SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Qupperneq 32
32 4. september 2011
Þ
egar Bjarni Haukur Þórsson
settist niður til að skrifa ein-
leikinn Pabbann átti hann alls
ekki von á að vera ennþá á
bólakafi í verkefninu meira en fimm ár-
um síðar. Sýningum er vissulega löngu
lokið hér heima en Pabbinn er enn að
spretta upp á sviðum víðsvegar um
heim, næst verður hann á ferð í Brasilíu
eftir áramótin. Sýningarrétturinn hefur
verið seldur til tuttugu landa, hvorki
meira né minna.
„Þetta er ótrúlegt,“ segir Bjarni. „Í
mínum villtustu draumum vonaðist ég
til að fara með sýningunna til tveggja
eða þriggja landa.“
Og boltinn er hvergi nærri hættur að
rúlla. Bjarni er nýkominn heim frá
München, þar sem hann skrifaði undir
samning við kvikmyndafyrirtækið Blue
Eyes Fiction um gerð kvikmyndar eftir
handriti sem þeir Ólafur Egill Egilsson
unnu upp úr leikritinu. Fyrirhugað er
að tökur hefjist í lok næsta árs og að
myndin verði frumsýnd haustið 2013.
Áætlaður kostnaður við myndina er
fimm milljónir evra (820 milljónir
króna) sem er að sögn Bjarna í meðallagi
á þýskan mælikvarða.
Bjarni er að vonum kampakátur með
samninginn. „Þetta verkefni hefur tekið
drjúgan hluta af kröftum mínum og
tíma undanfarin misseri og á leiðinni
hefur maður vissulega spurt sig hvort
þetta sé þess virði. Í dag er ég hins vegar
hæstánægður að hafa ekki lagt árar í
bát.“
Öflugt framleiðslufyrirtæki
Handritið lá fyrir í vor og hófst þá
kynning á því vítt og breitt um heim-
inn. „Við höfum verið duglegir að sýna
fólki handritið, meðal annars á kvik-
myndahátíðinni í Cannes, og Blue Eyes
Fiction voru fyrstir til að bíta á agnið.“
Honum líst vel á hinn nýja samstarfs-
aðila. „Þetta er öflugt framleiðslufyr-
irtæki sem gerir bæði myndir fyrir bíó
og sjónvarp. Síðasta myndin sem það
framleiddi var fjölskyldumyndin Lilly
and the Witch í samstarfi við Disney.“
Myndin verður á þýsku og aðeins til
dreifingar á þýska málsvæðinu.
„Ástæðan fyrir því er sú að hugmyndin
er að gera myndina víðar. Við erum
þegar í viðræðum við aðila í Tékklandi,
Frakklandi, Noregi, Finnlandi og Bras-
ilíu. Maður veit aldrei hvað kemur út úr
svona viðræðum en væntanlega eiga
myndirnar eftir að verða fleiri en ein og
fleiri en tvær,“ segir Bjarni.
Ekki eru áform um að gera mynd á ís-
lensku. „Auðvitað á maður aldrei að
segja aldrei en ég býst ekki við að gera
mynd um Pabbann hér á landi,“ segir
Bjarni.
Spurður um landvinninga í ensku-
mælandi löndum segir Bjarni það vissu-
lega koma til álita. „Ég hef verið í við-
ræðum við aðila í Bandaríkjunum um
leikritið án þess að neitt sé frágengið í
þeim efnum. Hvað kvikmynd varðar
verðum við svolítið að spila það eftir
eyranu. Heppnist þýska myndin vel og
jafnvel fleiri myndir verður vígstaða
okkar gagnvart Bandaríkjunum mun
betri. Hafi eitthvað virkað annars staðar
eru þeir mun líklegri til að sýna því
áhuga.“
Eins og menn muna er Pabbinn ein-
leikur en mun fleiri leikarar koma við
sögu í myndinni. „Innihaldið er það
sama. Aðalsöguhetjan er sjálfumglaður
glæpasagnahöfundur á framabraut sem
lendir óvart í því að verða pabbi. Hann
hefur minni en engan áhuga á börnum
og skyndilega er lífi hans snúið á hvolf.“
Einleikurinn á ferð og flugi
Pabbinn er ekki bara á ferð og flugi í
formi kvikmyndahandrits, leikritið hef-
ur nú verið selt til tuttugu landa og að
sögn Bjarna eru átta til tíu til viðbótar í
sigtinu. „Það er ekki búið að frumsýna
verkið í öllum þessum löndum en það
hefur verið að gerast smátt og smátt. Nú
stendur til að mynda fyrir dyrum fyrsta
uppfærslan utan Evrópu – í Rio de Ja-
neiro í Brasilíu í janúar næstkomandi.
Það verður gaman að sjá hvernig skil
menn gera Pabbanum þar,“ segir Bjarni
sem reiknar með að verða viðstaddur
frumsýninguna.
Hann segir það tvímælalaust hjálpa til
að sýningin sé með alþjóðlegu yf-
irbragði, menn upplifi föðurhlutverkið
víðast hvar með áþekkum hætti. „Ætli
það sé ekki alveg jafnmikið sjokk fyrir
brasilískan karlmann að verða faðir í
fyrsta sinn og íslenskan,“ segir Bjarni og
brosir út í annað.
Oft er sagt að erfitt sé að flytja húmor
milli menningarsvæða, hann sé oft og
tíðum svo staðbundinn. Bjarni er ósam-
mála þessu. „Sjáðu bara Mr. Bean. Hann
er fyndinn alls staðar. Monty Python,
Pabbinn
tjaldar ekki til
einnar nætur
Bjarni Haukur Þórsson hefur samið við þýskt
fyrirtæki um að gera kvikmynd byggða á ein-
leiknum Pabbanum sem sýndur hefur verið víða
um lönd. Ólafur Egill Egilsson skrifar handritið
að myndinni ásamt Bjarna. Hermir þar af kot-
rosknum manni á framabraut sem lendir í þeim
ósköpum að verða faðir.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bjarni Haukur og Corinna Mehner, yfirmaður hjá Blue Eyes í Þýskalandi, skrifa undir samn-
ing um gerð kvikmyndar á dögunum.
Hinn kunni leikari Sven Nordin í hlutverki
Pabbans (Pappa!) í Noregi.
’
Mín reynsla er sú
að menn hlæja al-
veg jafnmikið að
Pabbanum á Íslandi og í
Slóveníu.
Bjarni Haukur Þórsson í Hörpunni
þar sem nýtt verk eftir hann, How
to Become Icelandic in 60 Min-
utes, verður frumsýnt næsta vor.