SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Side 26
26 4. september 2011
L
eiðin niður í Hinrikssongallery er leið sem ég
hef farið mjög oft yfir ævina, bara ekki alla
leið. Ég hef hundrað sinnum keyrt niður í
Krónuna úti á Fiskislóð og ef farið er aðeins
nokkur hundruð metrum lengra kemur maður að þess-
um gullmola sem þetta gallerí er. Það er alltaf sérstök
tilfinning þegar maður uppgötvar að rétt utan alfara-
leiðar, þar sem maður keyrir oft, blindur á umhverfi
sitt, kaupandi klósettpappír eða eitthvað ofan í sig, að
einmitt rétt þar hjá sé eitthvað undravert. Þegar ég
kem er Þór Hinriksson, eigandi gallerísins, fyrir utan
með einum listamannanna sem eru í galleríinu, Jóni
Axel Björnssyni, en persónulega hef ég heillast að verk-
um hans lengi. Jón Axel kveður því miður fljótt en
Ingimunda Maren Guðmundsdóttir kona Þórs kemur,
en að hans sögn er hún aðalhvatamaðurinn að því að
hann kæmi þessari hugmynd sinni í verk. Þór býður
mér mjög persónulega þjónustu í galleríinu, gengur
með mér um salinn og spjallar við mig um listamenn-
ina og listaverkin sem hann sýnir þarna. Hann býður
mér meira að segja að velja úr rauðvíni, gosi, kaffi eða
vatni til að mýkja spjallið. Sem er í sjálfu sér ekkert
óvenjulegt fyrir mann þegar maður er blaðamaður, en
það sem er óvenjulegt við þetta gallerí er að þetta er í
boði fyrir alla sem vilja skoða verkin. Þetta gallerí er
ekki opið á einhverjum ákveðnum dögum, heldur að-
eins samkvæmt pöntun. Þeir sem vilja kynna sér verk-
in geta farið á heimasíðu gallerísins og pantað tíma með
Þór og hann mun kynna þeim verkin í einrúmi.
Að sinna listamönnunum
Aðspurður hvaðan hugmyndin að galleríinu sé komin
segist hann hafa velt þessu lengi fyrir sér. „Ég hef velt
þessu fyrir mér frá því ég sá um rekstur Foldar list-
munagallerísins. Sá tími var einhver sá skemmtilegasti
í mínu lífi. Að hitta alla þá mætu listamenn sem þar
voru með verk var einstaklega gefandi, að hafa átt í
þessum áhugaverðu vangaveltum um lífið og tilveruna
sem dæmi við Valgarð Gunnarsson, Jón Axel Björnsson,
Kjartan Guðjónsson, Hring Jóhannesson og Braga Ás-
geirsson er eitthvað sem lifir sterkt í mér og er að
mörgu leyti ástríðan að Hinrikssongallery. Mig langar
að hafa persónulega þjónustu og bjóða aðeins upp á fáa
listamenn sem við sinnum mjög vel. Við erum með
verk eftir sex listamenn, þá Jón Axel Björnsson, Guð-
nýju Kristmanns, Ragnar Axelsson, Hafstein Aust-
mann, Valgarð Gunnarsson og Hallstein Sigurðsson. Við
sameinum þessa sex listamenn því þeir höfða mikið til
okkar. Þeir eru kveikjan að galleríinu því fyrst höfðum
við samband við þá áður en við létum verða af því að
útvega húsnæði fyrir verk þeirra. Okkur finnst gaman
að sameina ljósmyndina, það er RAX, og málverkið en
þar eru Guðný, Jón Axel og Valgarður og loka því með
myndhöggvaranum Hallsteini. Saman búa þarna lista-
menn sem eru á aldrinum fjörutíu, fimmtíu, sextíu og
sjötíu ára gamlir, jafnt konur sem karlmenn. Það er
löngun okkar að bæta við listamönnum sem eru á aldr-
inum tuttugu og þrjátíu ára gamlir.
Fótbolti og myndlist
Spurður um aðkomu hans að myndlistinni kemur í ljós
að hann hefur komið víða við á ævi sinni, en eftir að
hafa unnið mörg ár hjá Galleríi Borg og Fold Listmuna-
sölu fór hann til Hollands og lærði knattspyrnuþjálfun
og hefur starfað til dæmis sem yfirþjálfari ÍA og aðstoð-
arþjálfari Willums hjá Val og Keflavík. En uppruna
listáhuga hans er víst að finna hjá presti á Grundarfirði,
frá því að hann var krakki. „Já, hann séra Jón Þor-
steinsson leiddi mig inn í heim ljóða og myndlistar af
mikilli natni, enda maðurinn algjör perla. Ég var nú
eitthvað að teikna þegar ég var ungur en börnin mín
Helga Karen og Sævar Freyr hafa tekið það yfir enda
Að reka gallerí er bara gaman
Nýlega var opnað Hinrikssongallery úti á Granda sem hefur upp á ýmsa sérstöðu að bjóða; meðal
annars hversu persónulega þjónustu viðskiptavinurinn fær og í sjálfu sér listamaðurinn líka.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is