni.
En hrós mitt að þessu sinni
fer til starfsfólksins og eigenda
á Café Loka, þar höfum við
veitingastað með sál sem skilar
sér greinilega til viðskiptavin-
anna. Þarna inni var góð
blanda af fjölskyldufólki, er-
lendum gestum af öllum þjóð-
ernum og fínum frúm sem
gæddu sér á plokkfiski, kjöt-
súpu, sviðasultu, flatbrauði,
rúgbrauði og öðrum heimilis-
legum veitingum sem bornar
voru fram með þjóðarstolti og
metnaði. Ég hef oft heyrt talað
niður til þjónustu á veitinga-
stöðum í miðborginni, að þar
séu ungir krakkar, sem kunni
lítið til verka og engin fag-
mennska. Það er nú aldeilis
ekki raunin á Café Loka þar
sem starfsstúlkurnar höfðu
greinilega gaman af vinnunni
sinni, voru vel að sér, fum-
lausar og brosandi. Að mínu
mati er þarna einn af horn-
steinum í reykvískri mat-
armenningu sem aðrir veit-
ingamenn ættu að taka sér til
fyrirmyndar og hlakka ég nú
þegar til að mæta á staðinn
aftur og þá sérstaklega með
erlenda gesti.
Einn af hornsteinum matarmenningarinnar
Café Loki, þar höfum við veitingastað með sál sem skilar sér greinilega til viðskiptavinanna.
Morgunblaðið/Eggert
Matur
Friðrik V.
Karlsson
ÓÐINSGÖTU 4
SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Hrólfsskálamelur – Seltjarnarnesi
Glæsilegt fjölbýlishús. Einstök staðsetning
Glæsilegar lúxusíbúðir í nýju þriggja hæða lyftuhúsi. Íbúðirnar eru afar vandaðar og er mikið lagt í
hönnun, efnisval, búnað og frágang. Stærðir eru frá 84 fm. upp í 225 fm. og afhendast þær
fullbúnar án gólfefna. Eitt til þrjú bílastæði fylgja hverri íbúð.
Sölumenn Fasteignamarkaðarins sýna. Sjá nánari skilalýsingu á www.fastmark.is