SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 10
10 4. september 2011
E
r ekki eitthvað stórbrotið við lánleysi Vinstri hreyf-
ingarinnar – græns framboðs? Varla kemur nokkrum
á óvart að fylgi VG mælist nú í sögulegu lágmarki og
hefur ekki mælst minna síðan um mitt ár 2007. Um
síðustu helgi hélt VG flokksráðsfund, þar sem m.a. var fjallað
um veru Íslands í NATO og aðgerðir NATO í Líbíu fordæmdar
og ályktað um að Ísland ætti að segja sig úr NATO. Jafnframt
var ályktað um að rannsaka bæri aðdragandann að stuðningi
Íslands við loftárásir NATO í Líbíu.
Á þriðjudagsmorgun, aðeins tveimur dögum eftir flokks-
ráðsfundinn, gat að líta frétt efst á mbl.is undir fyrirsögninni
Voðaverk Gaddafis afhjúpuð sem hófst svona: „Hersveitir
Gaddafis nota óbreytta
borgara sem vörn gegn
skothríð, þeir ráðast að
sjúkrabílum og nauðga
barnungum stúlkum. Þetta
segja bandarísku mann-
réttindasamtökin „Læknar
í þágu mannréttinda“ eftir
að hafa tekið viðtöl við 54
íbúa líbísku borgarinnar
Misrata.
… hermenn Gaddafis
þvinguðu 107 óbreytta
borgara til að standa vörð
við hergagnageymslu, sem
NATO hugðist varpa
sprengjum á. Þar voru tvö
börn neydd til að sitja ofan
á skriðdreka.“
Svona hryllileg frásögn af
grimmdar- og voðaverkum
Gaddafis getur ekki haft
nokkur áhrif á hina ein-
dregnu friðarsinna í VG. Haft var eftir Auði Lilju Erlingsdóttur
framkvæmdastýru VG í frétt í Morgunblaðinu sl. þriðjudag,
„að friðarstefnan sé grasrótinni mjög ofarlega í huga. Hluti fé-
lagsmanna hafi stutt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
en um leið og NATO hafi tekið yfir aðgerðirnar hafi þær farið út
fyrir þann ramma sem var samþykktur á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.“
Hvað er eiginlega í gangi hjá NATO og þeim 60 þjóðum (Vin-
um Líbíu) sem sendu fulltrúa sína á fund í París á fimmtudag,
undir þeim formerkjum að aðstoða Líbíu eftir megni við upp-
byggingu?! Leggja menn ekki við hlustir, þegar flokksráðs-
fundur VG vill slá skjaldborg um Gaddafi og hans morðóða
hyski, sem nauðgar konum og börnum, pyntar óbreytta borg-
ara, rekur gamalmenni á götur út og notar saklaus börn sem
skjöld, í skothríðum og sprengiárásum?
Það er fróðlegt til þess að vita að formaður flokksins, Stein-
grímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir,
varaformaður og menntamálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir,
umhverfisráðherra, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra
og Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, skuli
öll hafa verið viðstödd umræðurnar á flokksráðsfundinum um
að fordæma bæri loftárásir NATO á Líbíu. Engar fregnir bárust
um að þau væru ekki sömu skoðunar og „grasrótin“. Hvar var
formaður utanríkismálanefndar, Árni Þór Sigurðsson, þegar
ályktunin um rannsókn á aðdragandanum var samþykkt? Er
hann sömu skoðunar og „grasrót“ Auðar Lilju. Vill hann líka
slá skjaldborg um Gaddafi og hans hyski?
Aldrei þessu vant virðist ráðherrann síkáti, Össur Skarphéð-
insson, hafa nokkuð til síns máls þegar hann segir: „Ég er ekk-
ert hræddur við svona rannsóknarnefnd og ef félagar mínir í
VG hafa sérstakan áhuga á að leggja fram rannsóknarnefnd til
að skoða mínar gerðir, þá segi ég bara: Verði þeim að góðu. Það
hafa aðrir en ég ástæðu til að óttast það.“
En Jóhanna Sigurðardóttir getur vart verið jafnróleg og ráð-
herrann síkáti, því hún varð einfaldlega uppvís að ósannindum
í fréttum í vikunni, þegar hún sagði að utanríkisráðherra hefði
í einu og öllu farið að ályktun Alþingis í þessum efnum. Það er
ósatt. Alþingi hefur alls ekkert ályktað um loftárásir NATO á
Líbíu. Svo einfalt er það. Hvernig ætlar forsætisráðherrann að
krafsa sig út úr þessum ósannindum? Hún lætur, eins og
kunnugt er, ekki ná í sig, en varla getur hún verið í felum út
kjörtímabilið eða hvað?
Lánleysi VG
virðist algert
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Auður Lilja
Erlingsdóttir
Jóhanna
Sigurðardóttir
’
Leggja menn
ekki við hlustir,
þegar flokks-
ráðsfundur VG vill
slá skjaldborg um
Gaddafi og hans
morðóða hyski?
Síðastliðinn laugardag var ár
síðan Kjartan Birgisson vaknaði
að morgni með nýtt hjarta, en
myndrík frásögn af hjarta-
skiptunum birtist í Sunnudags-
mogganum. Þá hafði Kjartan
verið sjúklingur árum saman,
lítið getað hreyft sig fyrir mæði
og farið í fjölda hjartaaðgerða.
Ári síðar er Kjartan sjálfum sér
líkur, góða skapið enn til stað-
ar, en lífsskilyrðin hafa breyst
mikið. Hann var beðinn um að
lýsa deginum sem hann hélt
upp á að ár var liðið frá hjarta-
skiptunum.
9.00 Vakna, framundan er
stór dagur. Það var fyrir ná-
kvæmlega einu ári sem ég fékk
nýtt hjarta. Framundan er að
ganga á Þverfellshorn Esjunnar
í tilefni tímamótanna.
9.45 Morgunmatur hjá Lau-
lau systur minni. Hún heitir
Guðlaug Hildur, en er jafnan
kölluð Laulau. Þetta er öðrum
þræði orkusöfnun, en líka
dekrað við bragðlaukana með
soðnu eggi og kavíar, rúnn-
stykki og svo auðvitað kaffi.
10.30 Hópurinn kemur
saman við Mógilsá. Mættir eru
Hildur dóttir mín, Laulau systir
mín og dóttir hennar hún
Ransí, Unnella systir mín, Gylfi
bróðir minn og Svandís mág-
kona mín.
11:00 Lagt af stað upp á
Þverfellshornið, glaðbeittur
hópur með markmiðið á
hreinu. Göngum hægt en
örugglega.
12.00 Æjum í smáberjamó
og setjum hælsærisplástur á
einn hæl.
13.00 Kominn upp að
steini, allir glaðir en æf-
ingaskortur farinn að segja til
sín hjá sumum. Múgæsingur
verður til þess að allir nema
einn halda áfram upp á topp-
inn.
13:20 Ég kem fyrstur á
toppinn því ferðafélagar mínir
eru að aðstoða breska fjöl-
skyldu. Þvílík gleði að vera
kominn upp, brosi allan hring-
inn og skrái áfangann í gesta-
bókina á hringsjánni. Líkaminn
ótrúlega sprækur og ég hefði
alveg getað gengið lengra.
13.30 Leggjum af stað nið-
ur og fáum okkur nesti við
mýrina á leið niður. Þreytan
fer að segja til sín á niðurleið-
inni og þá verð ég feginn að
gangan er þó ekki lengri en
þetta.
15.00 Komum niður að
bílastæði alsæl með gönguna,
þreytt en glöð.
15.30 Komum heim, ég og
Hildur, til Maríu dóttur minnar
sem var lasin heima, hafði ver-
ið í hálskirtlatöku í fyrradag.
Framundan er að hvíla sig
vel og undirbúa komu harð-
sperranna.
Almennt hef ég reynt að
hreyfa mig í sumar, farið í
stutta göngutúra um Elliðaár-
dalinn og golf á Korpúlfs-
staðavelli, þar sem ég á erfitt
með að ganga Grafarholtið. Svo
tók ég þátt í Reykjavík-
urmaraþoninu og hljóp 10
kílómetra. Það var rosalega
gaman, en gefur Esjugöngu lít-
ið eftir hvað áreynsluna varð-
ar.
Svo hef ég varið lausum
stundum á skrifstofu Hjarta-
heillar, þar sem ég vinn að
málefnum líffæraþega, hvort
sem það eru hjarta, lungu eða
nýru. Ég reyni að vekja um-
ræðu um þau mál, þannig að
fólk sé meðvitað um stöðu
fólks sem á við þann vanda að
etja og hvað það er dýrmætt ef
fólk skráir sig sem líffæragjafa.
19.00 Í fjarveru húsmóð-
urinnar Halldóru, sem er í
Rangæingaferð með móður
sinni, sér Hildur um að mat-
reiða góðan kvöldverð.
20.00 Slakað á um kvöldið
eftir gönguna. Ég er ekki burð-
ugur í samkvæmislíf eftir átök
dagsins.
23.00 Góðum degi lýkur og
rétt að fara að sofa.
Dagur í lífi Kjartans Birgissonar hjartaþega
Gönguhópurinn: Ragnhildur Rúnarsdóttir, Guðlaug Hildur Birgisdóttir, Unnur Birgisdóttir, Kjartan Birgisson,
Gylfi Birgisson, Hildur Kjartansdóttir og Svandís Kristiansen.
Morgunblaðið/Kristinn
Sprækur á Esjunni
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið mitt
Agnar Jónsson,
kennari.