SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Blaðsíða 13
4. september 2011 13
E
igum við að koma í berjamó?“
spurði ég fjögurra ára son minn
sem svaraði mér brosandi út að
eyrum: „Jahá, jibbí!“ Ég lét
mér ekkert bregða við að honum þótti
mikilvægara að taka til sverð og skjöld í
leiðangur okkar út í móann en að leita
að berjatínunni. Það er alvanalegt fyrir
þriggja stráka mömmu að ferðast um
með fylgdarsveina sem eru gráir fyrir
járnum. Eins og gefur að skilja eru víg-
búnir synir auðvitað stolt allra friðelsk-
andi mæðra. Kátínan var þó fljót að
breytast í vonbrigði og gremju þegar
hnokkinn áttaði sig á að það höfðu orðið
hræðileg mistök. Móðir hans virtist ætl-
ast til þess að hann tíndi ber. Honum
hafði greinilega misheyrst. Hann taldi
sig nefnilega vera á leið í berja-MÁ.
Þegar mesta bræðin var runnin af hon-
um settist hann sáttur í berjalyngið og
tíndi dýrindis bláber í fötuna sína.
Yngsti sonurinn hafði annan háttinn
á. Honum þykir algjör óþarfi að berin
þurfi að millilenda í krukkunni áður en
þau enda óhjákvæmilega uppi í munni.
Enda þykir honum margfalt mikilvægara
í þessu lífi að gleðja bragðlaukana en að
standa í stríðsrekstri. Það er óþarfi að
óttast að hann týnist í móanum þar sem
hægt er að ganga á unaðs-
hljóðin í þeim stutta. Berja-
blár og alsæll situr stúfurinn á milli
þúfna og kyrjar „mmmm“ samtímis og
hann tínir upp í sig dásemdina.
Eftir dágóða stund voru afköstin borin
heim og skipt bróðurlega á milli fjöl-
skyldumeðlima. Hvítum strásykri sturt-
að yfir berin og öllu sökkt í þeyttan
rjóma. Þegar þetta var borið á borð
skildi ég vel hvernig hreindýraskyttum
líður þegar þeir borða bráðina sem
mikið var haft fyrir að elta uppi, skjóta
og bera til byggða. Að borða nýtínd blá-
ber með roða í kinnum eftir endurnær-
andi útiveruna er eitt af því besta sem til
er.
Vertíðin í berjatínslunni markar enda
sumarsins. Sumarið var yndislegt. Næst
tekur haustið við með skólabjöllum og
leikskólavist. Fjölskyldan lenti í stórum
og smáum ævintýrum í sumar; í garð-
inum heima, uppi á hálendi Íslands og
meira að segja suður við Miðjarðarhafið.
Þegar líður á sumarið reynir á samheldni
fjölskyldunnar. Það er dýrmætt að eiga
góðar stundir saman en fyrir mitt leyti
er ég afskaplega þakklát fyrir að mæta á
morgnana með glaða stráka í skóla og
leikskóla þar sem vel er tekið á móti
þeim. Það eru allir ánægðir með festuna
í hversdagsleikanum. Svo til að brjóta
upp rútínuna má kíkja í berjamó seinni-
part dags, já eða kannski í svolítið berja-
má.
Hversdagsleg ævintýri í berjamó
Morgunblaðið/Einar Falur
Móður-
hlutverkið
Agnes Ósk
Sigmundardóttir
PRJÓNAÐ ÚR
ÍSLENSKRI ULL
Þessi glæsilega nýja prjónabók er mikill fengur fyrir
áhugasamt prjónafólk sem þyrstir í klassískar og
fallegar uppskriftir að flíkum úr íslenskri ull.
4.999 kr.
TILBOÐ
Fullt verð 5.999 kr.
Í bókinni er að finna 65 sérvaldar uppskriftir. Áherslan er lögð á
lopapeysur en einnig eru uppskriftir að smærri viðfangsefnum
eins og húfum, sokkum og vettlingum. Í bókinni er einnig í fyrsta
skipti rakin á einum stað saga prjóns á Íslandi.
Eymundsson.is
Ti
lb
oð
gi
ld
ir
til
og
m
eð
14
.0
9.
11