SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Page 31
4. september 2011 31
H
rund Þórsdóttir fæddist í Reykjavík 11. júní
1981. Hún ólst að mestu upp í Kaupmannahöfn
og í Vesturbænum og gekk í Hagaskóla. Eftir
grunnskóla stundaði hún nám við Mennta-
skólann í Reykjavík og fór síðan í Háskóla Íslands og er með
BA-gráðu í stjórnmálafræði og MA-gráðu í blaða- og
fréttamennsku. Hún spilaði lengi körfubolta, lengst af með
KR, og spilaði með unglingalandsliðum. Hún er höfundur
barna- og unglingabókarinnar Loforðsins, sem kom út
haustið 2007 og fékk fyrir hana Íslensku barnabókaverð-
launin og Bókaverðlaun barnanna.
Hrund starfaði sem fréttamaður á Morgunblaðinu í eitt
ár en hefur verið hjá útgáfufélaginu Birtíngi í tæp fimm ár.
Hún er núna að taka við starfi ritstjóra karlablaðsins
Mannlífs. Hún er mikið fyrir ferðalög og ætlar fljótlega eftir
áramótin í nokkurra mánaða heimsreisu. Önnur helstu
áhugamál eru lestur og skrif, ljósmyndun og líkamsrækt.
ingarun@mbl.is
Lítil skotta heima að dunda í Kaupmanna-
höfn. Ef ég hafði blöð og penna eða liti var
ég alltaf sátt. Snemma beygist krókurinn.
Bókaormarnir. Við litla systir mín, Sunna
heitin, í útilegu í Þórsmörk 1993.
Kát með pabba í „afasveit“ við Þingvallavatn.
Alsæl í Tungnaréttum á síðasta ári.
Við glæný ísbjarnarspor í magnaðri ferð til Ittoqqortoormiit á Grænlandi
með skákfélaginu Hróknum í vor. Ísbirnirnir eru rétt handan við hæðina!
Ég og Óskar, kærastinn minn, í París sumarið 2009.
Ætlar í
heimsreisu
Myndaalbúmið
Að þessu sinni fær Sunnudags-
mogginn að kíkja í myndaalbúm
Hrundar Þórsdóttur, sem er að
taka við ritstjórn karlablaðsins
Mannlífs um þessar mundir.
Með pabba, mömmu og bróður mínum á
Snæfellsnesi í fyrra.
Ég skellti mér með ljósmyndafélögum í
þyrluferð að gosinu á Fimmvörðuhálsi og
átti skilið að fá Thule!
Með Sunnu vinkonu á góðri stundu í fyrra.
Í öskubaði í Seljavallalaug í miðju Eyjafjalla-
jökulsgosi í fyrra.
Þessi mynd var tekin af mér í sumar, rétt
fyrir þrítugsafmælið mitt.
Unglingalandsliðið í körfubolta í Finnlandi 1997. Ég er næst-
lengst til vinstri í efri röð.
Ég hef verið að fikta við ljósmyndun og tók
þessa sjálfsmynd í vor í tengslum við smá
áskorun.