SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Síða 16
Þ
ó að kýrnar eigi enn samastað á Hvassafelli undir Eyjafjöll-
um eru þær hættar að brúka gamla fjósið. „Það eru komnir
nýir tímar með nýrri tækni,“ segir bóndinn Magnús Pálsson.
„Nú labba þær sjálfar á básinn.“
Það varð til þess að Gamla fjósið varð gamalt með stórum staf, því
heimasætan á bænum, Eygló Scheving Sigurðardóttir, hefur sett þar
upp veitingastað og orðið sér þannig úti um sumarhýru en hún byrjar
aftur í námi á veturna. En fyrst þurfti að hreinsa út úr fjósinu og gera
það vistlegt.
„Við hófumst handa 7. mars á þessu ári,“ segir Magnús. „Svo voru
allir fengnir til að hlaupa undir bagga, vinir og vandamenn …“
„… og líka vinir þeirra og vandamenn …“ bætir kona hans Heiða
Björg Scheving við.
„og nokkrir vandamálamenn,“ klykkir Eygló út með og hlær.
„Ótrúlega margir lögðu hönd á plóg, hjálpuðu til og áttu um leið
góðar stundir hér í fjósinu,“ segir Heiða, sem er leikskólastjóri á
Hvolsvelli og sér fyrsta kastið um eldamennskuna í Gamla fjósinu á
kvöldin, en dóttir hennar vakir yfir gestum á daginn.
Syngjandi matselja
„Það þurfti að hreinsa út flórinn og steypa ofan í haughúsið,“ segir
Magnús. „Svo byggðum við klósettin, klæddum þau með bárujárni til
að gera þau notaleg. En mesta vinnan var í loftinu. Það þurfti að klæða
það og hreinsa alla þessa bita – það var svakaleg vinna í þeim. Þá kom
til skjalanna ein sem er með Eygló í hljómsveit!“
„Glerharður rokkari,“ skýtur Eygló inn í.
„Og hún var með vírburstann á lofti heila helgi, djöflaðist í þessu og
þreif allt að innan.“
– Í hvaða hljómsveit ertu? spyr blaðamaður varlega.
„Rokksveit sem nefnist Vicky,“ svarar Eygló.
Ragnar Axelsson ljósmyndari getur ekki setið á strák sínum frekar
en fyrri daginn. „Þetta eru ellimerki Pétur!“
„Þrjár gullfallegar stelpur og einn strákur,“ segir Heiða stríðnislega.
Og víst þekkja margir sveitina Vicky, sem gaf út fyrstu plötuna árið
2008, Pull Hard, og hefur ekki látið sér nægja að troða upp á tón-
leikum í hverju krummaskuði á Fróni, heldur einnig spilað í Kína og
Bandaríkjunum. Lagið Feelgood hefur notið vinsælda á X-inu í allt
sumar og er aðeins upphitun fyrir haustið.
„Við gefum út plötu í næsta mánuði, fyrst þú ert byrjaður,“ segir
söngkonan Eygló brosandi. „Hún mun nefnast Cast a Light.“
Annars vinnur Eygló í ungmennamiðstöð í Hafnarfirði, gamla
bókasafninu, en ætlar eins og fyrr segir í nám í vetur.
„Í vetur verður eitthvað opið um helgar og við vonumst til að ná
hópum til okkar, en síðan opnum við snemma næsta vor af fullum
krafti,“ segir hún.
„Þá ráðum við eitthvað af fólki til okkar. Okkur fannst ekki taka því
núna, fyrst við opnuðum ekki fyrr.“
– Var þetta meiri vinna en þið bjuggust við?
„Er það ekki alltaf þannig?“ spyr hún. „Við ætluðum alltaf að opna
um næstu helgi – í heilan mánuð!“
Hráefni úr sveitinni
Og stefnan er að sækja hráefnið á veitingastaðnum í sveitina. „Þetta
er náttúrlega nautgripabú og við leggjum mesta áherslu á nautakjöt-
ið,“ segir Heiða. „Svo sækjum við grænmeti á bæina í kring, förum
eins stutt og mögulegt er að sækja það. Er það ekki hugmyndin með
beint frá bónda?“
„Salatið fáum við frá sýslumanninum í Vík,“ bætir Eygló við.
„Hún er með grænmetisræktun í stórum og miklum garði á sumr-
in.“
Og nú leggur Magnús orð í belg:
„Svo verðum við með fisk dagsins, bleikju eða sjóbirting beint úr
ósnum. Þar legg ég net. Veiðin datt að vísu dálítið niður við eldgosið
og hefur ekki alveg náð sér á strik aftur. Það er svo mikil aska í ósn-
um.“
– Er það ekki bara næringarefni fyrir lífríkið?
„Ég skil ekki í öðru en það verði gott þegar frá líður,“ svarar hann.
– Þið hafið verið í jaðrinum á gosöskunni?
„Mökkurinn náði út að Hólsá, þannig að við vorum í honum,“
svarar Magnús. „Gosið olli töluverði tjóni hjá okkur, en uppbygg-
ingin hefur gengið vel síðan.“
Eygló stenst ekki mátið.
„Var þetta ekki að þannig að fréttamenn voru hættir að nenna í
hringja í ykkur – þið voruð svo jákvæð?“
Heiða tekur undir það.
„Við ákváðum að tala ekkert um það neikvæða, þó að við værum
Það tók marga
mánuði að hreinsa
út úr fjósinu.
Vilborg Sigurjónsdóttir, móðir
Magnúsar, að mjólka í fjósinu.
Hún var húsfreyja á Hvassafelli
frá 1954 til 2007.
Heiða, Eygló og Magn-
ús er ánægð meðveit-
ingastaðinn í fjósinu.
Mæðgurnar á bak
við afgreiðsluborð
með kökum.
’
Á matseðl-
inum er
meðal ann-
ars matarmikil
eldjallasúpa,
gúllassúpa með
kjöti frá bænum
og grænmeti úr
sveitinni.
16 4. september 2011