SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Page 24
24 4. september 2011
K
ínverska hagkerfið er vélin
sem í kreppu og samdrætti
knýr efnahagslíf heimsins.
Undanfarinn áratug hefur ár-
legur hagvöxtur í Kína verið í kringum tíu
af hundraði. Þessum gríðarlega vexti hafa
fylgt umsvif um allan heim. Ísland hefur
ekki verið undanskilið. Kínvjerjar hafa
sýnt því áhuga að reisa álver á Bakka og nú
hyggst auðjöfurinn og ljóðskáldið Huang
Nobu kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum í
því skyni að reisa þar hótel með golfvelli.
Þessar fyrirætlanir hafa þegar mætt tor-
tryggni hér á landi og er það ekkert eins-
dæmi.
Það er aðeins talið tímaspursmál hve-
nær Kína verði voldugasta ríki heims.
Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs spáir
því að Kínverjar muni fara fram úr Banda-
ríkjamönnum árið 2027, bankinn Stand-
ard Chartered telur að það muni gerast
2020 og vikublaðið The Economist býður
betur og segir 2019.
Þegar Kína bjargaði
kaptítalismanum
Talað er um að eftir fjármálakreppuna
2008 standi Kínverjar með pálmann í
höndunum. „Fyrir þrjátíu árum, í tíð um-
bótasinnans Dengs Xiaopings, bjargaði
kapítalisminn Kína,“ segja gárungarnir á
Wall Street. „Nú í fjármálakreppunni
bjargaði Kína kapítalismanum.“
Samkvæmt könnun, sem breska rík-
isútvarpið, BBC, gerði í mars lítur meiri-
hluti Þjóðverja, Ítala og Frakka uppgang
Kínverja neikvæðum augum, nokkuð
fleiri en í sambærilegri könnun, sem gerð
var 2005. Sömu sögu er að segja um
Bandaríkjamenn og Kanadamenn.
Ráðamenn í Evrópu sækjast hins vegar
eftir kínverskum peningum. Þegar Wen
Jiabao, forsætisráðherra Kína, var í Evr-
ópu í sumar var honum tekið með kostum
og kynjum. Hann sagði að kínversk
stjórnvöld myndu halda áfram að kaupa
ríkisskuldabréf í evrum.
Aukin umsvif Kínverja eiga sér ekki stað
í tómarúmi. Óhjákvæmilegt er að vaxandi
heimsveldi stígi á einhverjar tær. Jon
Huntsman, sendiherra Bandaríkjanna í
Kína, sagði í sendiráðspósti að kínversk
stjórnvöld væru farin að „sýna vöðvana“.
Þegar nágrannar Kína kvörtuðu yfir því
hvað heimssýn kínverskra ráðamanna
væri Kínamiðuð á fundi samtaka As-
íuríkja, ASEAN, í fyrrasumar svaraði Yang
Jiechi, utanríkisráðherra Kína, um hæl:
„Vinsamlegast hafið hugfast hvað efna-
hagsleg velferð ykkar er háð okkur.“
Þennan tón nota Kínverskir ráðamenn
ekki á Vesturlöndum, en þó er til marks
um að valdajafnvægið í heiminum er að
breytast hvernig Kínverjar gagnrýna nú
Bandaríkjamenn fyrir gáleysi í fjármálum.
Umsvif Kínverja í Afríku
Þegar Kínverjar byrjuðu að ryðja sér til
rúms með fjárfestingum í Afríku var þeim
tekið fagnandi. Fjárfestingum þeirra áttu
að fylgja störf og uppbygging. Kínverjum
fylgdi ekki farangur gömlu nýlenduveld-
anna auk þess sem þeir fylgdu stefnu „af-
skiptaleysis“, sem þýðir að þær voru ekki
skilyrðum háðar um mannréttindi og því
um líkt.
Þessi þáttur var ráðamönnum í Afríku
að skapi. Kaupsýslumönnum og stjórn-
málamönnum í Afríku fannst ferskur andi
fylgja kínverskum áherslum á niðurstöður
eftir að hafa hlustað á fyrirlestra um
mannréttindi frá gömlu nýlenduveld-
unum, Alþjóðabankanum og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðunum.
Í bókinni African Perspectives on China
eru tvær sláandi tilvitnanir. „Við kunnum
að meta kínverska fjárfestingu vegna þess
að það er haldinn einn fundur, við ræðum
það sem þeir vilja gera og síðan bara fram-
kvæma þeir,“ er haft eftir Johnny Sahr,
sendiherra Síerra Leone í Peking. „Það eru
engin viðmið og skilmálar, ekkert mat á
umhverfisáhrifum.“ Síðan er haft eftir
Alfred Mutua: „Þú heyrir Kínverjana aldr-
ei segja að þeir muni ekki ljúka verkefni
vegna þess að ríkisstjórnin hafi ekki gert
nóg til að taka á spillingu. Ef þeir ætla að
leggja veg verður hann lagður.“
Talsmenn fjárfestinga Kínverja bentu á
að Afríkuríki hefðu fylgt vestrænum fyr-
irmyndum og ráðum með hrikalegum af-
leiðingum undanfarin fimmtíu ár og því
væri eðlilegt að reyna eitthvað nýtt.
Á undanförnum tíu árum hefur útflutn-
ingur Kínverja til Afríku tólffaldast og
innflutningur frá Afríku aukist enn meira.
Kínverjar tóku í fyrra við af Bandaríkja-
mönnum sem helsti viðskiptavinur Afr-
íku. Árið 2009 námu fjárfestingar kín-
verskra fyrirtækja í Afríku 56,5
milljörðum dollara. Fjárfestingunum hafa
fylgt miklir fólksflutningar. Ein milljón
Kínverja býr nú í Afríku og segir Sanou
Mbaye, fyrrverandi embættismaður hjá
Þróunarbanka Afríku, að fleiri Kínverjar
hafi komið til Afríku á undanförnum tíu
árum en Evrópubúar undanfarin 400 ár.
Án þessara umsvifa Kína hefði aldrei
náðst fimm prósenta hagvöxtur í álfunni.
Skipta sér ekki af innri málum
Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt fram-
göngu Kínverja í Afríku. „Kína er mjög
ágengur og skaðlegur keppinautur án
nokkurs siðferðis,“ sagði Johnnie Carson,
sem fer með málefni Afríku í bandaríska
utanríkisráðuneytinu, á fundi með
frammámönnum í olíuiðnaði í Lagos í
Nígeríu.
Bandaríkjamenn eru reyndar ekki alveg
hlutlausir í málinu. Þeir ásælast sömu
auðlindir og Kínverjar, hvort sem er olía,
gas, kol, kopar, viður eða koltan. En
gagnrýni þeirra á rétt á sér. Einn tíundi af
innfluttri olíu í Kína kemur frá Súdan og
láta Kínverjar sér mannréttindabrot súd-
anskra stjórnvalda í Darfur í léttu rúmi
liggja í þeim viðskiptum.
Bakslag í sambúðinni
Viðskiptin við Kínverjana hafa hins vegar
ekki alltaf verið dans á rósum í Afríku.
Önnur menning ríkir í kínverskum fyrir-
tækjarekstri en vestrænum. Í Kína eru
fyrirtæki tilbúin að stytta sér leið og það
hefur ekki breyst þótt til Afríku sé komið.
Í Gabon ríkir óánægja vegna rasks, sem
olíufélagið Sinopec hefur valdið í þjóðgarði
einum, og í Súdan hefur kínverskt rík-
isfyrirtæki látið slíkt magn af hráolíu fara
til spillis að heilu tjarnirnar hafa myndast.
Kínversk fyrirtæki bera litla virðingu
fyrir rétti verkamanna. Í koparnámum,
sem kínverskt fyrirtæki rekur í Sambíu, fá
starfsmenn ekki öryggishjálma fyrr en þeir
hafa verið við störf í tvö ár. Þar eru bana-
slys daglegt brauð. Kínverskir stjórnendur
múta verkalýðsleiðtogum og fara með þá í
„námsferðir“ á nuddstofur í Kína. Starfs-
menn, sem eru með uppsteyt, eru reknir.
Þegar námamenn í bænum Sinazongwe í
Sambíu mótmæltu lélegum aðbúnaði
skutu tveir kínverskir stjórnendur úr
haglabyssum á hópinn og særðu tug
manna.
Einnig hefur komið bakslag í samskiptin
vegna slælegra vinnubragða. Spilling er
síður en svo óþekkt í Afríku, en heima-
menn kvarta undan því að ástandið hafi
versnað með tilkomu Kínverja. Kínverskir
verktakar reistu sjúkrahús í Lúanda, höf-
uðborg Angólu, með viðhöfn, en gleðin
var skammlíf. Fyrr en varði mynduðust
sprungur í veggjum og nokkrum mán-
uðum síðar var sjúkrahúsinu lokað. Annað
dæmi er 130 kílómetra vegur, sem kín-
verskt fyrirtæki lagði frá Lusaka, höf-
uðborg Sambíu, til Chirundu. Vegurinn
Mála heim-
inn rauðan
Áhugi kínverska auðmannsins Huangs Nobu á að
kaupa Grímsstaði á Fjöllum hefur verið settur í
samhengi við vaxandi umsvif Kínverja, sem eru
að mála heiminn rauðan. Talið er að Kínverjar
verði orðnir voldugri en Bandaríkjamenn jafnvel
innan áratugar ef fram heldur sem horfir og tor-
tryggni í þeirra garð fer vaxandi.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Hu Jintao, forseti Kína, tekur á móti Armando Guebuza, forseta
Mósambík, í Peking. Margir líta á aukin umsvif Kínverja í heim-
inum sem hluta af heimspólitískri áætlun, meðal annars til að
tryggja aðgang að auðlindum.
Gámar standa í stæðum í uppskipunarhöfninni í Qingdao. Kínverjar slógu öll met í útflutn-
ingi í júlí. Búist er við því að Kína verði jafnvel orðið voldugasta ríki heims innan áratugar.